Erlent

David Bowie sextugur í dag

Breski tónlistarmaðurinn David Bowie er sextugur í dag. Í tónlistargeiranum er honum gjarnan líkt við Kamel-ljón, sem getur brugðið sér í allra kvikinda líki, og er þá vísað til þess hversu fjölbreyttur tónlistarmaður Bowie er.

Erlent

Tumi tígur sló barn í Disney World

Starfsmanni Disney World í Orlando Bandaríkjunum hefur tímabundið verið vikið störfum eftir að hann var sakaður um að hafa slegið barn. Starfsmaðurinn var klæddur í búning persónu sem kölluð er Tumi tígur þegar fjölskylda frá New Hampshire stillti sér upp við hlið hans til að taka myndir.

Erlent

Bush fær ekki að gera hvað sem hann vill

Demókratar vara Bush Bandaríkjaforseta við að hann þurfi að færa sterk rök fyrir fjölga í herliði Bandaríkjahers í Írak eins og hann fyrirhugar. Þetta sagði Nancy Peloci, nýr forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins og leiðtogi Demókrata í deildinni, í sjónvarpsviðtali í gær.

Erlent

Mannréttindadómstóllinn að kikna undan álagi

Mannréttindadómstóllinn í Strasbourg er að kikna undan heilu fjalli af málum sem eru á biðlista. Forseti dómstólsins segir að hann brjóti sjálfur mannréttindi, með því að afgreiða mál ekki tímanlega. Það hefur tekið upp undir ellefu ár að ljúka sumum málum.

Erlent

Morðaldan rís hærra á Indlandi

Aðskilnaðarsinnar í Assam héraði á Indlandi myrtu tíu manns í dag og hafa þá 67 fallið í valinn frá því þeir hófu árásir sínar, á föstudagskvöld. Hundruð hermanna og lögreglumanna gerðu í dag árásir á búðir þeirra í frumskóginum, í dag, og liðsauki hefur verið sendur til Assam.

Erlent

Wielgus sagði af sér erkibiskupstigninni

Pólski biskupinn Stanislaw Wielgus, sem vígja átti sem erkibiskup Varsjárborgar í dag, sagði af sér embætti skömmu fyrir athöfnina. Mikil reiðialda hefur farið um Pólland eftir að í ljós kom að biskupinn var á sínum tíma á mála hjá leynilögreglu kommúnista.

Erlent

Hyggjast einkavæða olíuvinnsluna

Íraska ríkisstjórnin, með aðstoð bandarískra embættismanna, er sögð vinna að setningu laga sem kveða á um að olíuvinnsla í landinu verði einkavædd. Slík lög gætu fært vestrænum olíufélögum einkaleyfi á olíuvinnslu í áratugi.

Erlent

Framdi morð í afbrýðiskasti

Danskur karlmaður á fertugsaldri hefur viðurkennt að hafa banað fyrrverandi sambýliskonu sinni og tveimur börnum þeirra, í bænum Sønderborg á Suður-Jótlandi í gær.

Erlent

Ísraelar sagðir íhuga beitingu kjarnavopna

Ísraelar eru sagðir æfa árásir á kjarnorkuvinnslustöðvar Írana með atómsprengjum til að koma í veg fyrir að þeir geti haldið áfram auðgun úrans. Ísraelsk stjórnvöld neituðu í dag að slíkt væri í bígerð en Íranar segjast munu hefna slíkra árása grimmilega.

Erlent

Vilja ekki senda fleiri hermenn til Íraks

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins sagði í dag að það verði skoðað nákvæmlega, ef Bush forseti ákveður að senda fleiri hermenn til Íraks. Hún gekk þó ekki svo langt að segja að þingið muni neita forsetanum um það fé sem til þarf.

Erlent

Aðstoðarmenn Saddams hengdir í næstu viku

Tveir aðstoðarmenn Saddams Hussein verða teknir af lífi í næstu viku, að sögn talsmanns írösku ríkisstjórnarinnar. Þeir voru dæmdir til dauða ásamt Saddam, fyrir morðin á 148 sjía múslimum á áttunda áratugnum.

Erlent

Ísraelar neita áformum um kjarnorkuárás

Ísraelska utanríkisráðuneytið neitar því að ísraelar hyggist gera kjarnorkuárás á kjarnorkuver í Íran, en hvorki forsætisráðherra né öryggismálaráðherra vilja tjá sig um frétt Sunday Times þess efnis. Íranar hóta hinsvegar grimmum hefndum ef Ísraelar gera árás.

Erlent

Efast um meiri hollustu lífrænnar ræktunar

Landbúnaðarráðherra Bretlands segir að engar órækar sannanir séu fyrir því að lífrænt ræktuð matvæli séu hollari en önnur. Sala á lífrænt ræktuðum matvælum jókst um þrjátíu prósent í landinu á síðasta ári.

Erlent

Hitabeltissjúkdómar færast norðar

Malaría er að breiðast út á Ítalíu, sem og aðrir hitabeltissjúkdómar að sögn ítölsku umhverfisstofnunarinnar Legambiente. Stofnunin segir að með hlýnandi loftslagi séu hitabeltissjúkdómar að færast norðureftir. Margir þessara sjúkdóma eru banvænir, til dæmis kostar malaría um eina milljón manna lífið árlega.

Erlent

Tuttugu látnir eftir fangauppreisn

Tuttugu fangar létu lífið í miklum óeirðum í fangelsi í El Salvador í gær. Átökin hófust þegar nokkrir félagar í einni af klíkum fangelsins réðust á fangavörð og síðan á aðra fanga.

Erlent

100 högg fyrir hórdómsmyndir

Íranskur maður hefur verið húðstrýktur opinberlega fyrir að taka af sér videomyndir í samförum við fjölda giftra kvenna. Bósinn mátti þola eitthundrað vandarhögg. Lögreglan frétti af ástarleikjum hans frá mönnum sem hann hafði sýnt myndirnar.

Erlent

Barak aftur í ísraelska pólitík

Ehud Barak, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram til formanns í verkamannaflokknum, gegn Amir Peretz, sem nú er formaður og varnarmálaráðherra í ríkisstjórn Ehuds Olmerts. Peretz hefur hríðfallið í vinsældum eftir að hernum tókst ekki að ráða niðurlögum Hizbolla, í stríðinu í Líbanon.

Erlent

Ákvörðun um aftökurnar liggur enn ekki fyrir

Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær Barzan al-Tikriti, fyrrverandi yfirmaður írösku leyniþjónustunnar og hálfbróðir Saddams Hussein, og Awad al-Bander dómari verði hengdir en þeir voru dæmdir til dauða með Saddam.

Erlent

Olíuvinnsla í Írak verði einkavædd

Íraska ríkisstjórnin, með aðstoð bandarískra embættismanna, er sögð vinna að setningu laga sem kveða á um að olíuvinnsla í landinu verði einkavædd. Þessar fréttir eru vatn á myllu þeirra sem sögðu á sínum tíma að innrásin í Írak hafi á sínum tíma verið gerð til að ná yfirráðum yfir hinum miklu olíulindum landsins.

Erlent

Wielgus sagði af sér

Pólski biskupinn Stanislaw Wielgus sem vígja átti sem erkibiskup Varsjárborgar í dag hefur sagt af embætti eftir að í ljós kom að hann var á sínum tíma á mála hjá leynilögreglu kommúnista. Tilnefningin hans hefur af þeim sökum valdið miklum deilum í landinu.

Erlent

Íhuga að beita kjarnavopnum

Ísraelar eru sagðir íhuga árásir á kjarnorkuvinnslustöðvar Írana með atómssprengjum og koma þar með í veg fyrir að þeir geti haldið áfram auðgun úrans. Frá því að Bandaríkjamenn vörpuðu sprengjum sínum á Hiroshima og Nagasaki árið 1945 hefur slíkum vopnum aldrei verið beitt í hernaði.

Erlent

Ísraelsmenn ráðgera kjarnavopnaárás gegn Íran

Ísraelsmenn hafi gert leynilega áætlun um að gera árásir með kjarnavopnum á staði í Íran, þar sem úran er auðgað, að því er segir í grein breska blaðsins Sunday Times í dag. Tvær orrustuflugsveitir Ísraelshers æfa nú árásir á kjarnorkuúrvinnslustöð í Íran.

Erlent

Ísrael með áætlun um kjarnorkuárás á Íran

Breska blaðið Sunday Times skýrir frá því á morgun, að Ísraelsmenn hafi samið leynilega áætlun um kjarnorkuárás á staði í Íran, þar sem úran sé auðgað, að því er The DrudgeReport fréttasíðan hefur eftir heimildum innan breskra fjölmiðla.

Erlent

Dani myrti fyrrverandi sambýliskonu og tvö börn

32ja ára danskur maður var handtekinn í Sønderborg í Danmörku í dag grunaður um morðin á fyrrverandi sambýliskonu sinni og tveimur börnum þeirra. Börnin voru fjögurra og sex ára. Ódæðið átti sér stað að heimili mæðginanna en málið hefur vakið mikinn óhug í Danmörku.

Erlent

Drekarnir leyfðir á ný

Flugdrekaflug hefur verið leyft á ný í Punjab-héraði í Pakistan, fyrir hina árlegu Basant vorhátíð í febrúar. Strangar reglur munu hins vegar gilda um keppnina þar sem glerhúðaðir eða stálstyrktir drekastrengir hafa á liðnum árum valdið alvarlegum meiðslum og jafnvel gert fólk höfðinu styttra.

Erlent