Enski boltinn

McBride kominn heim

Bandaríski sóknarmaðurinn Brian McBride er kominn heim og hefur samið við Chicago Fire sem leikur í MLS-deildinni. McBride er 36 ára en hann samdi við Fire út tímabilið.

Enski boltinn

Knattspyrnusambandið kærir Barton

Raunasaga miðjumannsins Joey Barton er enn ekki öll, því nú hefur enska knattspyrnusambandið kært hann vegna árásarinnar á fyrrum liðsfélaga sinn Ousmane Dabo þegar hann var hjá Manchester City.

Enski boltinn

Arteta útilokar að fara til Spánar

Spænski miðjumaðurinn Mikel Arteta hjá Everton segist vera fullkomlega ánægður í herbúðum Everton og segist alls ekki hafa í huga að snúa til heimalandsins á næstunni. Hann hefur verið orðaður við félög á borð við Atletico Madrid í heimalandinu.

Enski boltinn

Þýskir miðlar lítt hrifnir af kaupum Arsenal

Arsenal gekk í gær frá kaupum á miðjumanninum unga Amaury Bischoff frá Werder Bremen í Þýskalandi. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er þekktur fyrir að gera góð kaup í ungum leikmönnum, en ef marka má þýska miðla hefur honum mistekist í þetta sinn.

Enski boltinn

Barry ævintýrinu ekki lokið?

Breska blaðið Daily Mail fullyrðir í morgun að sápuóperunni í kring um miðjumanninn Gareth Barry sé hreint ekki lokið. Blaðið segir að Liverpool hafi náð að keyra 17,5 milljóna punda tilboð í gegn og að hann muni skrifa undir hjá Liverpool í dag.

Enski boltinn

Ronaldo púlar í sex tíma á dag

Enskir fjölmiðlar hafa gert sér nokkurn mat úr því undanfarið að Cristiano Ronaldo hafi gert meira af því að liggja í sólbaði og skoða stelpur þar sem hann var í fríi og endurhæfingu í Los Angeles í Bandaríkjunum.

Enski boltinn

Arsenal græðir vel á Bentley

Stuðningsmenn Tottenham munu væntanlega fagna kaupum félagsins á David Bentley með nokkrum semingi, því erkifjendurnir í Arsenal munu fá væna summu af kaupverðinu beint í vasann frá Blackburn.

Enski boltinn

Curbishley er ekki hræddur um að missa vinnuna

Alan Curbishley, stjóri West Ham í ensku úrvalsdeildinni, segist sofa rólegur þó hann sé að mati enskra veðbanka talinn líklegastur til að verða fyrsti stjórinn sem látinn verður taka pokann sinn í deildinni á komandi tímabili.

Enski boltinn

Bentley gerði sex ára samning við Tottenham

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hefur gengið frá kaupum á vængmanninum David Bentley frá Blackburn fyrir 15 milljónir punda. Kaupverðið gæti farið upp í 17 milljónir punda þegar allt er talið, en hann hefur undirritað sex ára samning.

Enski boltinn

Barry fer ekki til Liverpool

Aston Villa hefur tilkynnt að Gareth Barry verði áfram hjá félaginu og muni ekki ganga til liðs við Liverpool. Villa segir að Liverpool hafi ekki náð að klára kaupin fyrir ákveðinn frest sem það hafi fengið.

Enski boltinn

Kaboul neitaði Sunderland

Franski varnarmaðurinn Younes Kaboul hjá Tottenham verður ekki fjórði leikmaðurinn frá félaginu sem gengur í raðir Sunderland í sumar, en hann neitaði samningstilboði félagsins. Talið er víst að hann gangi þess í stað í raðir Portsmouth, sem einnig mun hafa áhuga á honum.

Enski boltinn

Arsenal kaupir ungan miðjumann

Arsenal gekk í dag frá kaupum á 21 árs gömlum miðjumanni frá Werder Bremen í Þýskalandi. Sá heitir Amaury Bischoff og er fæddur í Frakklandi en á að baki leiki fyrir U-21 árs lið Portúgala.

Enski boltinn

Ben Haim til City

Ísraelski landsliðsmaðurinn Tel Ben Haim gekk í dag í raðir Manchester City frá Chelsea. Ben Haim hefur skrifað undir fjögurra ára samning við City en kaupverðið var ekki gefið upp.

Enski boltinn

Stoor keyptur til Fulham

Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur gengið frá kaupum á sænska landsliðsmanninum Fredrik Stoor frá Rosenborg í Noregi. Stoor er 24 ára gamall varnarmaður og kom við sögu í öllum leikjum Svía á EM.

Enski boltinn

Malbranque í læknisskoðun hjá Sunderland

Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque er nú að gangast undir læknisskoðun hjá Sunderland og gæti því fljótlega orðið þriðji Tottenham leikmaðurinn til að ganga í raðir Sunderland. Þá hefur David Bentley hjá Blackburn staðist læknisskoðun hjá Tottenham og verður væntanlega keyptur til Lundúna fyrir helgi.

Enski boltinn

Nike slítur samstarfi við Barton

Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur slitið samstarfi við miðjumanninn Joey Barton hjá Newcastle í kjölfar þess að hann var dæmdur í fangelsi fyrir líkamsárás. Breska blaðið Daily Telegraph fullyrðir að Barton verði fyrir vikið af rúmlega sex milljónum króna árlega frá Nike.

Enski boltinn

Deco fyllir skarð Eiðs Smára

Mikil ánægja ríkir yfir komu Portúgalans Deco inn í herbúðir Chelsea. Þeir Joe Cole og Luiz Felipe Scolari eru sérstaklega kátir yfir því að fá þennan skapandi miðjumann inn í liðið.

Enski boltinn

Moyes við það að framlengja við Everton

Skoski knattspyrnustjórinn David Moyes hjá Everton segist reikna með að framlengja samning sinn við félagið á næstu tveimur vikum. Hann hefur þegar samþykkt munnlega að framlengja samning sinn, sem bíður undirritunar.

Enski boltinn