Pétur Birgisson og Viðar Ágústsson, leikmenn Tindastóls, lentu í bílveltu í gærkvöldi þegar þeir voru á leiðinni heim á Sauðárkrók eftir leik Keflavíkur og Tindastóls. Þetta kemur fram á vefsíðunni Karfan.is.
„Bíllinn er gjörónýtur og það er í raun ótrúlegt hvað við sluppum vel því þetta leit ekkert svakalega vel út,“ sagði Pétur í samtali við Karfan.is.
Systir Viðars var ökumaður bifreiðarinnar og einnig var unnusta hans með í för.
„Systir Viðars var að keyra og svo var unnusta hans líka með. Hún fékk höfuðhögg en annars sluppu allir alveg ótrúlega vel. Við vorum bara heppnir. Þetta var hálka á veginum sem við bara gerðum okkur ekki grein fyrir og það var valdurinn,“ bætti Pétur við.

