Körfubolti

Kári og Costa bestir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Kári Jónsson, Haukum, var útnefndur besti leikmaður Domino's-deildar fyrir síðara hluta deildarkeppninnar sem nú er nýlokið.

Þá var Jose Costa, þjáfari Tindastóls, valinn besti þjálfarinn og Keflvíkingurinn ungi, Magnús Már Traustason, dugnaðarforkurinn.

KR átti þá Ægir Þór Steinarsson og Michael Craion í úrvalsliðinu en Ægir er nú farinn til Spánar þar sem hann spilar í B-deildinni.

Úrvalsliðið má sjá hér fyrir neðan.

Domino's-deild karla:

Lið seinni umferðar:

Kári Jónsson, Haukum

Ægir Þór Steinarsson, KR

Justin Shouse, Stjörnunni

Haukur Helgi Pálsson, Njarðvík

Michael Craion, KR

Dugnaðarforkurinn:

Magnús Már Traustason, Keflavík

Besti þjálfarinn:

Jose Maria Costa Gomez, Tindastóli




Fleiri fréttir

Sjá meira


×