Körfubolti

Í hverju spila stelpurnar?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Spurning í hvaða búningi Helena verður annað kvöld?
Spurning í hvaða búningi Helena verður annað kvöld? vísir/ernir
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik spilar landsleik í Portúgal á morgun en er ekki með neina búninga.

Eina taskan sem skilaði sér ekki alla leið til Portúgal var nefnilega taskan með keppnisbúningum liðsins segir á síðu KKÍ.

Landsliðið flaug í gegnum Brussel á leið sinni til Ilhavo í Portúgal og taskan er líklega enn í Brussel.

Leikurinn fer fram klukkan 18.30 annað kvöld og ef búningarnir skila sér ekki verða stelpurnar að fá lánsbúninga hjá portúgalska körfuknattleikssambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×