Atvikið gerðist í lok fyrsta leikhluta þegar Justin lenti á auglýsingaskilti við hlið vallarins. Hann fékk stóran skurð á hendi og spilar varla meira í kvöld.
Það fossblæddi strax úr hægri hendinni á Justin og samkvæmt heimildum Vísis þá er hann á leið á sjúkrahús til að láta huga að skurðinum.
Justin meiddist á hægri hendi en með henni hefur hann gefið flestar stoðsendingar í sögu úrvalsdeildar karla. Justin bætti met Jóns Arnars Ingvarssonar á föstudagskvöldið.
Þetta er mikið áfall fyrir Stjörnuliðið sem er líka að spila án Marvins Valdimarssonar.
Leikur Þórs og Stjörnunnar er enn í fullum gangi og það má fylgjast með gangi mála í beinni textalýsingu á Vísi.
Það er hægt að sjá atvikið í myndbandinu hér fyrir neðan.
Shouse datt á auglýsingaskilti og skarst illa á hendi. Virtist blæða frekar mikið. #dominos365 pic.twitter.com/CGXUhMPTzz
— Arnar Þór Ingólfsson (@arnaringolfs) February 7, 2016