Ráðuneytisstjóri í Fjármálaráðuneytinu seldi hlutabréf í Landsbankanum mánuði fyrir þjóðnýtingu 16. október 2008 18:43
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í Fjármálaráðuneytinu seldi hlutabréf sem hann átti í Landsbankanum um mánuði áður en fjármálaeftirlitið yfirtók rekstur bankans. Baldur náði því að selja hlutabréf sín áður en þau urðu algjörlega verðlaus eftir yfirtöku fjármálaeftirlitsins á bankanum. Hann neitaði viðtali en sagði í samtali við fréttastofu að þegar hann seldi bréfin hafi hann ekki haft neinar upplýsingar sem markaðurinn hafði ekki. Hann hafi tekið ákvörðun um sölu bréfanna eftir að fréttir birtust í blöðum um áhættu bankans á útlánatapi vegna lánveitinga. Hann segir jafnframt að hann hafi ekki keypt hlutabréf eftir að hann kom til starfa í ráðuneytinu þar sem hann telur það ekki samræmast starfi sínu. Í ljós hefur komið að tveir breskir hagfræðingar gerðu skýrslu um íslenska fjármálakerfið að beiðni Landsbankans fyrr á þessu ári. Í niðurstöðum skýrslunnar kom fram að stærð bankanna stefndi hagkerfinu í hættu. Buiter, sem er annar höfundur skýrslunnar, segir að efni hennar hafi verið kynnt á málþingi og fyrir fulltrúum ríkisstjórnarinnar. Baldur segist aldrei hafa séð umrædda skýrslu og segist ekki hafa vitað af tilvist hennar fyrr en fyrir tveimur dögum. Hann hafi því ekki haft neinar upplýsingar um bága stöðu Landsbankans umfram þær sem voru í fjölmiðlum. Upphæð viðskiptanna liggur ekki fyrir en fréttastofa hefur óskað eftir upplýsingum frá fjármálaeftirlitinu og skilanefnd Landsbankans um breytingar á hluthafaskrá mánuðinn áður en rekstur bankans var tekinn yfir. Þeirri beiðni hefur ekki verið svarað.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira