Ráðuneytisstjóri vanhæfur til að samþykkja breytingar lífeyrissjóðs 4. júlí 2008 13:40
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, og undirmenn hans væru vanhæfir til að staðfesta breytingu á samþykktum lífeyrissjóðsins Gildis. Því væri lífeyrissjóðnum ekki heimilt að draga örorkulífeyri og tekjutryggingu sem Tryggingastofnun ríkisins greiðir konunni sem höfðaði málið frá örorkulífeyri hennar hjá Gildi. Konan sem varð öryrki árið 1981 stefndi lífeyrissjóðnum Gildi og vildi að dómur viðurkenndi að að við útreikning Gildis á örorkulífeyrisgreiðslum til stefnanda skyldi ekki tekið tillit til lífeyris- og bótagreiðslna frá almannatryggingum. Reglum sjóðsins var breytt í þá átt árið 2005 þegar Gildi var til við sameiningu Lífeyrissjóðsins Framsýnar, sem konan var í, og Lífeyrissjóðs sjómanna. Um svipað leyti urðu sams konar breytingar á Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda. Dómurinn komst að því að samkvæmt lögum beri að tilkynna fjármálaráðherra allar breytingar á samþykktum lífeyrissjóða. Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda heyrði undir fjármálaráðherra sem skipaði sjö manna stjórn. Breytingar á sanmþykktum Söfnunarsjóðsins og Gildis hefðu verið samþykktar af fjármálaráðuneytinu. Benti dómurinn á að þeir starfsmenn ráðuneytisins sem hefðu samþykkt breytingarnar á samþykktum Gildis væru undirmenn Baldurs og að Baldur væri sem formaður stjórnar Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda vanhæfur til að fjalla um efnislega sambærilegar breytingar og gerðar voru á samþykktum Söfnunarsjóðsins hjá öðrum lífeyrissjóðum. Þar með hafi undirmennirnir verið vanhæfir. Ekki skipti máli að breytingin hefði verið gerð fyrir hönd ráðherra. Var staðfesting ráðuneytisins á breytingum á samþykktum Gildis því ógild og sagði dómurinn að þar með væri óheimilt að draga örorkulífeyri og tekjutryggingu sem Tryggingastofnun ríkisins greiddi konunni frá örorkulífeyri hennar hjá Gildi.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira