"Ótrúlega ósmekklegt og ömurlegt grín" Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. febrúar 2013 16:04
Skólastjóri Verzlunarskóla Íslands segist í fyrstu hafa talið að nemendur annars framhaldsskóla hefðu staðið fyrir umdeildum ratleik sem fjallað hefur verið um á Vísi í dag. „Ég hef ekki hugmynd um hverjir standa á bakvið þetta. Ég heyrði þetta bara í dag og er að reyna að finna út úr þessu," segir Ingi Ólafsson skólastjóri Verzlunarskóla Íslands. Umræða hefur skapast á samfélagsmiðlinum Facebook um reglur úr ratleik sem nemendur í Verzló stóðu fyrir á dögunum. Hrafnkell Ásgeirsson, formaður nemendafélagsins, staðfesti við Vísi fyrr í dag að um einn bekk væri að ræða. Ingi segir sín fyrstu viðbrögð við tíðindum dagsins hafa verið þau að hann hafi talið að um nemendur í öðrum skóla væri að ræða.Hluti af reglum ratleiksins.„Ég vissi að nemendur í þeim skóla voru í ratleik í dag," segir Ingi. „Svo var ég að heyra það að þetta er eitthvað sem er eldra þannig að grunur, skilst mér, beinist að einhverjum bekk í skólanum," segir Ingi. Málið er í rannsókn hjá Inga sem segir einu skipta hvort um nemendur Verzlunarskóla Íslands eða annars skóla sé að ræða. „Alveg sama hvort það sé einhver í Verzlunarskólanum eða öðru skóla þá er þetta ótrúlega ósmekklegt og ömurlegt grín," segir Ingi. „Ég hef ekki komist til botns í þessu máli. Ég er að reyna að finna út hverjir standa á bak við þetta og vita hvort það sé einhver í skólanum," segir Ingi. Samkvæmt samtölum undirritaðs við nemendur í Verzlunarskóla Íslands er algengt að bekkir í skólanum fari í ratleik, hver fyrir sig, á árshátíðardaginn.
Tengdar fréttir Bónusstig ef innflytjandi stingur putta í vatnið Ratleikur sem nemendur úr Verzlunarskóla Íslands stóðu fyrir á dögunum hefur vakið athygli. 14. febrúar 2013 15:12 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Fleiri fréttir Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Sjá meira
Bónusstig ef innflytjandi stingur putta í vatnið Ratleikur sem nemendur úr Verzlunarskóla Íslands stóðu fyrir á dögunum hefur vakið athygli. 14. febrúar 2013 15:12