Unglingur handtekinn fyrir að stela upplýsingum um Eið Smára 1. febrúar 2010 13:52 Eiður Smári fórnarlamb meints tölvuþrjóts.
Karlmaður á tvítugsaldri var handtekinn og yfirheyrður í síðustu viku vegna gruns um að hafa stolið trúnaðargögnum frá lögfræðingi Karls Wernessonar, eiganda Milestone ehf., og Eiðs Smára Guðjohnsen. Pilturinn á að hafa selt þær fjölmiðlum samkvæmt heimildum Vísis. Yfirlögregluþjónninn Friðrik Smári Björgvinsson staðfestir að mál af þessum toga sé til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er ljóst hvernig pilturinn, sem er sautján ára gamall samkvæmt heimildum Vísis, nálgaðist gögnin. Hann er hinsvegar grunaður um að hafa farið í leyfisleysi inni í tölvu lögfræðingsins Gunnars Gunnarssonar og afritað þar talsvert af gögnum. Gögnin sem um ræðir eru meðal annars um Sjóvá og eignarhaldsfélögin Vafning, Þátt, Svartháf og Skeggi ehf. Þá má einnig finna skammstöfunina ESG en leiða má líkur að því að það sé skammstöfun sem stendur fyrir fótboltamanninn Eið Smára Guðjohnsen en ítarlega umfjöllun var um hann og fjármál hans í DV fyrir nokkru. Eiður hefur kært ritstjóra DV og blaðamann þess fyrir umfjöllunina. Svo er einnig mappa sem heitir einfaldlega Steingrímur á meðal gagnanna sem á að hafa verið stolið. Sennilega varðar það Steingrím Wernesson hjá Milestone en hann komst síðast í kastljósið þegar DV sagði frá yfirheyrslum yfir honum hjá sérstökum saksóknara. Þá má einnig finna upplýsingar um Milestone ehf. og svo möppu sem ber heitið Flugskýlið. Athygli vekur að meðal gagnanna er myndband merkt Baugi en því er ekki lýst frekar. Yfirlögregluþjónn staðfestir að málið sé til rannsóknar en það er á frumstigum. Ekki fengust nánari upplýsingar um málið hjá lögreglunni. Ekki náðist í eiganda gagnanna, Gunnar Gunnarsson, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira