MH17

Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður
Rússnesk stjórnvöld eru ábyrg fyrir því að malasísk farþegaþota var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 með þeim afleiðingum að tæplega þrjú hundruð manns fórust. Alþjóðaflugmálastofnunin ákveður á næstu vikum hvers konar bætur þau þurfa að greiða.

Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni
Hópur Búlgara sem bjó í Bretlandi njósnaði fyrir Rússa í tæp þrjú ár og á þeim tímabili er hópurinn sagður hafa sett líf margra í hættu. Hópurinn stundaði njósnir víðsvegar um Evrópu, þar sem fólkið safnaði upplýsingum um fólk fyrir Rússa og ræddi meðal annars að myrða búlgarskan blaðamann sem kom að því að svipta hulunni af banatilræði rússneskra útsendara á Sergei Skripal.

Girkin dæmdur í fjögurra ára fangelsi
Igor Girkin, fyrrverandi yfirmaður í Leyniþjónustu Rússlands (FSB) og fyrrverandi leiðtogi aðskilnaðarsinna í Dónetsk í Úkraínu, hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir öfgar. Hann var árið 2022 dæmdur í fjarveru í lífstíðarfangelsi fyrir aðkomu hans að því þegar MH17, flugvél Malasyia Airlines, var skotin niður yfir austurhluta Úkraínu árið 2014.

Girkin handtekinn fyrir að gagnrýna Pútín
Igor Girkin, fyrrverandi yfirmaður í Leyniþjónustu Rússlands (FSB) og fyrrverandi leiðtogi aðskilnaðarsinna í Dónetsk í Úkraínu, var handtekinn í Moskvu í morgun. Girkin var einnig í fyrra dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir aðkomu hans að því þegar MH17, flugvél Malasyia Airlines, var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014.

Pútín hafi ákveðið að senda eldflaugina sem notuð var gegn MH17
Alþjóðlegt teymi rannsakenda segist hafa fundið sterkar vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði persónulega heimilað sendingu loftvarnarkerfis til aðskilnaðarsinna í Úkraínu sem notað var árið 2014 til að skjóta niður farþegaþotu frá Malasíu. Ólíklegt sé þó að hægt verði að sækja hann til saka.

Þrír sakfelldir fyrir að skjóta niður MH17
Þrír karlmenn voru í dag sakfelldir fyrir að hafa sprengt flugvél Malasyia Airlines er vélin flaug fyrir Úkraínu árið 2014. Fjórði maðurinn sem var einnig ákærður var sýknaður. Farþegar vélarinnar voru 298 talsins og létu þeir allir lífið.

Lögmönnum fjölskyldna þeirra sem fórust með MH17 ógnað
Lögfræðingar fjölskyldna fólks sem dó þegar flugvélin MH17 var skotin niður yfir Úkraínu hafa orðið fyrir ógnunum. Yfirvöld Hollands telja rússneska útsendarar á bakvið þær en réttarhöld standa nú yfir í Hollandi gegn mönnum frá Rússlandi og Úkraínu sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á ódæðinu.

MH17: Ferðast alltaf með bakpokann sem fylgdi syninum í hans hinstu för
Faðir fórnarlambs sem lést þegar MH17, farþegaflugvél Malaysian Airlines, var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 ferðast alltaf með bakpokann sem fylgdi syni hans í sinni hinstu för. Bakpokinn fannst nánast óskemmdur í braki vélarinnar.

Aðalmeðferð hafin vegna gröndunar MH17
Í gær hófst aðalmeðferð í máli hollenska ríkisins gegn fjórum sakborningum sem grunaðir eru um að hafa skotið niður Boeing 777 flugvél Flugfélags Malasíu.

Holland stefnir Rússlandi vegna hraps MH17
Hollensk yfirvöld hyggjast stefna Rússlandi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu vegna aðildar Rússa að hrapi vélar Malaysia Airlines MH17 yfir Úkraínu árið 2014.

Réttað vegna flugvélarinnar sem var skotin niður yfir Úkraínu
Enginn þeirra fjögurra manna sem taldir eru bera ábyrgð á því flugvél malasíska flugfélagsins Malaysia Airlines var skotin niður árið 2014 verður viðstaddur réttarhöld sem hófust í Hollandi í dag.

Segja Rússa hafa neitað að handtaka aðskilnaðarsinna vegna MH17
Yfirvöld í Rússlandi urðu ekki við beiðni hollenskra saksóknara um að úkraínskur maður sem er grunaður um aðild að því að flugvél Malaysia Airlines, MH17, var skotin niður yfir Úkraínu, yrði handtekinn og framseldur til Hollands.

MH17: Segja aðskilnaðarsinna hafa tekið við skipunum frá Rússum
Alþjóðlegt teymi rannsakenda sem skoðað hafa atvikið þegar malasíska flugvélin MH17 var skotin niður yfir austurhluta Úkraínu í júlí 2014 hafa opinberað upptökur símtala sem þeir segja vera á milli aðskilnaðarsinna í Úkraínu og embættismanna í Rússlandi. Upptökurnar segja rannsakendurnir að séu til marks um náið samstarf aðskilnaðarsinna við yfirvöld Rússlands.

Nafngreina fjóra ákærða í MH17-máli
Fjórir hafa verið ákærðir fyrir að hafa borið ábyrgð á að MH17, vél Malaysian Airlines, var grandað í Úkraínu árið 2014.

Opinbera rússneska njósnara
Löggæslu- og öryggisstofnanir Hollands hafa nafngreint og birt myndir af fjórum rússneskum mönnum sem þeir segja vera útsendara leyniþjónustu rússneska hersins, GRU.

Minntust MH17 fjórum árum seinna
Fjölskyldumeðlimir og vinir margra þeirra 298 sem dóu þegar MH17 var skotin niður yfir Úkraínu komu saman í Hollandi í dag

MH17: Segja Rússa ábyrga fyrir því að flugvélin var skotin niður
Allir þeir sem voru um borð í flugi MH17, eða alls 298 manns, fórust þegar vélinni var grandað. Hún var á leiðinni frá Amsterdam til Kuala Lumpur.

MH17: Segja flugskeytið hafa tilheyrt rússneska hernum
Flugskeytið sem grandaði malasísku flugvélinni sem var skotin niður yfir Úkraínu sumarið 2014 tilheyrði rússneska hernum.

Flugmaðurinn sem Rússar kenndu um hrap MH17 framdi sjálfsmorð
29 ára gamall úkraínskur flugmaður sem rússneskir embættismenn kenndu um að flugvél Malaysian Airlines var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 hefur framið sjálfsmorð.

MH17: Grunaðir verða sóttir til saka í Hollandi
Hollenska utanríkisráðuneytið staðfesti í morgun að áfram verði lögð áhersla á alþjóðlega samvinnu.

Segja rannsóknina anga af hlutdrægni og pólitík
Rússar segja rannsakendur MH17 atviksins hunsa "afgerandi sannanir“ þeirra.

MH17: Röktu slóð Buk-kerfisins til Rússlands
Rannsakendur eru sannfærðir um að MH17 hafi verið skotin niður af aðskilnaðarsinnum í Úkraínu með rússnesku flugskeyti.

Greina frá því hvaðan MH17 var skotin niður
Talið er að flugskeytinu sem grandaði malasísku farþegaflugvélinni hafi verið skotið frá yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna.

Ættingjar höfða mál gegn Putin vegna MH17
Lögmannafyrirtæki sem einnig vann fyrir ættingja fórnarlamba í Lockerbie árásinni sér um málið.

MH17: Framleiðandi BUK segir að slík eldflaug hafi ekki verið í vopnabúri rússneska hersins
Framleiðandi eldflaugakerfisins segir að rannsóknir fyrirtækisins bendi til að eldri gerð af BUK-eldflauginni hafi grandað MH17 í júlí 2014.

Eldflaug af rússneskri gerð grandaði MH17
Bæði rússneski herinn og sá úkraínski notast við hina svokölluðu BUK-eldflaug sem grandaði MH17 í júlí 2014

Í beinni: Hollendingar kynna niðurstöður rannsóknar á flugi MH17
Hollensk rannsóknarnefnd kynnir niðurstöður rannsóknar sinnar á flugi MH17 sem var skotið niður yfir Úkraínu í júlí 2014.

Nefndin sem rannsakar MH17 skilar skýrslu í dag
Munu líklega ekki taka afstöðu til þess hver skaut vélina niður heldur aðeins af hverju hún brotlenti.

Brot úr „rússnesku eldflaugakerfi“ finnast þar sem MH17 brotlenti
Hópurinn sem rannsakar málið segir mögulegt að brotin séu úr rússnesku Buk-eldflaugakerfi.

Rússar beita neitunarvaldi gegn því að sérstökum MH17-dómstól verði komið á
Ellefu af þeim fimmtán ríkjum sem eiga nú sæti í öryggisráðinu greiddu atkvæði með tillögu stjórnvalda í Malasíu, Ástralíu, Hollands, Belgíu og Úkraínu.