Dagur íslenskrar náttúru

Fréttamynd

Hlaut Náttúru­verndar­viður­kenningu Sig­ríðar í Bratt­holti

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, afhenti í gær Andra Snæ Magnasyni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Viðurkenningin er veitt á Degi íslenskrar náttúru einstaklingi sem unnið hefur markvert starf á sviði náttúruverndar og var þetta í sautjánda sinn sem hún var afhent.

Innlent
Fréttamynd

Blendnar til­finningar á Degi ís­lenskrar náttúru

Haldið er upp á Dag íslenskrar náttúru í dag, sem framkvæmdastjóri Landverndar segir að sé jafnan fagnaðarefni. Í ár séu tilfinningar hins vegar blendnar vegna svikinna loforða stjórnmálamanna í leyfisveitingum fiskeldisfyrirtækja, uppbyggingu vindorkuvera og umdeildra orða umhverfisráðherra, sem sagðist í ræðu í gær telja það „trömpískt“ að sjá ekki fegurð í vindmyllunum.

Innlent
Fréttamynd

Við erum náttúran – náttúran er við

Við tölum gjarnan um náttúruna eins og hún sé eitthvað fyrir utan okkur. Við þurfum að „vernda náttúruna“, sem er vissulega rétt. Í slíkri orðræðu gleymist þó stundum mikilvæg staðreynd: Við erum sjálf hluti af náttúrunni. Við erum náttúran.

Skoðun
Fréttamynd

Vernd náttúrunnar er á­kvörðun

Vernd náttúru er ákvörðun. Ákvörðun sem getur verið duttlungum háð sé hún ekki tryggð í lögum. Í gær var dagur íslenskrar náttúru, og því við hæfi að við stöldrum við og spyrjum okkur: Hvernig viljum við að ákvarðanir sem varða náttúruna séu teknar?

Skoðun
Fréttamynd

Kallar eftir frelsun bænda

Daði Már Kristófersson prófessor í umhverfis- og auðlindafræði segir að aukin jarðrækt, grænmetis og annarra afurða, geti skipt sköpum í loftslagsmálum í framtíðinni en þá þurfi að frelsa bændur undan regluverki. Enginn mælanlegur árangur er af loftslagsaðgerðum stjórnvalda þrátt fyrir metnaðarfull áform þeirra að mati Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings.

Innlent