Hjörvar Sigurðsson

Fréttamynd

Gervi­greindar­skrif Hall­dórs Jör­gen Olesen

Þeir sem hafa fylgst vel með skoðanagreinum á Vísi og víðar undanfarnar vikur ættu að þekkja Halldór Jörgen Olesen. Hann birtir reglulega pistla þar sem markmiðið er að sannfæra lesanda að kjósa að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið í ágúst.

Skoðun
Fréttamynd

Börn á krossurum á gang­stéttum höfuð­borgar­svæðisins

Nýliðna helgi var ég gangandi út úr verslun Bónus þegar ég var næstum keyrður niður af svörtum krossara. Það munaði sentímetrum. Hann var á eflaust u.þ.b. 60 km/klst. Ökumaðurinn var unglingur og ekki í hefðbundnum hlífðarfatnaði. Ég horfði á eftir honum keyra niður gangstéttina þar sem hann prjónaði með vinum sínum.

Skoðun
Fréttamynd

Mis­skilningur: RÚV, Silfrið og meint hlut­drægni

Í kjölfar þess að RÚV kynnti gestaval fyrir þátt Silfursins þann 8. júní spratt upp hávær gagnrýni. Beindist hún að meintri hlutdrægni af hálfu RÚV, en gagnrýnendur fullyrtu að allir viðmælendurnir væru sömu skoðunnar hvað varðar þjóðaratkvæðagreiðslu um upphaf aðildarviðræðna við Evrópusambandið, eða að þjóðin ætti að ganga til slíkra viðræðna.

Skoðun
Fréttamynd

Gegn regn­boganum: Hug­mynda­fræði, um­burðar­lyndi og frjáls­lyndi

Tákn eiga það til að eignast sjálfstæða tilveru óháð vilja þess sem táknið kynnir. Nýir aðilar tileinka sér táknið í nýjum aðstæðum og nýjum málefnum og upphaflegur kynnir táknsins missir stjórn á því. Hugmyndir þróast sömuleiðis með tímanum. Tákn hugmyndar kann því að skiljast á einn hátt á einum tímapunkti en annan hátt á öðrum tímapunkti vegna þess að undirliggjandi hugmynd hefur breyst.

Skoðun
Fréttamynd

Ís­lensk ofbeldismenning og réttarríkið

Á Íslandi þrífst ákveðin ofbeldismenning. Samfélagsmiðlar hafa gert það að verkum að auðveldara en nokkurn tíman áður er fyrir andfélagslega einstaklinga að hópa sig saman og espa upp reiðina og hefnigirnina í hvort öðru þar til upp úr sýður.

Skoðun
Fréttamynd

Mál­frelsi, meið­yrði og mútugreiðslur

„Tekið er fram að tjáningarfrelsi hennar sé ekki heft heldur sé henni frjálst „að viðhafa hver þau ósannindi sem henni hugnast“. Hins vegar verði hún að ábyrgjast þau fyrir dómi.“ [1]

Skoðun
Fréttamynd

Þor­gerður Katrín treystir ekki þjóðinni

Ég hef óbeit á því að beita popúlískum málflutning eins og þeim sem einkennir titil þessarar greinar. Þó finn ég mig knúinn til þess vegna þess að þetta er því miður planið sem utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín, hefur markvisst ákveðið að halda umræðunni á.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað gerist ef kosið verður að halda á­fram við­ræðum?

Mikil umræða hefur verið uppi á síðkastið um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir sem sannfærðir eru um ágæti Evrópusambandsaðildar benda á meinta kosti hennar og þeir sem sannfærðir eru um annmarka Evrópusambandsaðildar benda á meinta galla hennar. Þeir sem enga sterka skoðun hafa kvarta undan upplýsingaóreiðu og áróðri, oft á sama tíma og þeir halda sjálfir fram ósannindum sem þeir í einlægni trúa.

Skoðun
Fréttamynd

Mál­frelsi

Ég varð fyrst var við áhyggjuverða þróun hvað varðar málsfrelsi í nærumhverfi Íslands í kringum 2018. Þá gerðist það að Skoti að nafninu Mark Meechan — betur þekktur undir hinu skrautlega dulnefni Count Dankula — hlóð upp myndbandi á YouTube.

Skoðun
Fréttamynd

Blóðugar af­leiðingar lyga

Hverjar eru afleiðingar þess að ljúga? Að ýkja? Að afmennska og skrímslavæða? Undanfarin ár hafa minnt okkur miskunnarlaust á að afleiðing þess er ofbeldi og blóðsúthellingar.

Skoðun
Fréttamynd

Við lifum ekki á tíma fas­isma

Á undanförnum árum hefur víða um hinn vestræna heim átt sér stað sú óhugnanlega þróun að gripið er í síauknum mæli til gífuryrða til að lýsa því sem lýsandi mislíkar. Fasismi, ásamt rasisma, eru þau gífuryrði sem mér hefur þótt algengust meðal þeirra til hverra þróunin hefur náð.

Skoðun