Landslið karla í handbolta

Gunnar: Ákveðinn léttir að klára þetta verkefni
Ísland vann sannfærandi sjö marka sigur á Eistlandi 30-27. Þetta var síðasti leikurinn í undankeppni EM 2024. Þetta var síðasti leikur Gunnars Magnússonar í þjálfarateymi Íslands og Gunnar var spenntur fyrir framhaldinu.

Sigvaldi Björn um mögulegan landsliðsþjálfara Íslands: „Berge er geggjaður þjálfari“
„Við mættum allir vel tilbúnir til leiks og kláruðum þetta bara. Þetta var leikur sem þurfti að vinnast og við gerðum það,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handbolta, um sigur liðsins á Ísrael. Ísland mætir Eistlandi klukkan 16.00 í Laugardalshöll.

Hefur ekki rætt við þjálfarann sinn um hvort hann taki við íslenska landsliðinu
Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason var nokkuð sáttur með spilamennsku íslenska landsliðsins í handbolta er liðið vann öruggan sigur gegn Ísrael í undankeppni EM síðastliðinn fimmtudag.

„Hér eru bara menn sem dreymir um að spila á Ólympíuleikum“
„Ég var ánægður með frammistöðuna. Þetta var góður fyrri hálfleikur og við tókum frumkvæðið strax í leiknum og hleyptum þeim ekkert inn í leikinn,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta um leik liðsins gegn Ísrael í vikunni eftir æfingu liðsins í dag.

„Er búið hjá okkur núna og við höfum ekkert meira um þetta að segja“
„Við spiluðum þetta vel, það opnaðist vel fyrir mig. Vildu ekkert hleypa Óðni [Þór Ríkharðssyni] inn svo þetta endaði allt á mér,“ sagði landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, Donni, léttur um sigur Íslands í Ísrael á dögunum. Hann verður með íslenska liðinu sem mætir Eistlandi í Laugardalshöll á morgun, sunnudag.

Fullyrðir að Berge hafi hafnað landsliðsþjálfarastarfinu
Arnar Daði Arnarsson, stjórnandi handboltahlaðvarpsins Handkastsins og sérfræðingur Seinni bylgjunnar, fullyrðir að hann hafi heimildir fyrir því að Christian Berge hafi hafnað því að taka við sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta.

Umfjöllun: Ísrael - Ísland 26-37 | Ísland á EM eftir sannfærandi sigur í Tel Aviv
Ísland vann sannfærandi ellefu marka sigur á Ísrael í Tel Aviv 26-37. Sigurinn tryggði Íslandi farseðilinn á EM í Þýskalandi 2024.

Verða passa sig á útivallargrýlunni sem hefur oft strítt strákunum okkar
Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar í dag mikilvægan útileik á móti Ísrael í undankeppni Evrópumótsins.

„Þurfum aðeins að breyta kúltúrnum“
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Ísrael í síðasta útileik liðsins í undankeppni EM í Tel Aviv í dag.

„Gott fyrir mig að fá þetta mótlæti“
Landsliðsmaðurinn Ýmir Örn Gíslason segir að það hafi verið rétt skref fyrir sig á sínum tíma að fara úr efstu deild á Íslandi til stórliðs Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi.

„Ef við ætlum að taka Berge eða Krickau er eins gott að þeir brenni fyrir þetta“
Ólafur Stefánsson er ekkert sérstaklega spenntur fyrir því að fá erlendan þjálfara fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta.

Strákarnir okkar þurfa að vera á tánum í Drive Inn Arena
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er að undirbúa sig fyrir síðasta útileik sinn í undankeppni EM sem er í Ísrael.

„Ef hann er alvöru stjórnandi tekur hann púlsinn á þeim sem hafa alla þekkinguna“
Ólafur Stefánsson vill að formaður HSÍ leiti álits hjá sér fróðara fólki um handbolta í ráðningarferlinu á nýjum þjálfara karlalandsliðsins í handbolta.

Óli Stef: Dagur og Snorri Steinn eru báðir í mínu fyrsta sæti
Ólafur Stefánsson vill fá fyrrverandi samherja sína í handboltalandsliðinu, Dag Sigurðsson og Snorra Stein Guðjónsson, til að taka við því.

„Kannski þarf hreyfingin að fara í naflaskoðun“
„Mér finnst þetta búið að taka alltof langan tíma í fyrsta lagi,“ segir Ásgeir Örn Hallgrímsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í handbolta sem nú þjálfar Hauka í Olís deild karla, um leit Handknattleikssambands Íslands að nýjum þjálfara fyrir karlalandsliðið.

Berge staðfestir áhuga frá Íslandi en Krickau vill ekki tjá sig
Christian Berge, þjálfari norska verðandi ofurliðsins Kolstad, hefur staðfest þann orðróm að hann sé á blaði HSÍ yfir mögulega landsliðsþjálfara Íslands í handbolta. Nicolej Krickau, þjálfari danska liðsins GOG, hefur hins vegar ekki viljað tjá sig um málið.

Segja HSÍ halda Val í gíslingu: „Þetta eru galin vinnubrögð“
Munu ummæli Dags Sigurðssonar um forráðamenn HSÍ fæla erlenda þjálfara frá starfi landsliðsþjálfara Íslands? Þetta var meðal þess sem Arnar Daði Arnarsson og gestir hans veltu fyrir sér í Handkastinu. Þeir sögðu einnig að HSÍ héldi Val í gíslingu.

Dagur og Snorri voru til í að stýra landsliðinu saman
Það hefur gengið hægt hjá forkólfum Handknattleikssambands Íslands að finna arftaka Guðmundar Guðmundssonar í starf landsliðsþjálfara karla. Stjórn sambandsins virðist hafa gefið sér góðan tíma í verkefnið en seinagangurinn hefur þegar orðið til þess að góðir kostir hafa verið útilokaðir.

Fundurinn með HSÍ vísir að leikriti: „Ekki að fara að vinna með þessum mönnum“
Það virðist orðið útilokað að Dagur Sigurðsson verði næsti landsliðsþjálfari karla í handbolta. Hann var fyrsti maðurinn sem að forkólfar HSÍ ræddu við eftir brotthvarf Guðmundar Guðmundssonar en segir fund með þeim hafa minnt á leikþátt og hefur ekki áhuga á að vinna með þeim.

„Þetta lá þungt á mér“
Gunnar Magnússon, landsliðsþjálfari karla í handbolta, segir að mál þeirra Björgvins Páls Gústavssonar og Kristjáns Arnar Kristjánssonar hafi legið þungt á sér. Mikill léttir sé að lausn hafi fundist.

Fann vilja hjá Björgvini og Donna til að leysa málið
Gunnar Magnússon, landsliðsþjálfari karla í handbolta, segir hafa verið einfalt að leysa deilu Björgvins Páls Gústavssonar og Kristjáns Arnar Kristjánssonar, sem báðir hafi verið allir af vilja gerðir að finna lausn. Þeir eru báðir í landsliðshópi Íslands fyrir komandi verkefni í undankeppni EM í janúar.

Björgvin og Kristján báðir í landsliðinu
Kristján Örn Kristjánsson og Björgvin Páll Gústavsson eru báðir í landsliðshópnum sem valinn hefur verið fyrir síðustu leikina í undankeppni EM í handbolta. Einn nýliði er í hópnum.

Hafði litlar væntingar til Rúnars en segir hann nú hárrétta manninn
Viggó Kristjánsson segir það hafa komið sér á óvart þegar Rúnar Sigtryggsson var ráðinn sem þjálfari hans hjá þýska handknattleiksliðinu Leipzig. Hann hafi ekkert vitað við hverju mætti búast við af Rúnari en er hæstánægður undir hans stjórn og ákvað að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Fékk batakveðjur frá Arnari nokkrum dögum áður en hann hvarf
Kristján Örn Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur hugsað mikið til síns gamla þjálfara Arnars Gunnarssonar undanfarið eftir að Arnar hvarf.

Björgvin Páll: Íhugaði í gærkvöldi að spila ekki gegn Haukum
Valur tapaði gegn Haukum 31-36. Björgvin Páll Gústavsson, markmaður Vals, var svekktur með fjórða tap Vals í röð. Björgvin Páll hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarna daga vegna samskipta við Kristján Örn Kristjánsson.

Björgvin gefur ekki kost á sér í landsliðið vegna samskipta hans við Kristján
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska karlalandsliðsins í handbolta, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í næsta landsliðsverkefni eftir að samskipti hans við Kristján Örn Kristjánsson, liðsfélaga hans hjá landsliðinu.

Birtir skilaboðin frá Björgvini: „Í fullri hreinskilni er þetta viðtal til skammar“
Kristján Örn Kristjánsson hefur birt skilaboðin sem Björgvin Páll Gústavsson sendi honum í aðdraganda leiks Vals og PAUC í Evrópudeild karla í handbolta á dögunum og staðfestir að hafa kvartað til EHF og Vals vegna hegðunar Björgvins.

„Alltaf meira en til í að spila fyrir íslenska landsliðið“
„Ef að kallið kemur þá segi ég já, hundrað prósent,“ segir Kristján Örn Kristjánsson aðspurður hvort að hann gefi kost á sér í íslenska landsliðið í lok apríl þegar liðið lýkur undankeppni EM með tveimur leikjum. Hann missti af síðustu landsleikjum vegna andlegra veikinda.

Björgvin sendi skilaboðin: Vildi að Kristján setti heilsuna í fyrsta sæti
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals og liðsfélagi Kristjáns Arnar Kristjánssonar í íslenska landsliðinu, hefur greint frá því að hann hafi sent skilaboðin sem Kristján lýsti á Vísi sem niðrandi skilaboðum í sinn garð, eftir glímu hans við kulnun í starfi.

Kristján fékk niðrandi skilaboð frá Valsara: „Eins og að sparka í liggjandi mann“
Kristján Örn Kristjánsson fékk send niðrandi skilaboð frá ónefndum leikmanni Vals í aðdraganda þess að hann spilaði gegn Val í Evrópudeildinni í handbolta í síðasta mánuði, skömmu eftir að hafa greint frá því að hann glímdi við kulnun.