
Brúðkaup

Jennifer Lopez og Josh Duhamel í nýrri rómantískri gamanmynd
Þúsundþjalasmiðurinn Jennifer Lopez fer með aðalhlutverkið í nýrri rómantískri gamanmynd ásamt leikaranum Josh Duhamel.

„Vorum öll í sjöunda himni og með gæsahúð“
Uppskrifta- og bókahöfundurinn Linda Ben giftist kærasta sínum til þrettán ára, Ragnari Einarssyni, á Ítalíu í vikunni. Saman eiga þau tvö börn. Lífið á Vísi náði tali af henni þar sem hún nýtur lífsins í sólinni á bleiku skýi eftir stóra daginn.

Linda Ben gifti sig á Ítalíu: „Draumadagur lífs míns“
Matarbloggarinn og bókahöfundurinn Linda Benediktsdóttir gekk að eiga unnusta sinn Ragnar Einarsson í fallegri athöfn.

Giftu sig með sælgætishringum í Las Vegas
Danskennarinn og fasteignasalinn Tara Sif Birgisdóttir og lögfræðingurinn Elfar Elí Schweitz Jakobsson eru orðin hjón. Parið gifti sig í skrautlegri kapellu í borginni Las Vegas fyrr á árinu.

Stympingar í Langholtshverfi eftir ólöglega flugeldasýningu
Fjöldinn allur af kvörtunum rigndi yfir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi vegna ólöglegrar flugeldasýningar sem haldin var í tengslum við brúðkaup í Skipasundi. Óánægja á meðal nágranna í Langholtshverfi leiddi að lokum til stympinga. Íbúi í Langholtshverfi biðlar til nágranna að sýna náungakærleika.

Berglind „Icey“ og Örn gengin í það heilaga
Athafnaparið Berglind „Icey“ og Örn Kjartansson giftu sig í Reykjavík um helgina. Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng fyrir hjónin og veislugesti þeirra.

Jón Kalman og Sigríður Hagalín orðin hjón
Rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Hagalín Björnsdóttir gengu í það heilaga í gær. Þau fögnuðu með vinum og fjölskyldu í Iðnó í gærkvöldi.

Inga Sæland gifti sig aftur og braut tvö rifbein í sumar: „Það var greinilega ekki hægt að skilja við þennan kall“
Inga Sæland og Óli Már Guðmundsson giftu sig í ágúst eftir að hafa frestað gifitingunni í fimm ár. Þetta er í annað sinn sem þau hjónin gifta sig en þau giftust fyrst árið 1977. Þau skildu um aldamótin eftir erfiðleikatímabil en eru nú endanlega sameinuð að nýju.

Sarah Hyland og Wells Adams gátu loksins gift sig
Leikkonan Sarah Hyland og Wells Adams, uppáhalds barþjónn Bachelor Nation eru loksins gift eftir að hafa þurft að fresta brúðkaupinu sínu í tvö ár. Modern Family fjölskyldan hennar Söruh var á svæðinu ásamt fjölskyldu og vinum parsins.

Giftu sig í undirgöngum
Glódís Guðgeirsdóttir, jarðfræðingur og plötusnúður, og Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður og athafnamaður, giftust hvort öðru við fallega athöfn á Flateyri síðastliðna helgi þar sem vinir og fjölskylda fögnuðu ástinni með þeim fram á rauða nótt.

Edda Hermanns og Ríkharður Daða héldu draumabrúðkaup á Ítalíu
Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka, og Ríkharður Daðason, fjárfestir og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu héldu draumabrúðkaup á Ítalíu. Birgitta Haukdal, Ragnhildur Gísladóttir og Andri Guðmundsson sáu um að skemmta gestum í veislunni.

Myndaveisla: Brúðkaup Þórhildar Sunnu og Rafaels Orpel
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata giftist Rafael Orpel við fallega athöfn undir stjórn Arnars Snæberg hjá Siðmennt síðastliðinn laugardag. Sunna skartaði bleikum og gylltum brúðarkjól sem hún var í skýjunum með og tengist náið ævagamalli ást hennar á fatnaði og sögum frá 18. öldinni. Blaðamaður tók púlsinn á Sunnu og fékk að heyra nánar frá draumadeginum.

Giftu sig degi of snemma
Þýsku hjónin Julija og Michael Domaschke voru gefin saman við Skógafoss á þriðjudaginn í síðustu viku. Hjónin trúlofuðu sig einnig hér á landi og fór Michael á skeljarnar við eldgosið í Fagradalsfjalli í júlí á síðasta ári en þau eru bæði mjög áhugasöm um eldgos og eldfjöll. Daginn eftir að þau giftu sig hóf að gjósa í Meradölum.

Emmsjé Gauti og Jovana gengin í það heilaga
Gauti Þeyr Másson og Jovana Schally giftu sig við hátíðlega athöfn í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag. Parið trúlofaði sig árið 2019.

Georg á Kalda bar og Anaïs Barthe: Brúðkaupsdraumur í Suður-Frakklandi
George Leite eigandi Kalda bars giftist ástinni sinni Anaïs Barthe Leite í síðustu viku við fallega athöfn í Suður-Frakklandi. Lífið á Vísi tók púlsinn á honum og fékk að heyra meira um stóra daginn.

Ilmur og Magnús giftu sig í Ásbyrgi
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og Magnús Viðar Sigurðsson framleiðandi giftu sig um helgina við fallega athöfn í Skúlagarði í Ásbyrgi þar sem veðrið lék við gesti og dansað var fram á bjarta nóttina.

Fræg pör sem giftu sig 4. júlí
Í gær var þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna, hinn 4.júlí en hann er einnig brúðkaupsdagur margra frægra para sem völdu daginn til þess að gera að sínum.

Lindsay Lohan gifti sig
Lindsay Lohan hefur gengið í það heilaga með fjármálamanninum Bader Shammas eftir að hafa tilkynnt um trúlofun þeirra í nóvember á síðasta ári.

Stjörnulífið: Útskriftir, brúðkaup og stelpurnar okkar
Vikan var stútfull af stórum áföngum í Stjörnulífinu þar sem sumir nældu sér í gráðu og aðrir héldu brúðkaup. Stelpurnar okkar eru tilbúnar í EM og listafólk landsins skín skært.

Linda Ben og Ragnar ætla að gifta sig á Ítalíu í haust
Áhrifavaldurinn og rithöfundurinn Linda Ben og unnusti hennar Ragnar Einarsson ætla að gifta sig í haust úti á Ítalíu eftir þrettán ára ástarsamband og sex ára trúlofun. Saman eiga þau tvö börn og búa saman í Mosfellsbænum.

Lofsyngur Britney þrátt fyrir að hafa ekki fengið boð í brúðkaupið
Lynne Spears, móður Britney Spears, var ekki boðið í brúðkaup dóttur sinnar sem fram fór um helgina. Þrátt fyrir það fann hún sig knúna til að lofsyngja dóttur sína í ummælum undir Instagram-færslu Britney úr brúðkaupinu. Hvorki Jamie Spears, föður Britney, né Jamie Lynn Spears, systur hennar, var heldur boðið.

Britney Spears og Sam áttu drauma brúðkaupsdag þrátt fyrir innbrotið
Poppstjarnan Britney Spears giftist ástinni sinni Sam Asghari í gær við athöfn sem fór fram á heimili hennar en líkt og greint hefur verið frá braust fyrrverandi eiginmaður hennar inn í brúðkaupið. Synir hennar Sean Preston og Jayden James voru ekki viðstaddir en gáfu út yfirlýsingu um að þeir væru ánægður fyrir hennar hönd.

Kourtney og Travis gift: Dolce & Gabbana styrktaraðili þriðja brúðkaupsins á Ítalíu
Um helgina átti sér stað þriðja og síðasta brúðkaup Kourtney Kardashian og Travis Barker. Þema dagsins virðist hafa verið gothic-glam og klæddist Kourtney stuttum Dolce & Gabbana korselett kjól og voru dætur þeirra blómameyjar.

Gifti sig í Dolce & Gabbana kjól
Kourtney Kardashian hefur nú birt myndir frá því hún giftist Travis Barker aftur um helgina. Eins og við fjölluðum um í gær giftu þau sig löglega í Santa Barbara í lítilli athöfn í ráðhúsinu.

Nýtt hjá Boozt - Occasion Shop
Boozt kom inn á íslenskan markað með hvelli síðasta sumar og heillaði íslenska viðskiptavini upp úr skónum með stuttum afhendingartíma, frábæru vöruúrvali og hagstæðu verði.

Þótti of ung til að giftast en saumaði sér þá brúðarkjól
„Það var ung stúlka sem vildi gifta sig og var ekki nema sautján ára. Hún þótti aðeins of ung og var sagt að hún yrði að bíða til átján ára aldurs. Þá settist hún bara niður og fór að sauma sér brúðarkjól.“

Tuttugasta brúðkaupið í dag klukkan 22:00 þann 22.02 2022
Þrátt fyrir leiðindaveður nýttu sér margir daginn til að láta gefa sig saman. Í Grafarvogskirkju var haldið hálfgert brúðkaupsmaraþon sem hófst á hádegi og stendur þar til í kvöld. Prestur segir dagsetninguna einstaka.

Megan Fox og Machine Gun Kelly trúlofuðu sig og drukku svo blóð hvort annars
Megan Fox tilkynnti á Instagram í nótt að Machine Gun Kelly, sem heitir fullu nafni Colson Baker, hefði farið á skeljarnar og beðið hennar. Myndband af bónorðinu hefur vakið athygli en þá aðallega fyrir textann sem fylgdi því.

Birgitta Haukdal mætti óvænt í brúðkaupið: „Þetta var alveg hápunkturinn“
Þeim Sonju Björgu og Kolbrúnu Helgu brá heldur betur í brún þegar Birgitta Haukdal söngkona og Vignir Snær Sigfússon gítarleikari mættu óvænt í brúðkaupið þeirra í gær. Hjónin nýgiftu eru forfallnir Írafárs-aðdáendur og vinkona þeirra ákvað að koma þeim á óvart.

Brúðkaup ársins: Pörin sem giftu sig í miðjum heimsfaraldri
Það var óvenjulítið um stór brúðkaup á árinu vegna heimsfaraldursins. Það voru þó nokkur heppin pör sem náðu að láta pússa sig saman.