

Ekki er gefið að skattgreiðslur minnki eða hverfi þótt hlutabréfaeign sé geymd í skattaparadísum. Sé eignin ekki talin fram til skatts er hins vegar um skattsvik að ræða.
Hrognin í loðnunni sem veiðist nú við Íslandsstrendur eru verðmæt afurð. Helstu kaupendur eru Rússar og Japanar. Vinsældir sushis í heiminum hafa aukið eftirspurnina.
Íslensk orkufyrirtæki, verkfræðistofur og fleiri aðilar hafa mikla þekkingu á því að bjóða í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa og tækifæri á því sviði eru mörg.
Flestir fara á Vox í hádeginu, samkvæmt könnun Markaðarins. Sushi-ið vinnur á, segir matreiðslumeistarinn.
Bandaríski hugbúnaðarfræðingurinn Ken Rubin telur að hundruð milljarða, jafnvel þúsundir, fari forgörðum í bandarískri hugbúnaðargerð vegna oftrúar á langtímaáætlanir. Kostnaður næstum tvöfaldaðist í yfir helmingi hugbúnaðarverkefna í Bandaríkjunum um miðjan síðasta áratug.
Tekjuskattar draga úr vinnuframlagi einstaklinga og um leið þjóðarframleiðslu. Hagfræðiprófessor segir að fyrir vikið sé minna til skiptanna og það hafi áhrif á lífskjör allra.
Samtök atvinnulífsins telja að fjölga þurfi konum í stjórnunarstöðum í atvinnulífinu. Samtökin benda á að aðalfundir og stjórnarkjör séu fram undan í mörgum fyrirtækjum. Hlutfall kvenna í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins sé innan við tíu prósent. Ljóst sé að þar halli verulega á konur.
„Við stefnum að því að stofna hlutafélag um innflutning á norskum fósturvísum og sæði,“ segir Jón Gíslason, formaður Nautgriparæktarfélags Íslands.
Sama viðmiðunaraflamark hefur verið lagt til um fyrirkomulag úthafskarfaveiða í ár. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi aðildarríkja Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í Kaupmannahöfn fyrr í þessum mánuði.
Armbandsúr eru af öllum stærðum og gerðum. Óli Kristján Ármannsson komst að því í spjalli við tvo af helstu úrasölum landsins að í viðskiptalífinu er í auknum mæli horft til armbandsúra við fyrstu kynni, ekki síður en til þess hvort viðkomandi sé í burstuðum skóm og snyrtilega til fara.
„Það er óvíst að þetta nái flugi ef þetta verða bara innbyrðis kaup milli heildsala,“ segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Landsnet stefnir að því að í haust hefjist heildsölumarkaður með raforku.
Í Handverkshúsinu í Hafnarfirði má finna allt sem þarf til handverks; allt frá námskeiðum til verkfæra. Jón Skaftason spjallaði við Þorstein Jónsson eiganda.
„Vatnið er komið til að vera. Þetta er ekki lengur spurning um hvort heldur hversu stórt það verður,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Water Holdings, sem selur átappað vatn á flöskum undir merkjum Icelandic Glacial úti um allan heim.
„Varla fæst staðist að svipta menn þessum rétti afturvirkt,“ sagði Sigurjón Högnason, lögfræðingur hjá KPMG, um gildistöku frumvarps um söluhagnað á hlutabréfum, á skattaráðstefnu fyrirtækisins sem haldin var á Grand hóteli á dögunum.
„Ekki er fyrirsjáanlegt að mörg kúabú verði rekstrarhæf miðað við núverandi mjólkurverð,“ segir Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda. „Þetta er því miður staðreyndin.“ Hann segir bændur uggandi yfir stöðunni og þeir spyrji hvenær þeir fái leiðréttingar á mjólkurverði til sín, vegna hækkana á kostnaði við framleiðsluna. „Þær eiga sér sennilega ekkert fordæmi.“
Fimm þúsund störf hafa horfið úr fiskvinnslunni undanfarin tíu ár. Konum í fiskvinnslu fækkar meira en körlum. Yfir tíu prósent fiskvinnslufólks hafa misst vinnuna á fiskveiðiárinu.
Fyrirtæki eru almennt mjög sveigjanleg þegar kemur að barnafólki. Afar og ömmur eru mikilvægir bakhjarlar starfsfólks.
„Þegar við skoðum neyslu, þá spyrjum við ekki hvernig hún er fjármögnuð,“ segir Guðrún R. Jónsdóttir, í vísitöludeild Hagstofunnar. Samkvæmt rannsókn Hagstofunnar á útgjöldum heimilanna árin 2004 til 2006 eyðir helmingur heimila meiru en hann aflar.
Fyrirtæki verða að vera vakandi fyrir því að halda tryggð við viðskiptavini sína og sjá hag í því að efla viðskiptatryggð með ýmsu móti," segir Júlíus Valdimarsson, framkvæmdastjóri Lausna, markaðsfyrirtækis sem sérhæfir sig í aðstoð við fyrirtæki, stofnanir og aðra við að greina þarfir og væntingar viðskiptavina. Lausnir luku nýverið við könnun á svonefndri viðskiptatryggð.
Landsbankinn ætlar að bjóða meginlandsbúum sams konar innlánsreikninga og slegið hafa í gegn í Bretlandi.
Eignarhald í skráðum félögum er þröngt. Eignarhlutur einstaklinga hefur lækkað. Virðingarleysi við reglur vandamál.
Fulltrúar frá tólf íslenskum fyrirtækjum hittust á tveggja daga vinnufundi í London í síðustu viku. Markaði fundurinn upphafið á þátttöku fyrirtækjanna í Útstími, verkefnis á vegum Útflutningsráðs.
Sérstakir farsímar undir ákveðnum tískumerkjum þykja einkar vinsælir hjá konum þegar farið er út á lífið.
Össur hf. hefur selt kauprétt að húsnæði félagsins að Grjóthálsi 5 fyrir 7,9 milljónir Bandaríkjadala. Það nemur rúmum 489 milljónum íslenskra króna. „Við höfum verið að leigja húsnæðið hér í tíu ár, frá því árið 1997. Í þeim leigusamningi var kaupréttarákvæði sem miðaðist við markaðsverð þess tíma. Síðan hefur það hækkað mjög í virði. Því var mjög hagstætt fyrir okkur að selja kaupréttinn,“ segir Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill Össurar.
Yfir fjögur hundruð fjárfestar, forstjórar og aðrir gestir hlýddu á orð Al Gore á orku- og umhverfisráðstefnu Merrion Capital, dótturfélags Landsbankans, í Dublin hinn 1. desember. Umhverfisvernd verður eitt af mikilvægustu verkefnum bankans á komandi árum, samkvæmt tilkynningu.
„Uppáhaldið mitt í dag er Sunnudagskrossgáta Morgunblaðsins. Alveg frábær heilaleikfimi og skemmtun,“ segir Áslaug Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri veffyrirtækisins Sjá.
Hinn kaldi og ferski Mojito er vinsælasti drykkur beggja kynja. Menn og konur tóku drykknum hikandi í upphafi.
„Það er ekki eins og við viljum ekki aukið samstarf við hið opinbera. Það er bara sjálfsbjargarviðleitni hjá okkur að afla tekna annars staðar frá,“ segir Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahússins. Á hann þar við þá þróun að langstærstur hluti tekna Alþjóðahússins kemur frá daglegri starfsemi, svo sem túlka- og þýðingaþjónustu, íslenskukennslu og í gegnum ársfjórðungslegt rit sem fjármagnað er með auglýsingum.
Fjármálaeftirlitið (FME) tók upp fimmtíu fleiri mál frá miðju síðasta ári og fram á mitt þetta ár, miðað við árið á undan. Athugasemdum, ábendingum og kröfum um úrbætur fjölgaði um þriðjung milli ára.
Jónas Haralz áttaði sig á því árið 1984 að eðlileg bankastarfsemi gæti ekki komist á hér á landi í skjóli ríkisins. Það tók tæp tuttugu ár að vinna þeirri hugmynd fylgi.