
Ástin á götunni

Breiðablik hefði endað á toppnum ef farið hefði verið eftir tölfræðinni
Ef aðeins væri farið eftir tölfræði Pepsi Max deildar karla í sumar hefði Breiðablik endað sem sigurvegari þar líkt og í Pepsi Max deild kvenna. Liðið hefði átt að skora flest mörk í deildinni ásamt því að fá á sig fæst.

Fóru yfir magnaða frammistöðu Íslandsmeistara Breiðabliks í sumar
Í uppgjörsþætti Pepsi Max markanna var farið yfir magnað tímabil Breiðabliks sem bar höfuð og herðar yfir önnur lið í Pepsi Max deild kvenna í sumar.

Rúrik leggur skóna á hilluna
Þrátt fyrir að vera aðeins 32 ára er Rúrik Gíslason hættur í fótbolta.

Leiknum við Armena frestað og óvíst hvort hann fari fram
Óvissa ríkir um hvort lokaleikur íslenska U-21 árs landsliðsins í undankeppni EM fari fram.

Ekki efst í huga að hugsa um næstu skref þegar ég er nýbúinn að semja við FH
Knattspyrnudeild FH staðfesti fyrir helgi að Eiður Smári Guðjohnsen yrði áfram aðalþjálfari liðsins næstu tvö árin. Ræddi hann við Rikka G fyrr í dag um þá spennandi tíma sem framundan eru í Kaplakrika.

Helgi Valur ætlar að sanna að allt er fertugum fært
Helgi Valur Daníelsson ætlar að taka eitt ár til viðbótar með Fylki í Pepsi Max deildinni. Hann meiddist illa í sumar en stefnir á að spila með liðinu næsta sumar, þá fertugur að aldri.

Víkingar vonbrigði tímabilsins: „Fór einhvern veginn allt til fjandans“
Arnar Gunnlaugsson var sammála Pepsi Max Stúkunni að Víkingar væru vonbrigði tímabilsins í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í sumar.

Dofri farinn frá Víkingi en „aldrei hugmyndin að skórnir færu upp í hillu“
Dofri Snorrason hefur yfirgefið Víkinga eftir tíu ára dvöl í Víkinni. Hann hefur þó hug í að spila áfram í Pepsi Max deildinni.

Flestir leikmenn frá FH í hópnum fyrir leikina mikilvægu hjá U21 landsliðsinu
Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri mætir Ítalíu á Víkingsvelli á fimmtudaginn kemur í gríðar mikilvægum leik áður en það mætir Írlandi og Armeníu ytra. FH er það lið sem á flesta leikmenn í leikmannahópi landsliðsins að þessu sinni.

Arftakar Mikaels fundnir: „Skilaði góðum árangri eftir að hafa tekið við erfiðu búi“
Bjarni Jóhannsson og Hólmar Örn Rúnarsson hafa verið ráðnir þjálfarar 2. deildarliðs Njarðvíkur. Þetta staðfesti félagið í dag.

Valskonur fá heimaleik á móti Glasgow City
Valur hafði aftur heppnina með sér og fékk heimaleik í forkeppni Meistaradeildinni en mótherjinn fór alla leið í átta liða úrslit keppninnar í fyrra.

Mikael afar ósáttur: „Það lægsta sem ég hef séð á mínum ferli, jafnvel í lífinu“
Mikael Nikulásson, fráfarandi þjálfari Njarðvíkur, er ekki sáttur við sína gömlu vinnuveitendur og vandar þeim ekki kveðjurnar.

Mikael fékk sparkið í Njarðvík
Mikael Nikulásson hefur verið rekinn úr starfi sem þjálfari Njarðvíkur í 2. deild karla.

Gunnhildur Yrsa: Búnar að spila saman í allt sumar og það gleymist ekki á einum mánuði
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, einn af markaskorurum Vals í öruggum 3-0 sigri á HJK Helsinki frá Finnlandi í undankeppni Meistaradeildar Evrópu, var eðlilega mjög ánægð með sigur dagsins.

Pétur Péturs: Spennandi að spila í Meistaradeildinni, spennandi að ná árangri
Pétur Pétursson var eðlilega mjög sáttur með 3-0 sigur Vals á HJK Helsinki í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag. Sigurinn einkar öruggur og segja má að upplegg Vals hafi gengið nær fullkomlega upp í dag.

Þorvaldur hættur með U19 landsliðið
Knattspyrnuþjálfarinn Þorvaldur Örlygsson og KSÍ hafa komist að samkomulagi um að Þorvaldur hætti sem þjálfari U19-landsliðs karla.

„Markaðurinn á Íslandi er einhver lélegasti markaður í Evrópu og ég er ekki að tala um gæðin“
Bjarni Guðjónsson, aðstoðarþjálfari KR og fyrrum landsliðsmaður, hrífst ekki af íslenska leikmannamarkaðnum og segir hann einhvern lélegasta markað í Evrópu.

KR-ingar telja ákvörðun KSÍ ekki standast lög sambandsins: „Stjórnin getur ekki einhliða breytt lögum“
Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, ræddi við Gaupa í Sportpakka Stöðvar 2 um ákvörðun Knattspyrnusambands Íslands að enda Íslandsmótið í knattspyrnu. Ætlar KR að áfrýja málinu til áfrýjunadómstóls KSÍ.

Ólafur Ingi: Þýðir ekkert að henda í eitthvað frekjukast
Ólafur Ingi Skúlason, spilandi aðstoðarþjálfari Fylkis, skilur ákvörðun KSÍ að blása mótið af Íslandsmótin. Mannslíf séu í húfi og því sé réttara að huga þeim að en að klára knattspyrnutímabilin.

Árangurinn framar vonum og segir góðan vin sinn ástæðu þess að hann spili í dag
Alexaner Aron Hannesson er í toppbaráttunni í úrvalsdeildinni í eFótbolta þar sem keppt er í tölvuleiknum FIFA. Hann hefur þó töluvert lengur haft áhuga á fótbolta sem er spilaður á grasi og taldi sig í raun ekki nægilega góðan til að taka þátt í úrvalsdeildinni.

Bæði Kópavogsfélögin mæta með nýja þjálfara til leiks næsta sumar
Kvennalið HK vann sér sæti í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu og mætir með nýjan þjálfara til leiks næsta sumar. Sömu sögu er að segja af Augnablik sem leikur í sömu deild.

Guðni segir sátt hafa ríkt með 1. des viðmiðið þegar það var gefið út
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sagði í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld að mikil sátt hefði ríkt með 1. desember viðmiðið þegar það var gefið út í sumar. Þá skilur hann gremju félaganna sem töpuðu á ákvörðun KSÍ.

Valsmenn fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í Fjósinu | Myndband
Valsmenn fögnuðu Íslandsmeistaratitli sínum í Fjósinu, samkomuhúsi Vals.

Formaður knattspyrnudeildar KR telur KSÍ ekki hafa haft heimild til að enda mótið
Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, telur KSÍ ekki hafa heimild til að taka þá ákvörðun sem sambandið tók í dag. Það er að enda Íslandsmótið í knattspyrnu sem og bikarkeppnina.

Magnamenn ætla að leita réttar síns
Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Magna Grenivíkur í Lengjudeild karla var eðlilega manna ósáttastur með ákvörðun KSÍ. Magni fellur úr Lengjudeildinni á markatölu, einu marki munar á liði Magna og Þrótti Reykjavíkur.

Guðni: Staðan var orðin óviðunandi með þessu langa stoppi
Guðni Bergsson segir að sex vikna stopp frá æfingum hafi verið óviðunandi og því hafi KSÍ tekið þá þungbæru ákvörðun að hætta keppni á Íslandsmótum - sem og bikarkeppnum - karla og kvenna í knattspyrnu.

Hefði verið til í að eiga möguleika á að vinna tvöfalt og setja stigamet
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, var hress er Vísir náði í hann í kvöld enda ljóst að Valur er orðið Íslandsmeistari eftir að KSÍ staðfesti að leik yrði hætt á Íslandsmótinu í knattspyrnu.

Twitter eftir ákvörðun KSÍ: „Titlar vinnast á vellinum en ekki á skrifstofu VG“
Það hafa miklar umræður skapast á flestum samfélagsmiðlunum eftir ákvörðun KSÍ í dag en eins og kunnugt er ákvað KSÍ að blása allt mótahald af.

Guðni sagði ákvörðunina nauðsynlega
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir að ákvörðun KSÍ í dag um að blása allt mótahald af vegna kórónuveirufaraldursins hafi verið nauðsynleg.

„Auðvitað er þetta ákveðinn léttir“
Þórir Hákonarson, íþróttafulltrúi Þróttar, segir að það sé ákveðinn léttir að niðurstaða sé komin í hvað verður um Íslandsmótin og bikarkeppnina í knattspyrnu.