Ástin á götunni

Vilja reka Strachan
Stuðningsmenn skoska knattspyrnuliðsins Glasgow Celtic heimta að nýi knattspyrnustjórinn Gordon Strachan verði rekinn. Strachan stýrði Celtic í fyrsta alvöru keppnisleiknum í gærkvöldi en þá tapaði Celtic 5-0 fyrir Artmedia Petrzalka frá Slóvakíu í forkeppni meistaradeildarinnar.

Keflavík áfram
Keflvíkingar sigruðu Etzella frá Lúxemburg 2-0 í kvöld á Laugardalsvelli í fyrstu umferð forkeppni UEFA keppninnar og eru þar með komir áfram. Hörður Sveinsson gerði fyrra markið en hann gerði einnig öll fjögur mörk Keflvíkinga í fyrri leiknum sem Suðurnesjamenn sigruðu 4-0. Seinna mark Keflavíkur gerði Gunnar Hilmar Kristinsson.

Mótlæti hjá ÍBV í Færeyjum
Eyjamenn eru úr leik eftir 2-1 tap fyrir færeyska liðinu B36 í Þórshöfn í gær en liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum. Ísland tapaði því fyrstu viðureign sinni gegn Færeyjum í Evrópukeppni félagsliða en Ísland hefur aldrei tapað fyrir Færeyjum í A-landsleik.
Saviola vill svör
Javier Saviola, argentínski sóknarmaðurinn sem er til mála hjá Barcelona sem vill ekkert með hann hafa, vill fá skorið úr um hvort framtíð hans liggi hjá félaginu.

Ballack kóngurinn í Þýskalandi
Þýskir íþróttafréttamenn völdu í gær knattspyrnumann ársins í Þýskalandi. Michael Ballack, miðjumaður Bayern Munchen, varð fyrir valinu en hann fékk alls 516 atkvæði. Hann hlaut yfirburðarkosningu því sá sem var á eftir honum fékk 103 atkvæði, það var Lukas Podolski sóknarmaður hjá Köln.

Baros til Schalke?
Þýska liðið Schalke hefur bæst í hóp þeirra liða sem vilja fá sóknarmanninn Milan Baros frá Liverpool og viðræður milli félagana tveggja eru komnar í gang. Schalke hefur nýlega selt sinn helsta sóknarmann, brasilíumanninn Ailton, til Besiktas og hugsa Baros sem eftirmann hans

Leikir í Evrópukeppni í kvöld
ÍBV og Keflavík eiga bæði leik í kvöld í 1. umferð forkeppni UEFA keppninnar knattspyrnu. ÍBV keppir við B36 í Færeyjum en fyrri leikur liðanna lauk með jafntefli 1-1 í Vestmannaeyjum. Keflavík keppir við Etzella frá Lúxemborg á Laugardalsvelli en Keflavík vann fyrri leikinn 4-0 ytra og gerði Hörður Sveinsson öll mörk Keflvíkinga.
ÍBV er úr leik
ÍBV tapaði fyrir B36 frá Færeyjum 2-1 ytra í kvöld í fyrstu umferð forkeppni UEFA keppninnar í knatttspyrnu. Ian Jeffs gerði mark Eyjamanna, en hann jafnaði leikinn í 1-1. Skömmu síðar fengu bæði hann og Pétur Óskar Sigurðsson að líta rauða spjaldið. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni þar sem færeyskt lið fer áfram í Evrópukeppni.
Strachan eyðilagður eftir risatap
Celtic beið afhroð í leik sínum gegn Artmedia frá Slóvakíu í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi og tapaði 5-0. Flestir bjuggust við tiltölulega auðveldum sigri Celtic í leiknum og eru úrslitin einhver þau óvæntustu í sögu forkeppni Meistaradeildarinnar.

Ljungberg framlengir
Freddy Ljungberg, leikmaður Arsenal skrifaði undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við Arsenal í dag. Ljungberg sem er 28 ára hefur nú þegar verið hjá Arsenal í sjö ár og ef hann klárar samning sinn verður hann hjá bikarmeisturnum til ársins 2009.

Það er erfitt að eyða
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir það vera erfiðasta starf í heimi að þurfa að eyða pening frá Roman Abramovich í nýja leikmenn.

Gilardino leikur með Milan í kvöld
Markahrókurinn Alberto Gilardino sem gekk til liðs við A.C. Milan frá Parma í síðustu viku fyrir 17.2 milljónir punda leikur sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld. Milan mætir Chicago Fire í kvöld vestur í Bandaríkjunum þar sem liðið er í æfingaferð.

Barton sektaður um 8 vikna laun
Joey Barton, leikmaður Manchester City, var síðdegis sektaður um samtals 8 vikna laun af félagi sínu vegna atviks sem átti sér stað í Tælandi í síðustu viku en þar var Manchester City í æfingaferð.

Venesúela svíkur KSÍ
Knattspyrnusamband Venesúela hefur aflýst vináttulandsleik við íslenska karlalandsliðið sem fram átti að fara á Laugardalsvelli 17. ágúst n.k. Þetta kom fram á heimasíðu venesúelska knattspyrnusambandsins fyrir skömmu en þar segir að settur hafi verið á vináttuleikur gegn Ekvador þennan dag í ágúst.

ÍBV komið til Færeyja
Knattspyrnulið ÍBV er mætt til Færeyja þar sem liðið leikur síðari leik sinn gegn B36 í fyrstu umferð forkeppni UEFA-bikarins í Þórshöfn á morgun. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli á Hásteinsvelli í Eyjum þar sem Pétur Óskar Sigurðsson skoraði mark heimamanna. Leikurinn hefst klukkan 17:30 að íslenskum tíma á morgun.
Toppliðin unnu í 1. & 2. deild
Breiðablik heldur áfram sigurgöngu sinni í fyrstu deild karla í knattspyrnu. Blikar lögðu Fjölni 2-3 á útivelli eftir að hafa komist 0-2 yfir og eru með 35 stig á toppi deildarinnar, 10 stigum á undan Víkingi R sem vann mikilvægan 0-4 útisigur á nöfnum sínum frá Ólafsvík. Toppliðin tvö í 2. deild karla unnu bæði leiki sína í kvöld.
Ronaldo með tvö fyrir Real Madrid
Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid sem vann 3-1 sigur á japanska liðinu Jubilo Iwata í æfingaleik í kvöld en spænska liðið er nú í æfingaferð niðri í Asíu. Fyrirliðinn Raul skoraði eitt mark þegar hann kom Real í 1-0 áður en heimaliðið náði að jafna.

Benitez sæmilega sáttur
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur lýst frammistöðu sinna manna gegn Kaunas frá Litháen í Meistaradeildinni í gær sem "ágætri."

Forkeppni Meistaradeildar Evrópu
Evrópumeistarar Liverpool áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Kaunas frá Litháen að velli í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi. Kaunas skoraði fyrsta markið á heimavelli en Liverpool skoraði þrívegis og vann 3-1. Djibril Cisse, Jaime Carragher og Steven Gerard skoruðu mörkin.
Baptista ekki til Arsenal
Sókanarmiðjumaður spænska liðsins Sevilla, Julio Baptista hefur engan áhuga á að að ganga til liðs við enska liðið Arsenal. Baptista, sem er brasilískur vill vera kyrr á Spáni og fá spænskt vegabréf. Arsene Wenger, knattspyrnusjóri Arsenal er hins vegar sagður ekki vera búinn að gefa upp alla von.
Fimm í eins leiks bann
Fimm leikmenn í Landsbankadeildinni voru í gær dæmdir í eins leiks bann. Davíð Þór Viðarsson FH og Sölvi Sturluson úr KR voru reknir af velli en Bjarnólfur Lárusson KR fær leikbann vegna 6 gulra spjalda og Eyjamennirnir Andri Ólafsson og Heimir Snær Guðmundsson vegna fjögurra gulra spjalda.

Helgi Sig lék gegn Barcelona
Helgi Sigurðsson og félagar í danska knattspyrnuliðinu AGF Aarhus máttu þola 0-4 tap á mánudagskvöld gegn spænska stórliðinu Barcelona en leikurinn var liður í undirbúningsferð Barca í Danmörku. Helgi var ekki í byrjunarliði AGF í leiknum en kom inn á í síðari hálfleik.

Leikur við Venesúela í lausu lofti
Knattspyrnusamband Venesúela segir á heimasíðu sinni að landsleik milli Íslands og Venesúela í knattspyrnu, sem fyrirhugaður var 17. ágúst, hafi verið aflýst.Geir Þorsteinsson, framkvæmadstjóri knattspyrnusambands Íslands, segir þessa tilkynningu ótímabæra
Keane spilaði einn hálfleik
Roy Keane, fyrirliði Man. Utd, spilaði í 45 mínútur með C-liði liðsins í æfingaleik gegn utanddeildarliðinu Rossendale í gær, þrátt fyrir að vera sagður meiddur og þess vegna ófær um að fylgja aðalliðinu í æfingaferð til Asíu.
Woodgate meiddur enn og aftur
Það á ekki af varnarmanninum Jonathan Woodgate að ganga. Nú hefur hann enn einu orðið fyrir meiðslum og er líklegur til að missa af fyrstu vikum komandi keppnistímabils á Spáni.

Kristinn dæmir í Meistaradeildinni
Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson dæmir í kvöld leik í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn er heimaleikur albanska liðsins KF Tirana og CSKA Sofia frá Búlgaríu og hefst hann kl. 18:30 að íslenskum tíma. Aðstoðardómarar í leiknum verða Pjetur Sigurðsson og Sigurður Óli Þorleifson. Eigill Már Markússon er eftirlitsdómari.
Nýliðar Wigan fá Henchoz
Wigan Athletic, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, hafa náð samkomulagi við svissneska landsliðsmanninn Stephane Henchoz. Þessi fyrrum varnarmaður Liverpool hefur undanfarna viku æft með Wigan og náði að sannfæra knattspyrnustjórann Paul Jewell um að hann sé vænlegur kostur.

Man Utd sigraði Peking
Manchester United sigraði Peking Hyundai 3-0 í hádeginu í dag í Kína en liðið er statt þar í æfingaferð. Paul Scholes gerði tvö marka United en nýji maðurinn Park ji-sung frá Suður Kóreu gerði þriðja markið en það var hans fyrsta í United búningi.

Liverpool sigraði 3-1
Liverpool sigraði lið Kaunas frá Litháen 3-1 í Litháen í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Kaunas komst yfir með marki frá Baravicius en þeir Cisse, Carrager og Gerrard úr víti svöruðu fyrir Liverpool.

Hlutbréf í Newcastle rjúka upp
Hlutabréf í enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle hækkuðu um tæp 18% í dag eftir að orðrómur komst á kreik um að tveir fjárfestar hefðu hug á að kaupa 28,5% hlut Sir John Hall, eins aðaleigenda félagsins og fyrrverandi stjórnarformanns.