

Nú rétt áðan var ljóst hvaða lið mætast í umspili um laust sæti á HM í knattspyrnu í Þýskalandi næsta sumar. Spánverjar mæta Slóvenum og verður fyrri leikur liðanna á Spáni þann 12. nóvember. Norðmenn fá það erfiða verkefni að mæta Tékkum og Svisslendingar fá Tyrki í heimsókn, en þessir leikir fara allir fram sama dag og æfingaleikur Englendinga og Argentínu.
Þátttakendur á Ian Rush Icelandair Masters knattspyrnumótinu sem fer fram í Egilshöll í byrjun nóvember fá ekki móttöku á vegum Reykjavíkurborgar. Á mótið sem er fyrir "lengra komna knattspyrnumenn" koma nokkrir af frægustu knattspyrnumönnum Englands á fyrri árum úr liðum Liverpool, Manchester United og Arsenal.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, á í nokkrum vandræðum með þau miklu meiðsli sem hrjá leikmenn liðsins þessa dagana, en hann hefur nú fengið þær gleðifréttir að Sol Campbell verði líklega klár í slaginn þegar liðið fer til Prag í Meistaradeildinni í næstu viku.
Ensku meistararnir Chelsea eru nú sagðir ætla að festa kaup á portúgalska varnarmanninum Jorge Andrade hjá Deportivo La Corunia í janúar og er talið að hann muni kosta félagið um 16 milljónir punda.
Varnarjaxlinn Ledley King hjá Tottenham Hotspurs gæti misst af leik liðsins gegn Everton um helgina vegna meiðsla sem hann hlaut í landsleiknum gegn Pólverjum í gær. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir aðdáendur liðsins hér heima, því stuðningsmannaklúbbur Tottenham er nú á leið til London að sjá leik Tottenham og Everton um helgina.
Framherjinn Kevin Davies hjá Bolton segist geta gert betri hluti með enska landsliðinu en hin hávaxni Peter Crouch hjá Liverpool og bendir á að þó hann sjálfur muni líklega ekki fá landsleik úr þessu, gæti hann skilað stöðunni betur en Crouch þegar enska liðið spilar svipaðan stíl og Bolton.
Úrúgvæ vann frækinn sigur á Argentínumönnum í undankeppni HM í gærkvöld, 1-0 með marki frá Alvaro Recoba og tryggði sig í umspil gegn Áströlum um laust sæti á HM í Þýskalandi á næsta ári.
Fjórir enskir landsliðsmenn hafa verið tilnefndir í 30 manna úrtak fyrir valið á knattspyrnumanni ársins hjá FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandinu. Þetta eru þeir Wayne Rooney, Frank Lampard, David Beckham og Steven Gerrard.
Framherjinn Djibril Cissé hjá Liverpool hefur sett sér skýr markmið varðandi framtíð sína hjá félaginu og segir að nái hann ekki að vinna sér fast sæti í liðinu á næstu tveimur mánuðum, muni hann róa á önnur mið á nýja árinu. Þetta segir hann að sé nauðsynleg ráðstöfun fyrir sig til að vinna sér sæti í franska landsliðinu fyrir HM næsta sumar.
Sepp Blatter, forseti FIFA, liggur ekki á skoðunum sínum þegar kemur að hinum skapheita Wayne Rooney og segir að það sé á ábyrgð knattspyrnustjóranna að halda aftur af drengnum.
Eigendur Manchester United hafa hætt við að byggja spilavíti á heimavelli liðsins Old Trafford eins og til stóð, vegna erfiðleika við að fá tilskilin leyfi. Félagið hefur lagt ríka áherslu á að þessi niðurstaða hafi ekkert með Malcom Glazer og syni hans að gera, en margir vildu meina að þeir hefðu runnið á rassinn með að fjármagna fyrirtækið vegna skuldsetningar félagsins.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu tapaði 3-1 fyrir Svíum í lokaleik sínum í undankeppni HM í Svíþjóð nú áðan. Íslenska liðið komst yfir í leiknum með glæsilegu marki Kára Árnasonar í fyrri hálfleik, en þeir Zlatan Ibrahimovic, Henrik Larsson og Kim Kallström gerðu vonir íslenska liðsins að engu.>
Ryan Giggs, leikmaður Manchester United er heldur betur á skotskónum hjá landsliði sínu þessa dagana. Wales lauk keppni í gærkvöld með 2-0 sigri á Azerum, þar sem Giggs skoraði bæði mörk liðsins og skoraði þar með þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins.>
Varnarmaðurin Jonathan Woodgate varð aftur fyrir því óláni að skora sjálfsmark fyrir lið sitt Real Madrid í gærkvöldi, þegar það tapaði vináttuleik við Real Zaragoza í vítaspyrnukeppni í gær. Þetta var annað sjálfsmark Woodgate í þremur leikjum fyrir liðið.>
David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, segir ekkert að marka þá hörðu gagnrýni sem lið hans hefur fengið á sig á leiktíðinni, því svo virðist sem fólk sé einfaldlega á móti liðinu.>
Svíar hafa náð forystu 2-1 gegn Íslendingum. Það var markahrókurinn Henrik Larsson sem skoraði mark sænska liðsins á 42. mínútu eftir sendingu frá Zlatan Ibrahimovic. Markið var stórkostlega útfært og Svíarnir fara á kostum þessa stundina.>
Íslendingar voru nú rétt í þessu að ná forystu gegn Svíum á Rasunda. Það var Kári Árnason sem skoraði sannkallað draumamark á 23. mínútu af hátt í 40 metra færi með þrumuskoti sem markvörður Svía náði ekki að verja. Staðan 1-0 og byrjun íslenska liðsins því aldeilis góð.>
Leikurinn í Svíþjóð byrjar fjörlega og eftir um tíu mínútna leik náði Freddy Ljungberg að skora fyrir sænska liðið eftir frábæra spilamennsku, en markið var réttilega sæmt af vegna rangstöðu. >
Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga var afar ánægður með frammistöðu sinna manna eftir sigurinn á Pólverjum í lokaleik undankeppni HM í gær, en sigurinn tryggði enskum efsta sætið í riðlinum.>
Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Svíum í kvöld í undankeppni heimsmeistaramótsins á Rasunda leikvanginum í Stokkhólmi. Sænskir fjölmiðlamenn hafa litlar áhyggjur af leiknum gegn Íslendingm og eiga von á öruggum sigri Svía enda sæti sænska landsliðsins á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi þegar tryggt.>
Framherjinn Zlatan Ibrahimovic virðist ekki hafa stórar áhyggjur af leiknum við Íslendinga í dag, því í gær fór hann ásamt vini sínum í sænska landsliðinu og fékk sér húðflúr í Stokkhólmi. Húðflúrið er á maganum á honum og segir; "Aðeins Guð getur dæmt mig." >
Enska U-21 árs landsliðið vann auðveldan 4-1 heimasigur á Pólverjum í gærkvöldi. Steven Taylor skoraði tvö marka enska liðsins og Carlton Cole og Jerome Thomas skoruðu sitt markið hvor.>
Landsleikur Svíþjóðar og Íslands sem fram fer í Svíþjóð í dag verður sýndur beint á Vísi VefTV. Útsending Sýnar hefst klukkan 17:00 en flautað verður til leiks klukkan 17:30. Svíar virðist ekki hafa miklar áhyggjur af íslenska landsliðinu miðað við blaðamannafund sænska landsliðsins í Stokkhólmi í gær sem Þorsteinn Gunnarsson fylgdist með.>
Enska landsliðið lagði það pólska 2-1 í lokaleik sínum í undankeppni HM í kvöld og tryggði sér þar með sigurinn í riðlinum. Michael Owen og Frank Lampard skoruðu mörk enska liðsins, sem hafði nokkra yfirburði í leiknum.>
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Svíum á Rasunda leikvanginum í undankeppni HM nú klukkan 17:30. Liðið er skipað eftirtöldum leikmönnum. >
Það tók Svía ekki nema um fjórar mínútur að jafna leikinn gegn Íslendingum, en þar var að verki snillingurinn Zlatan Ibrahimovic sem skoraði með viðstöðulausu skoti eftir að Auðun Helgason átti misheppnaða hreinsun frá íslenska markinu. Hann nældi sér þvínæst í gult spjald fyrir fólskulegt brot strax í kjölfarið.>
David Beckham fær ekki að horfa á leik Englendinga og Pólverja af varamannabekk liðsins eins og til stóð, því hann hefur verið kallaður aftur til Spánar til að æfa með Real Madrid. Þar sem Beckham var í banni í leiknum, ákvað Sven-Göran Eriksson að leyfa honum að fara.>
Í gærkvöldi varð ljóst að Írum tækist ekki að vinna sær sæti á HM í Þýskalandi næsta sumar, því liðið náði aðeins markalausu jafntefli á heimavelli sínum gegn Svisslendingum, sem með stiginu fá sæti í umspili. Frakkar tryggðu sér beint sæti á HM með auðveldum sigri á Kýpur.>
Sven-Göran Eriksson hefur tilkynnt byrjunarlið Englands sem mætir Pólverjum í kvöld, en nokkrar breytingar hafa verið gerðar á liðinu vegna meiðsla og leikbanna.>
Íslenska U-21 árs landsliðið er komið í 3-0 gegn Svíum í Eskilstuna í undankeppni EM og það var Bjarni Þór Viðarsson sem skoraði þriðja markið um stundarfjórðungi fyrir leikslok. Bjarni skoraði með glæsilegum skalla eftir hornspyrnu Emils Hallfreðssonar, sem hefur lagt upp tvö af mörkum Íslands í leiknum. Hörður Sveinsson skoraði hin tvö mörkin í fyrri hálfleik.