Stjarnan

Stjarnan

Fréttir af Ungmennafélaginu Stjörnunni frá Garðabæ.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, segir markmiðið skýrt fyrir leik liðsins við Stjörnuna í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag. Blikakonur geta orðið Íslandsmeistarar þriðja árið í röð nái þær í stig í Garðabænum í dag gegn Stjörnuliði sem hefur unnið Breiðablik tvisvar í sumar.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Kær­kominn sigur KA/Þór

KA/Þór vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í Olís deild kvenna í handbolta í dag þegar liðið hafði betur gegn Stjörnunni á heimavelli. Lokatölur 32-28 KA/Þór í vil.

Handbolti
Fréttamynd

KA-menn brotlentu í Garða­bæ

Stjörnumenn unnu frábæran sigur gegn heitum KA-mönnum í kvöld, 35-33, í 6. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Þetta var annar sigur Stjörnunnar og annað tap KA sem situr í 3. sæti.

Handbolti
Fréttamynd

Bjarni Jó hættur

Reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson er hættur þjálfun og yfirgefur sviðið sem leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar til þessa. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Rekinn frá Stjörnunni

Stjarnan verður án bandarísks leikmanns þegar liðið mætir Hetti annað kvöld í 2. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta eftir að ákveðið var að reka Austin Price.

Körfubolti
Fréttamynd

HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki

Stjarnan tók á móti HK í sjöttu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld. HK náði að knýja fram dramatískan sigur 21-20 og var þetta fyrsti sigur liðsins í deildinni.

Handbolti
Fréttamynd

Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis

KA vann öruggan þriggja marka sigur á Stjörnunni á Samsungvellinum í Garðabæ í Bestu deild karla í dag. Hallgrímur Mar Steingrímsson og Adam Ægir Pálsson skoruðu í fyrri hálfleik áður en varamaðurinn Valdimar Logi Sævarsson innsiglaði sigurinn eftir að heimamenn misstu mann af velli. KA er áfram í fjórða sæti neðri hlutans með 26 stig, tveimur stigum fyrir ofan Þór sem er í fallsæti á meðan Stjarnan situr enn í öðru sæti neðri hlutans með 31 stig.

Íslenski boltinn