Verkföll 2020

Hvers virði er geðheilbrigði barna?
Var andvaka í nótt. Uppspennt og á síðustu hálmstráum andlegrar heilsu nú á fjórðu, fimmtu (?) viku verkfalls (líður eins og það séu sjö mánuðir).

Sóttu tæp fimm tonn af rusli í tvær blokkir á tuttugu mínútum
Foreldrar kalla eftir að deiluaðilar rísi undir ábyrgð og semji.

Aukafjármagn til þrifa vegna kórónuveirunnar
Borgarráð hyggst leggja til fjármagn til aukinna þrifa í stofnunum borgarinnar vegna kórónuveirunnar sem veldur Covid19-sjúkdómnum.

Segir borgina geta komið í veg fyrir smithættu með því að bjóða ekki þjónustuna
Undanþágunefnd Eflingar féllst ekki á að veita undanþágu frá verkfallsaðgerðum á skóla- og frístundarsviði Reykjavíkurborgar til að tryggja þrif í grunnskólum. Þetta staðfestir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, í samtali við Vísi.

Sorphirða hefst í Breiðholti á morgun
Byrjað verður á að hirða sorp í Breiðholti í fyrramálið eftir að undanþága frá verkfalli Eflingar fékkst á dögunum vegna lýðheilsusjónarmiða. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að öll sorphirða í borginni sé á eftir áætlun.

Hver má eiga pening?
Samfélagið er byggt upp eins og net þar sem sérhver hnútur er nauðsynlegur svo aðrir hnútar losni ekki og netið rakni upp. Til að allt gangi hjálpumst við að.

Efling veitir undanþágu fyrir velferðarsvið
Undanþágunefnd Eflingar hefðu að höfðu samráði við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra veitt undanþágu frá verkfallsaðgerðum á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar fram til loka dags á miðvikudag.

Efling mun veita undanþágu frá verkfalli vegna veirunnar
Undanþágunefnd Eflingar hefur samþykkt einróma að veita undanþágu frá verkfallsaðgerðum vegna sorphirðu, er fram kemur í tilkynningu frá verkalýðsfélaginu.

Telur kröfur Eflingar „út úr kú“ og samningsvilja Sólveigar engan
Þórarinn Ævarsson, sem gegndi starfi framkvæmdastjóra IKEA á Íslandi í 13 ár, segir kröfur stéttarfélagsins Eflingar í yfirstandandi kjaraviðræðum við Reykjavíkurborg óásættanlegar.

Samþykktu frekari verkföll með miklum meirihluta
Félagsmenn stéttarfélagsins Eflingar sem greiddu atkvæði um verkföll hjá einkareknum skólum og hjá sveitarfélögum öðrum en Reykjavíkurborg samþykktu vinnustöðvanir í atkvæðagreiðslu. Munu vinnustöðvanir að óbreyttu hefjast 9. mars næstkomandi.

Dagur, stattu við orð þín
Borgarstjóri á að sjá til þess að viðsemjendum borgarinnar séu veittar skýrar og greinargóðar upplýsingar um þau tilboð sem óskað er eftir að ræða af alvöru við samningaborðið.

Karlahlaupið blásið af vegna verkfalls Eflingar
Aðstandendur hins svokallaða Karlahlaups Krabbameinsfélags Íslands, sem fram átti að fara á sunnudag, hafa ákveðið að fresta hlaupinu vegna yfirstandandi verkfalls Eflingar í Reykjavíkurborg

Hættuspil hungurmarkanna
Verkfall Eflingar er okkur öll áminning um mikilvægi þeirra starfa sem unnin eru á vegum Reykjarvíkurborgar.

Viðar segir hljóð og mynd ekki fara saman í málflutningi Dags
Langt er liðið á aðra viku af ótímabundnum verkföllum félagsmanna Eflingar með tilheyrandi raski á leikskólastarfi og skertri þjónustu í borginni.

Tilboð Reykjavíkurborgar gott ef rétt reynist
Framkvæmdastjóri Eflingar sagði að loknum fundi samninganefndanna í gær að ringulreið, seinagangur og ósamkvæmni væri í vinnubrögðum borgarinnar og vísar þá til viðtals borgarstjóra í fjölmiðlum í síðustu viku og orða formanns samninganefndar Reykjavíkurborgar þar sem launatölur og launahækkanir voru lagðar fram.

Foreldrar uggandi vegna áframhaldandi verkfalls
Foreldrar eru uggandi yfir stöðunni í kjaradeilu félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg. Enginn fundur hefur verið boðaður í deilunni eftir að upp úr slitnaði í viðræðum í gær. Ekki sér fyrir endann á ótímabundnu verkfalli Eflingar.

Hægt að fara með rusl til Sorpu og nýta önnur úrræði
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að nota önnur úrræði til að nýta öskutunnurnar sem best á meðan sorphirðumenn eru í verkfalli. Sömuleiðis er hægt að fara með tiltekið magn af sorpi beint til Sorpu.

Segist „að sjálfsögðu“ standa við tilboð sitt
Borgarstjóri harmar að ekki hafi gengið hraðar að ná samningum milli Reykjavíkurborgar og Eflingar.

Samninganefnd borgarinnar furðar sig á tilburðum Eflingar
Samninganefnd Reykjavíkurborgar hefur lýst yfir vonbrigðum með að ekki hafi náðst árangur á samningafundi milli nefndarinnar og fulltrúa Eflingar í dag.

„Við skiljum varla við hvern við erum að semja“
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, furðaði sig á því sem fram kom á fundi í kjaradeilu Eflingar og Reykjavíkurborgar í dag. Samninganefnd Eflingar hafi verið furðulostin þegar þau yfirgáfu fundinn.

Félagsmenn Eflingar orðnir þreyttir á verkfalli
Þreyta er á meðal félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg. Ótímabundið verkfall þeirra hefur nú staðið í tíu daga. Félagsmenn vilja að gengið verði til samninga svo þeir geti mætt til vinnu aftur, verkfallið sé farið að hafa áhrif á fjárhag heimilla þeirra.

Meirihlutastuðningur við verkföll Eflingar
Skoðanakönnun sem stéttarfélagið Efling lét gera fyrir sig bendir til þess að almennur stuðningur sé við verkfallsaðgerðir þess.

Höfum við gengið til góðs? Af vinnumarkaði og verkföllum
Áhugaverð umfjöllun um álag á vinnustöðum er í boði þessa dagana á Vísi. Þar kemur m.a. fram að reglubundnar kannanir Gallup sýna að mun fleiri segjast úrvinda eftir vinnu en áður þrátt fyrir að tölur um vinnuálag hreyfist furðu lítið milli ára.

Vilja vita hvort borginni sé alvara með „Kastljóstilboð Dags B. Eggertssonar“
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir að trúverðugleiki borgarinnar sé í húfi.

Áskorun til atvinnurekenda
Verkfall Eflingar hefur nú staðið í rúmar þrjár vikur. Fundir hafa verið strjálir og stuttir á milli þess sem samningsaðilar hafa sent harðorð skeyti sín á milli í fjölmiðlum.

Boðað til fundar í deilu Eflingar og borgarinnar
Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar í kjaradeilu Eflingar og Reykjavíkurborgar klukkan 13 á morgun.

Ákall um aukinn jöfnuð
Harka hefur færst í kjarabaráttu í landinu. Hátt í tvö þúsund einstaklingar hafa lagt niður störf hjá Reykjavíkurborg - og stefnir í tuttugu þúsund manna verkfall hjá hinu opinbera í mars.

Hin heilögu lögmál
Í tengslum við kjaraviðræður þær sem eru í gangi þessar vikurnar og líka síðastliðið vor, hafa býsna margir talið nauðsynlegt að taka þátt í umræðu um þær á opinberum vettvangi.

Foreldraráð í Breiðholti óttast langvarandi áhrif verkfalls
Foreldraráð 12 leikskóla í Breiðholti hvetja samninganefndir Eflingar og Reykjavíkurborgar til að leita allra leiða svo komast megi að samkomulagi.

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja verkfall
Mikill meirihluti félagsmanna í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) samþykkti boðun verkfallsaðgerða í atkvæðagreiðslu sem fram fór dagana 18. til 21. febrúar. Svo segir í tilkynningu frá BSRB.