Innlent

Uppreisnarinnar í Ungverjalandi 1956 minnst
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands er nú á leið til Búdapest þar sem hann mun taka þátt í viðburðum til minngar um uppreisnina í Ungverjalandi fyrir fimmtíu árum. Dagskráin hefst á morgun og mun standa fram á mánudag og munu margir helstu þjóðarleiðtogar heims taka þátt.

Kynna umferðaröryggismál
Í dag býður umferðarstofa upp á frítt mat á aksturshæfni ökumanna undir leiðsögn prófdómara. Hjá Frumherja á Hesthálsi er búið að koma upp tækjum og þrautum fyrir alla fjölskylduna og þar verða kynnt ýmis mál er tengjast öryggi í umferðinni.

Fyrsti hvalurinn veiddur
Áhöfnin á Hval níu hefur fangað væna langreyði úti fyrir Snæfellsnesi og hefur sett stefnuna á Hvalfjörð. Birtuskilyrði hafa gert hvalföngurum erfitt fyrir og einnig hefur orðið vart við bilarnir í Hval níu. Að sögn Kristjáns Loftssonar, forsjóra Hvals, er búist við að skipið komi að bryggju í Hvalfirði í fyrramálið gangi allt að óskum.

Lítið sem ekkert samræmi
Ekki virðist vera samræmi milli þess hve margir stúdentar útskrifast á landsbyggðinni og hve margir þeirra stunda háskólanám. Að þessari niðurstöðu kemst Þóroddur Bjarnason prófessonr við Háskólann á Akureyri en hann hefur borið saman skiptingu fjárveitinga þessa fjárlagaárs á háskólastigi til heilsársnema.

Raflögnum og rafbúnaði víða ábótavant
Úttekt Neytendastofu á tæplega fimm hundruð verkstæðum, víðs vegar um landið, leiðir í ljós að raflögnum og rafbúnaði er víða ábótavant. Athugasemdir voru gerðar við merkingu búnaðar í rafmagnstöflum í yfir níutíu og eitt prósent tilvika.

Ávinningur olíusamráðsins lítill sem enginn
Dómkvaddir matsmenn í máli Kers gegn Samkeppnisyfirvöldum telja hugsanlegt að ávinningur olíufélaganna af ólöglegu samráði hafi verið lítill eða enginn. Samkeppnisyfirvöld hafi gefið sér rangar forsendur við útreikninga sína.

Hafa enn ekki veitt hval
Áhöfninni á Hval níu hefur enn ekki tekist að fanga hval á þeim þremur dögum sem liðnir eru frá því skipið lét úr höfn. Birtuskilyrði gera hvalföngurum erfitt fyrir. Þeir segjast finna hval, keyra á eftir honum en missa þá birtuna. Þeir hafi þó séð allar hugsanlegar tegundir úti fyrir Vestfjörðum í gær, en nú eru þeir út af Snæfellsjökli. Einnig hefur orðið vart við bilarnir í Hval níu en það segja hvalfangarar að sé ósköp eðlilegt eftir að hann hafi staðið í sautján ár. Ferðin hafi í raun gengið furðuvel.

Vændi er þjóðarskömm segir biskup
Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands segir hnattvæddan klámiðnað staðreynd á Íslandi og að mansal teygi anga sína hingað til lands. Vitnast hafi að menn kaupi ungar stúlkur frá fátækum löndum og haldi þeim hér eins og þrælum. Það sé þjóðarskömm. Þetta var meðal þess sem biskup gerði að umtalsefni við setningu Kirkjuþings í morgun.
Lenti á hvolfi inn í garði
Rétt eftir miðnætti varð harður tveggja bíla árekstur í íbúðarhverfi í vesturbæ Kópavogs, með þeim afleiðingum að annar bíllinn valt og lenti á þakinu inni í garði. Engan sakaði og ekki leikur grunur á ölvun, en báðir bílarnir eru mikið skemmdir og voru fluttir af staðnum með kranabíl.

Nóbelsverðlaunahafi hlýtur heiðursdoktorsnafnbót
Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði er meðal þeirra sem hljóta heiðurdoktorsnafnbót við útskrift Háskóla Íslands í dag. Sá heitir Robert A. Mundell og er prófessor við Colubia-háskóla í Bandaríkjunum. Hann fékk Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1999. Hann hlýtur nafnbótina við viðskipta- og hagfræðideild HÍ.

Ólafsfell kaupir hlut í Árvakri
Eignarhaldsfélagið Ólafsfell, sem er félag í eigu Björgólfs Guðmundssonar, hefur keypt 8 prósenta hlut í Árvakri sem gefur út Morgunblaðið. Fyrir á Ólafsfell 82 prósenta hlut í Eddu útgáfu sem er stærsta bókaútgáfa landsins.
Harður árekstur á Suðurlandsvegi
Ökumaður lítils sendiferðabíls af Volkwagen-gerð var fluttur nokkuð slasaður til Reykjavíkur eftir harðan árekstur við vöruflutningabíl á Suðurlandsvegi, til móts við afleggjarann að Ásmundarstöðum á áttunda tímanum í gærkvöldi. Beita þurfti klippum til að ná ökumanni sendiferðabílsins út en ökumann vöruflutningabílsins sakaði ekki.
Leitað að rjúpnaskyttu í Lambafjöllum
Leitað var að rjúpnaskyttu í Lambafjöllum í Reykjasveit í gærkvöldi. Tveir menn höfðu farið saman á skytterí og þegar annar skilaði sér ekki á réttum tíma var beðið um aðstoð björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Kviknaði í dóti og fötum
Eldur kviknaði í dóti og fötum í kjallaraíbúð í Skaftahlíð snemma í morgun. Húsráðandi hafði ráðið niðurlögum eldsins þegar slökkvilið kom á staðinn, en reykræsta þurfti íbúðina. Ekki er ljóst hvað olli eldinum.

Fjórir handteknir vegna fíkniefnamáls
Eitt fíkniefnamál kom upp í Keflavík í nótt þegar bifreið var stöðvuð og kallaði lögreglan til sérsveit Ríkislögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli. Tveir voru í bílnum og voru þeir í annarlegu ástandi. Í beinu framhaldi var gerð húsleit á heimili þeirra, en þar voru tveir til viðbótar handteknir.

Stærsta mál Íslandssögunnar
Mál ákæruvaldsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, Tryggva Jónssyni og Jóni Gerald Sullenberger var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Lífræn kjötsúpa handa öllum
Árlegur kjötsúpudagur verslana og íbúa við Skólavörðustíg er haldinn í fjórða sinn í dag. Í tilefni hans verða verslanir og veitingastaðir götunnar opnir fram eftir degi og gestum boðið upp á veglega kjötsúpu.

Mikið slasaður eftir bílslys
Maður liggur á gjörgæsludeild eftir umferðarslys á Hvolsvelli í gærkvöldi, en þar skall bifreið aftan á vörubíl sem var nánast kyrrstæður við gatnamót. Kalla þurfti til tækjabíl frá Selfossi og klippa manninn út úr bílnum, en hann var síðan fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er maðurinn mikið slasaður, en ekki í öndunarvél.
Ekkert eftirlit með lögreglu
Ekkert eftirlit er með því innan lögreglunnar að farið sé eftir lögum um hleranir. Samkvæmt upplýsingum frá Ingimundi Einarssyni varalögreglustjóra er ekki hægt að taka saman tölur um hve oft hleranir samkvæmt dómsúrskurði hafi ekki leitt til ákæru.

Námsgagnastofnun hindrar samkeppni
Útgefendur námsefnis kvarta yfir samkeppnishindrandi starfsháttum og lagaramma Námsgagnastofnunar. Samkeppniseftirlitið gerir athugasemdir við rekstur stofnunarinnar. Menntamálaráðherra segir breytingar í vændum.

Frumvarp um skerðingu eftirlauna æðstu manna
Tveir þingmenn Samfylkingar hafa lagt fram frumvarp til laga um að eftirlaunaréttindi æðstu manna ríkisins verði skert meðan þeir eru enn í launuðu starfi. Þverpólitísk samstaða sem Halldór Ágrímsson reyndi að ná um málið fór út um þúfur og Geir Haarde

Bretar með hótanir vegna hvalveiðanna
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra skilur orð bresks kollega síns sem dulda hótun og segir Breta ekki styðja sjálfbæra auðlindanýtingu sem sé mjög athyglisvert. Einar spyr sig hvort Bretar hafi mótmælt veiðum annarra þjóða.

Þingið getur beitt þrýstingi
Formaður og framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands, ÖBÍ, átti fundi í gærmorgun með þingflokksformönnum allra flokka. Ákveðið var að hittast aftur ásamt fulltrúum fjórtán lífeyrissjóða á mánudagsmorgun.

Starbucks styður Paul Watson
Sea Shepherd umhverfissamtökin hafa notið stuðnings fjölda stórfyrirtækja og eitt þeirra er Starbucks-kaffihúsakeðjan fræga sem rekur um fjörutíu þúsund kaffihús víða um heim.
Afköst Landspítalans meiri en fjárframlög standa í stað
Rekstrarkostnaður Landspítalans hefur staðið í stað undanfarin ár þrátt fyrir mjög aukna starfsemi. Á fjárlögum 2007 er spítalanum ætluð sama upphæð til rekstursins og í ár þrátt fyrir að hallinn nú sé milljarður.

Signý fram gegn Ingibjörgu
Miklar líkur eru á því að átök verði um varaformennskuna í Alþýðusambandi Íslands á ársfundi 26.–27. október. Signý Jóhannesdóttir, formaður Vöku á Siglufirði, hefur lýst yfir framboði gegn núverandi varaforseta, Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur.

Málverk tvöfaldast í verði
Pétur Þór Gunnarsson, sem margir þekkja sem sakborning í Stóra málverkafölsunarmálinu, segir ýmsa gamla viðskiptavini hafa skorað á sig að opna umboðs- og uppboðsstofu á sviði listmuna. Pétur Þór var sýknaður í Hæstarétti en svo virðist sem fjölmargir innan listageirans vilji ekki una því.
Fjórtánfaldur munur launa
Munur á hæstu og lægstu launum er nærri fjórtánfaldur hjá körlum og ellefufaldur hjá konum að því er kemur fram í rannsókn Capacent á launamun.

Leita skjóls við lögreglustöðina
Rjúpnaveiðimönnum við Hólmavík hefur gengið treglega við veiðar þetta veiðitímabil. Lögregluvarðstjórinn á Hólmavík segir dapurt gengi þeirra ef til vill ekki að undra.
Ekki gengið á bak orða
Stefnubreyting íslensku friðargæslunnar í Afganistan samræmist fyllilega eldri skuldbindingum Íslands við NATO, að sögn Önnu Jóhannsdóttur, forstöðumanns friðargæslunnar. Hún segir núverandi verkefni Íslendinga í Afganistan standa fram í apríl á næsta ári og utanríkisráðuneytið hafi aldrei skuldbundið sig í frekari friðargæslu. Því hafi ekki þurft að hafa sérstakt samráð við NATO um stefnubreytinguna.