Innlent

Stofnvísitala þorsks lægri en á sama tíma í fyrra
Stofnvísitala þorsks hér við land er sex prósentum lægri nú en á sama tíma í fyrra samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum úr rannsóknum Hafrannsóknastofnunar. Þorskstofninn virðist því síður en svo vera að rétta úr kútnum því ítrekaðar mælingar benda til að stofnarnir frá 2001 og 2004 séu mjög lélegir árgangar, 2003-árgangurinn frekar lélegur og 2002 og 2005 árgangarnir undir meðallagi.
Geislvirk efni finnast víðar
Leifar af geislavirka efninu póloníum-210 fundust á tveimur stöðum til viðbótar í Lundúnum í gær. Efnið fannst í líkaman Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB, eftir lát hans.

Ekki fleiri tilkynningar um falsaða peningaseðla
Ekki hafa borist fleiri tilkynningar um falsaða fimm þúsund króna seðla í umferð, en þær tvær, sem bárust lögreglunni í Reykjavík um helgina

Aftakaveður í Öræfasveit
Aftaka veður gekk yfir Öræfasveit á Suðurströndinni í gærkvöldi og er talið að vindur hafi farið hátt í sjötíu metra á sekúndu í snörpustu vindhviðunum.

Sími þingmanns var hleraður
Dómsúrskurður um að lögreglunni í Reykjavík væri leyfilegt að hlera síma Hannibals Valdimarssonar var kveðinn upp sunnudaginn 26. febrúar 1961, en þá sat Hannibal á þingi og naut því þinghelgi. Þetta kemur fram í gögnum sem Ólafur, sonur Hannibals, hefur fengið frá þjóðskjalaverði.

Norðmenn vænta þátttöku í kostnaði varnarsamstarfs
Varnarmálaráðherra Noregs segir eigið mat Íslendinga á varnarþörfum sínum vera forsendu fyrir viðræðum um aukna þátttöku Norðmanna í að tryggja þær. Yfirmaður varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir stjórnvöld hafa þetta mat á hreinu.

Liður í að brúa launabilið
Laun starfsmanna Norðuráls hækka um 3,65 prósent um næstu áramót. Einnig kemur fimm hundruð króna aukahækkun ofan á launataxta hjá verkamönnum, að því er fram kemur á vef Verkalýðsfélags Akraness.

Lögin skilgreina nauðgun öðru vísi en almenningur
Almenn hegningarlög skilgreina nauðgun allt öðruvísi en almenningur. Núgildandi skilgreining nauðgunar felur ekki í sér viðurkenningu á þungamiðju kynferðisafbrota. Viðhorf samfélagsins hafa mikil áhrif á lagasetningu og umfjöllun um kynferðisafbrot.

Takmarkanir á kostun og auglýsingatekjum ræddar
Útvarpsstjóri segir ekki óeðlilegt að sett séu mörk á hlutdeild stofnunarinnar á auglýsingamarkaði. Stjórnendur 365 og Skjásins eru fylgjandi breytingum á frumvarpinu. Frumvarpið getur aukið fákeppni á markaði segir starfsmaður RÚV.

Ekki horfið frá fyrra mati á varnarþörf
Jón Egill Egilsson, yfirmaður varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir íslensk stjórnvöld hafa grundvallarmat á varnarþörf Íslands á hreinu og þar með grundvallarforsendurnar fyrir viðræðum við Norðmenn og aðra bandamenn.
Fundu flöskuskeyti og uppfylltu sextíu ára gamalt áheit
Hjónin Pétur Jónsson og Svava Kristjánsdóttir, eigendur Árdals á Hvanneyri, færðu nýlega Hvanneyrarkirkju andvirði tveggja ákavítisflaska til að uppfylla sextíu ára gamalt áheit sem þau fundu í flösku undir súð í húsi sínu.

Tíu banaslys á sjö árum rakin til þreytu ökumanns
Frá 1998 til 2005 létust tíu einstaklingar í umferðarslysum á Íslandi þar sem þreyta ökumanns var slysavaldur. Syfja er talin jafnhættuleg og ölvun við akstur. Sérfræðingur segir brýnt að vitundarvakning verði.

Óttast að Tamiflu geti valdið geðsýki
Tilkynnt hefur verið til lækna í Bandaríkjunum um alvarlegar geðrænar aukaverkanir hjá 120 börnum sem fengið hafa inflúensulyfið Tamiflu. Um 89 þúsund skammtar af lyfinu hafa verið keyptir hingað vegna hættu á fuglaflensu.
Auðmenn ráði ekki útliti miðbæjarins
Húsafriðunarnefnd og fjöldi íbúa mótmæla niðurrifi gamalla húsa og byggingu stórs verslunarhúss á Laugavegi. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir segir óþolandi að fjársterkir menn geti rifið gömul hús og byggt í staðinn það sem þeim sýnist.

Efnahagsbrotadeildin skilar greinargerð fyrir 5. desember
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra fékk í gær frest til þriðjudagsins 5. desember til þess að skila skriflegri greinargerð vegna kæru fimm einstaklinga er tengjast Baugsmálinu.

Hluti mæðraeftirlits nú á Landspítala
Eftirlit með konum í áhættumeðgöngu hefur færst frá miðstöð mæðraverndar yfir á Landspítala eftir að Heilsuverndarstöð Reykjavíkur flutti af Barónsstíg upp í Mjódd. Skiptar skoðanir eru um hið nýja fyrirkomulag.

Vísitala þorsks lækkar nokkuð
Stofnmæling botnfiska að haustlagi var gerð í ellefta sinn dagana 28. september - 30. október síðastliðinn. Rannsóknasvæðið miðast við landgrunn Íslands allt niður á 1.500 metra dýpi og er skipt í grunn- og djúpslóð.
almenn hegningarlög
1. 194. gr. Hver sem með ofbeldi eða hótun um ofbeldi þröngvar manni til holdlegs samræðis eða annarra kynferðismaka skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.
Hjúkrunarfræðingur til starfa á Kleppi gegn vilja sínum
Atvik milli tveggja hjúkrunarfræðinga að næturlagi heima hjá öðrum þeirra varð til þess að yfirmaður þeirra taldi ófært að þeir störfuðu áfram saman á geðsviði Landspítalans við Hringbraut. Annar hjúkrunarfræðingurinn, 36 ára gömul kona, var því flutt til í starfi og sagt að mæta til vinnu á Kleppi.

Uppbygging á undan áætlun
Bæjarstjórn Kópavogs ræðir í dag fyrirhugað eignarnám bæjarins á 863 hektara landi úr Vatnsendajörðinni.

Hálfrar aldar starfsemi lokið
Starfsemi Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur flutti á föstudag úr húsnæði sínu við Barónsstíg eftir rúmlega hálfrar aldar starfsemi þar.
Öryggiseftirlit til sýslumanns
Stjórnvöld eru að færa ríkisstofnunum verkefni á silfurfati að sögn Guðmundar Arasonar, framkvæmdastjóra Securitas, sem hefur, ásamt Öryggismiðstöðinni, annast öryggisleit á Keflavíkurflugvelli í samstarfi við Flugmálastjórn.
Auglýsir eftir frambjóðendum
Framsóknarflokkurinn hefur auglýst eftir framboðum fyrir flokkinn í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Styttri bið og fleiri komast að
Staðan á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar er mun betri nú en á sama tíma í fyrra þegar um 150 börn voru á biðlista eftir vistun að sögn Björn Inga Hrafnssonar, formanns Íþrótta- og tómstundaráðs. Dofri Hermannsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, gagnrýndi framgöngu meirihluta borgarstjórnar í málinu í Fréttablaðinu í gær.
Hælisleitendum fækkar
Hælisleitendum hefur fækkað um rúmlega helming hér á landi í ár frá því í fyrra en mál þeirra sem sækja um hæli eru flóknari og umfangsmeiri en áður. Hælisleitendur eru um þrjátíu það sem af er þessu ári. Í fyrra voru hælisumsóknirnar sjötíu og sex talsins og í hittifyrra sóttu tæplega níutíu manns um hæli hér á landi.

Dæmdur fyrir kynferðisbrot og klám
Karlmaður var í gær dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungri stúlku. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða henni 300 þúsund krónur með vöxtum í miskabætur og 200 þúsund króna sekt til ríkissjóðs. Loks var honum gert að greiða nær 300 þúsund krónur í sakarkostnað.
Haraldi enn haldið sofandi
Líðan Haraldar Hannesar Guðmundssonar, sem lenti í fólskulegri líkamsárás í London um þarsíðustu helgi, er óbreytt. Honum er haldið sofandi í öndunarvél.

Endurskoðuð flugslysaáætlun
Forsvarsmenn almannavarna á Keflavíkurflugvelli og ríkislögreglustjóri undirrituðu í gær nýja og endurskoðaða flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll.

Starfsmannaleigum fækkar
Starfsmannaleigum hefur fækkað um þrjár hér á landi það sem af er nóvembermánuði, samkvæmt nýjum upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Alls voru 28 starfsmannaleigur skráðar á Íslandi í síðustu viku, en 22 þeirra voru með virka starfsemi og 798 erlenda starfsmenn.
Stálu tækjum og skartgripum
Brotist var inn í tveggja hæða einbýlishús í Mosfellsbæ síðdegis á fimmtudaginn.