Íþróttir

Úrslitaleikirnir spilaðir í Moskvu og Róm
Knattspyrnusamband Evrópu hefur tilkynnt að úrslitaleikirnir í Meistaradeild Evrópu verði háðir í Moskvu árið 2008 og Róm árið eftir. Þá fer úrslitaleikurinn í Evrópukeppni félagsliða árið 2008 fram í Manchester á Englandi og í Istanbul í árið eftir.

Henry kjörinn besti útlendingur allra tíma
Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry hjá Arsenal hefur verið kjörinn besti útlendingur allra tíma til að spila í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var niðurstaða könnunar Sky sjónvarpsstöðvarinnar þar sem rúmlega 1,5 milljónir fólks fengu að kjósa. Landi hans Eric Cantona varð annar í kjörinu.

Hópurinn sem mætir Bandaríkjamönnum
Jörundur Áki Sveinsson hefur valið landsliðshóp sinn sem mætir sterku liði Bandaríkjanna í æfingaleik ytra á sunnudaginn og í hópnum er að finna einn nýliða, Helgu Sjöfn Jóhannesdóttur úr Stjörnunni.

Þrír leikir í kvöld
Þrír leikir fara fram í DHL-deildinni í handbolta í kvöld, tveir í karlaflokki og þá verður leikur Gróttu og ÍBV í kvennaflokki spilaður klukkan 19 á Seltjarnarnesi eftir að leiknum var frestað í gær. Í karlaflokki mætast Stjarnan og HK í Ásgarði klukkan 19 og Fram tekur á móti Haukum í Framhúsinu klukkan 20.

Meiddist á æfingu hjá Norrköping
Knattspyrnumaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson hjá ÍA er nú á leið heim frá Svíþjóð þar sem hann var til reynslu hjá liði Norrköping. Hafþór meiddist á æfingunni og þarf um viku til að jafna sig, en honum hefur verið boðið að koma aftur út þegar hann nær sér og mun hann þá væntanlega einnig fara til Noregs og reyna sig hjá Aalesund.

Gíbraltar að stofna landslið í knattspyrnu?
Nú er allt útlit fyrir að Gíbraltar eignist loksins sitt eigið knattspyrnulandslið eftir að evrópska knattsprnusambandið ógilti andmæli Spánverja sem vilja meina að land sem ekki er aðili að sameinuðu þjóðunum hafi ekkert með það að gera að spila í keppnum á vegum sambandsins.

Clichy og Senderos að verða klárir hjá Arsenal
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, getur nú glaðst yfir þeim tíðindum að tveir að leikmönnum hans sem verið hafa meiddir eru nú óðum að ná sér og ættu að verða klárir í slaginn þegar keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst eftir landsleikjahlé.

Jenas missti af æfingu
Enski landsliðsmaðurinn Jermaine Jenas æfði ekki með enska landsliðinu í dag eftir að hafa fengið högg á hnéð á æfingu í gær. Talsmenn enska liðsins segja meiðsli hans minniháttar og vonast til að hann verði klár í slaginn á laugardaginn þegar Englendingar leika við Makedóna og verður sá leikur sýndur beint á Sýn.

Ætlar ekki að hætta eftir tvö ár
Talsmaður enska knattspyrnumannsins David Beckham vísar orðum forseta Real Madrid á bug, en forsetinn sagði í viðtali í dag að Beckham væri búinn að ákveða að leggja skóna á hilluna eftir tvö ár.

Joey Barton sleppur við refsingu
Lögregluyfirvöld í Liverpool hafa ákveðið að aðhafast ekki frekar í máli Joey Barton hjá Manchester City sem beraði á sér bakhlutann framan við stuðningsmenn Everton eftir leik liðanna í deildinni á dögunum.

Þór/KA heldur stöðu sinni í deildinni
Lið Þórs/KA frá Akureyri heldur stöðu sinni í Landsbankadeild kvenna en ÍR þarf að láta sætta sig við að vera áfram í 1. deildinni þrátt fyrir að hafa unnið sér sæti í efstu deild í umspili á dögunum.

Fram skellti Haukum
Þrír leikir fóru fram í DHL deild kvenna í handknattleik. Fram vann óvæntan útisigur á Haukum 21-20, Valur lagði Stjörnuna 22-20 í Laugardalshöll og FH lagði lið Akureyrar 21-18 fyrir norðan.

Ætlar ekki að láta nördana skora hjá sér
Varnarmaðurinn sterki Auðunn Helgason hjá Íslandsmeisturum FH á von á því að spila sinn fyrsta leik eftir meiðsli gegn KF Nörd þegar liðin eigast við á Laugardalsvellinum annað kvöld. Auðunn á ekki von á því að fá sæti í byrjunarliðinu en segir ekki koma til greina að láta nördana skora hjá sér meðan hann er innan vallar.

Nordhorn í annað sætið
Lærisveinar Ola Lindgren í Nordhorn unnu góðan sigur á Magdeburg í leik kvöldsins í þýska handboltanum 29-25 á heimavelli sínum eftir að hafa verið yfir í hálfleik 16-13. Nordhorn skaust með sigrinum upp að hlið Gummersbach á toppi deildarinnar með 12 stig eftir 7 leiki, en Magdeburg er í 5. sæti með 10 stig eftir 7 leiki.
Leik Gróttu og ÍBV frestað
Leik Gróttu og ÍBV sem fara átti fram á Seltjarnarnesi nú klukkan 19 hefur verið frestað vegna ófærðar til og frá Vestmannaeyjum. Leikurinn verður þess í stað á dagskrá annað kvöld klukkan 19 ef veðurguðirnir lofa.

Landsleikjaveisla um helgina
Undankeppni EM landsliða verður efst á baugi í knattspyrnuheiminum um næstu helgi og í miðri viku og sjónvarpsstöðin Sýn verður að venju með fjölda leikja í beinni útsendingu, en þar ber hæst leikur Letta og Íslendinga í Riga á laugardaginn.

Óttast ekki að gera breytingar
Steve McClaren segist hvergi smeykur við að hrista upp í liði sínu fyrir leikinn gegn Makedóníu í undankeppni EM á laugardaginn, en meiðsli Owen Hargreaves gætu þýtt að enska liðið spilaði ekki hefðbundið 4-4-2 kerfi líkt og í undanförnum leikjum. Leikurinn á laugardaginn verður sýndur beint á Sýn klukkan 15:50 á undan leik Letta og Íslendinga.

Bellamy tekur við fyrirliðabandinu
Vandræðagemlingurinn Craig Bellamy hefur verið gerður að fyrirliða Wales í fjarveru hins meidda Ryan Giggs fyrir leikina gegn Slóvakíu og Kýpur í undankeppni EM í næstu viku.

Sutton til Aston Villa
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur náð samningi við framherjann Chris Sutton um að leika með liðinu það sem eftir lifir leiktíðar. Sutton var með lausa samninga eftir að hafa verið hjá Birmingham á síðustu leiktíð, en gengur nú til liðs við fyrrum stjóra sinn Martin O´Neill sem á í vandræðum með að manna framherjastöður sínar vegna meiðsla hjá Villa.

Lofar markaveislu annað kvöld
Logi Ólafsson segist verða milli steins og sleggju þegar hans menn mæta Íslandsmeisturum FH á Laugardalsvelli á morgun í kjölfar yfirlýsinga kollega hans Ólafs Jóhannessonar, þjálfara FH, á blaðamannafundi sem haldinn var í dag.

Þriðja umferðin hefst í kvöld
Í kvöld hefst þriðja umferð DHL-deildar kvenna í handknattleik með fjórum leikjum. Í Laugardalshöll mætast Valur og Stjarnan klukkan 20 og á sama tíma eigast við Haukar og Fram að Ásvöllum. Klukkan 19 eigast við Akureyri og FH í KA heimilinu fyrir norðan og Grótta mætir ÍBV á Seltjarnarnesi.

Við erum í mjög erfiðum riðli
Martin Jol segir sína menn í Tottenham hafa lent í mjög erfiðum B-riðli Evrópukeppni félagsliða í dag en liðið mætir þar Besiktas, Leverkusen, Club Brugge og Dinamo Búkarest.

Erfitt verkefni bíður Newcastle og Tottenham
Nú er búið að draga í riðla í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu og ljóst að ensku liðin þrjú sem komust í riðlakeppnina fá þar verðuga samkeppni. Þá lenti Íslendingalið AZ Alkmaar í riðli með Evrópumeisturum Sevilla frá Spáni.

Eigandi Memphis Grizzlies selur hlut sinn
Milljarðamæringurinn Michael Heisley hefur selt 70% hlut í NBA liðinu Memphis Grizzlies til hóps fjárfesta fyrir um 360 milljónir dollara. Hópurinn samanstendur af mörgum einstaklingum en sá þekktasti er líklega fyrrum leikmaðurinn Christian Laettner sem lagði skóna á hilluna í NBA í fyrra.

Dida hættur
Markvörðurinn Dida hjá AC Milan hefur tilkynnt landsliðsþjálfara sínum Dunga að hann gefi ekki kost á sér í brasilíska landsliðið á næstunni, en þessi 32 ára gamli markvörður hefur verið í hópnum á síðustu þremur heimsmeistaramótum.

Luke Moore frá út leiktíðina?
Sóknarmaðurinn ungi Luke Moore hjá Aston Villa þarf að öllum líkindum að fara í uppskurð vegna þrálátra meiðsla á öxl og svo gæti farið að hann yrði frá keppni það sem eftir lifir tímabils vegna þessa.
Brann lagði Odd Grenland
Síðasti leikurinn í 22. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fór fram í kvöld. Íslendingalið Brann vann þar 1-0 sigur á Odd Grenland og þar spilaði FH-ingurinn Ármann Smári Björnsson sinn fyrsta leik fyrir norska félagið. Hann spilaði allar 90 mínúturnar líkt og Ólafur Örn Bjarnason, en Kristján Sigurðsson var í leikbanni að þessu sinni.

Jaliesky Garcia úr leik í 6 mánuði
Íslenski landsliðsmaðurinn Jaliesky Garcia leikur ekki með íslenska landsliðinu á HM í Þýskalandi í byrjun næsta árs eftir að hann sleit krossbönd í hné á æfingu með liði sínu Göppingen á föstudag og verður hann frá keppni í að minnsta kosti hálft ár.

Samdi við Duisburg í Þýskalandi
Landsliðskonan og markamaskínan Margrét Lára Viðarsdóttir skrifaði um helgina undir samning við þýska liðið Duisburg sem gildir til ársins 2008. Margrét Lára fór á kostum með liði Vals í Landsbankadeildinni í sumar og sló meðal annars markametið í deildinni með því að skora 34 mörk.

Frekari meiðsli í herbúðum Tottenham
Frekari skörð voru höggvin í leikmannahóp enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham í gær eftir sigurinn á Portsmouth, en þeir Michael Dawson og Pascal Chimbonda geta ekki æft með liðinu næstu viku vegna meiðsla. Dawson fékk heilahristing eftir samstuð við félaga sinn Tom Huddlestone og þurfti að leggjast inn á sjúkrahús í gærkvöld, en Chimbonda meiddist á kálfa og verður frá í að minnsta kosti viku.