Lögreglan

Hettuklæddur vandali skemmdi Teslu Gríms yfirlögregluþjóns
„Alls ekki góð þróun,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari spurður um hvort ekki megi heita óhugnanlegt að ráðist sé að nafngreindum einstaklingum innan lögreglunnar.

Fangar í mygluðu húsnæði í Reykjanesbæ
Lögreglustöðin á Hringbraut í Reykjanesbæ er ónothæf vegna myglu og raka. Fangagangur byggingarinnar er þó enn í notkun, en hann hefur verið einangraður frá öðrum rýmum hússins. Þar er bæði átt við um aðstöðu fanga sem og lögreglumanna á fangavakt.

Kærir sjálfan sig til lögreglu
Árni Guðmundsson hefur gefið sig fram við laganna verði og játar brot sitt gagnvart áfengislöggjöfinni undanbragðalaust. Hann segist sekur um að hafa keypt áfengi ólöglega.

Mátti synja meintum nasista um inngöngu í lögregluskólann
Umboðsmaður Alþingis hefur með áliti lagt blessun sína yfir ákvörðun Ríkislögreglustjóra um að synja manni um inngöngu í starfsnám hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu. Í ákvörðun sinni leit Ríkislögreglustjóri meðal annars til þess að starfsfólk framhaldsskóla, sem maðurinn gekk í, hafi lýst yfir áhyggjum af ummælum hans um múslima og að hann væri hliðhollur nasistum.

Í leyfi vegna gruns um brot gegn samstarfskonu
Yfirmaður hjá lögreglunni á Suðurlandi hefur verið marga mánuði í leyfi á meðan héraðssaksóknari hefur haft kæru samstarfskonu hans til rannsóknar. Málið er nú á borði ríkissaksóknara.

Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan
Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt.

Segir lögreglustjórann á Vestfjörðum vanhæfan í málinu
Landssamband veiðifélaga hyggst kæra ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á slysasleppingu eldislax úr fiskeldisstöð Arcitc Sea Farm í Patreksfirði í ágúst. Framkvæmdastjóri sambandsins segir ljóst að vanhæfi lögreglustjórans á Vestfjörðum í þessu máli sé algjört.

Hulda Elsa aðstoðar dómsmálaráðuneytið
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, fyrrverandi aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið fengin til að miðla af sérþekkingu sinni innan dómsmálaráðuneytisins.

Áhætta tengd spilakössum áður talin mikil en nú veruleg
Áhætta vegna sýndareigna er metin mikil í nýrri áhættumatsskýrslu sem Ríkislögreglustjóri hefur sent frá sér. Að auki er áhætta tengd spilakössum metin veruleg. Þá er áhætta vegna peningaþvætti tengdum peningasendingum milli landa metin minni en áður.

Kynþáttur hafi verið handtökunni óviðkomandi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist í engu kannast við þá atvikalýsingu sem komið hefur fram vegna handtöku karlmanns sem handtekinn á aðfangadagskvöld. Stöðvarstjóri segir ekkert óeðlilegt við handtöku mannsins og að kynþáttur hans sé málinu óviðkomandi.

Kýldi lögregluþjón í andlitið
Maður sem handtekinn var í nótt, grunaður um ölvunarakstur og akstur án ökuréttinda, veittist að lögregluþjóni og sló með krepptum hnefa í andlitið þegar verið var að keyra hann heim að sýnatöku lokinni. Maðurinn var því handtekinn á ný og vistaður í fangaklefa. Talsvert var um hótanir og ofbeldi gagnvart lögreglumönnum við störf í gærkvöldi og í nótt.

Lögregla hafi farið langt yfir eðlileg mörk með handtöku lögmanns
Lögmenn á Landi lögmönnum, lögmannsstofu sem þrír lögreglumenn mættu á í gær og handtóku einn lögmann, segja engan vafa leika í huga þeirra á því að lögreglan hafi með aðgerðum sínum farið langt yfir eðlileg og málefnaleg mörk og hugsanlega gerst brotleg við lög.

Á ekki rétt á bótum eftir Hraunbæjarmálið
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar um að sýkna Vátryggingafélag Íslands, VÍS, af kröfum fyrrverandi sérsveitarmanns sem glímdi við sálfræðilegar afleiðingar þess að taka þátt í aðgerðum sérsveitarinnar sem leiddu til dauða manns í Árbæ í Reykjavík í desember 2013.

Fimm erfið starfsmannamál litin alvarlegum augum
Fimm mál er varða kynferðislega eða kynbundna áreitni, einelti eða ofbeldi starfsfólks lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa verið til meðferðar hjá embættinu á árinu. Upplýsingafulltrúi lögreglu segir í öllum tilvikum hafa verið brugðist við í samræmi við reglugerð. Málin séu öll sem eitt litin alvarlegum augum. Veita á starfsfólki aukna fræðslu um mörk í samskiptum

„Þarna var gengið mun lengra en það sem við teljum ásættanlegt“
Sviðsstjóri öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra segir atvik þar sem glimmeri var kastað yfir utanríkisráðherra vera eitthvað sem ekki er hægt að sætta sig við. Atvikið hefur áhrif á hvernig öryggisgæslu ráðherra er háttað.

Kaup starfsfólks lögreglu á fatafellum „botnlaust dómgreindarleysi“
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lítur atvik sem átti sér stað í vinnuferð starfsmanna embættisins alvarlegum augum. Þrír starfsmenn embættisins fóru út á lífið eftir vinnuferð og pöntuðu sér fatafellu. Fyrrverandi þingmaður segir málið vont.

Mygla í samhæfingarstöð almannavarna
Víðir Reynisson segir að það hafi komið upp mygla í rými í samhæfingarstöð almannavarna. Rýminu hefur verið lokað og lokunin mun ekki hafa áhrif á starfsemina. Til greina kemur að flytja starfsemina tímabundið annað á meðan unnið er að viðgerðum.

Starfskonur lögreglunnar leigðu strippara í Auschwitz
Starfsmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru til skoðunar vegna máls sem upp kom í kjölfar vinnuferðar til Auschwitz í Póllandi í nóvember. Kynningarfulltrúi embættisins segir málið litið alvarlegum augum.

Hálftími leið frá því að bjöllu var hringt þar til fanga var sinnt
Bæta þarf eftirlit með þeim sem vistuð eru í fangageymslu lögreglunnar á Suðurlandi á Selfossi. Í of miklum mæli er eingöngu notast við myndvöktun og reglubundnu innliti í klefa ekki sinnt sem skyldi.

Þrettán starfsmenn fylgdu um 180 Venesúelabúum heim
Þrettán starfsmenn fylgdu tæpum 180 Venesúelabúum til Caracas í nóvember. Dagpeningar íslensku starfsmannanna námu 1,9 milljón króna þá fimm daga sem ferðalagið tók. Stefnt er að annarri sambærilegri ferð í janúar. Nær allur kostnaður íslenska ríkisins er endurgreiddur af Frontex.

Óttast að vopnavæðing lögreglu auki ofbeldi í samfélaginu
Þingmaður Pírata gagnrýnir aukinn vopnaburð lögreglu með rafbyssum og óttast að hann muni stigmagna ofbeldi í samfélaginu. Dómsmálaráðherra segir enga stefnubreytingu hafa átt sér stað varðandi valdbeitingarheimildir lögreglunnar.

Ég um mig frá mér til ég ræð
Forkastanlegt bann það sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur af kunnuglegri ofurforsjárhyggju og fruntaskap sett á vegna núverandi atburða í Grindavík er ekki einvörðungu að verða okkur til atlægis úti í heimi heldur eru gjörðir hans og þvermóðska lílkleg til þess að valda landinu og ferðaþjónustunni stórum skaða sem hæglega getur hlaupið á miljörðum.

Kærir takmörkun aðgengis: Ótækt að fjölmiðlar þurfi að eiga í stríði við lögreglustjóra
Blaðamannafélag Íslands hefur kært til dómsmálaráðuneytisins fyrirmæli lögreglustjórans á Suðurnesjum um takmörkun á aðgengi fjölmiðla að hættusvæði á Reykjanesskaganum. Félagið krefst þess að fyrirmælin verði felld úr gildi eða þeim breytt á þann hátt að aðgangur fjölmiðla að hættusvæðinu verði rýmkaður.

Tilkynntar nauðganir ekki færri í þrettán ár
Umtalsverð fækkun hefur verið á tilkynningum um kynferðisbrot til lögreglu. Ekki hafa færri nauðganir verið tilkynntar á síðustu þrettán árum. Verkefnastjóri hjá lögreglunni segir tölurnar líkjast því sem sást í Covid-faraldrinum.

Keyptu byssur fyrir 165 milljónir en gefa ekki upp fjöldann
Mat dómsmálaráðuneytisins er að birting nákvæmra upplýsinga yfir byssur í eigu lögreglu falli undir lykilupplýsingar um viðbragðsgetu lögreglu. Hún geti þar með haft afdrifaríkar afleiðingar, stofnað öryggi ríkisins í hættu og haft áhrif á öryggi lögreglumanna. Skotvopn voru keypt fyrir 165 milljónir króna fyrr á árinu vegna leiðtogafundar í Hörpu.

Með hendur í vösum?
Ágæta Halla. Íslendingar skilja út á hvað lýðheilsa gengur. Skilja mikilvægi þess að hafa regluverk sem hefur verndandi áhrif. Ekki síst í þágu barna og ungmenna. Íslendingar flestir vita að áfengi, tóbak og nikótín eru heilsuspillandi vörur sem geta undir engum kringumstæðum flokkast sem venjulegar vörur.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum setur fjölmiðlum ótækar takmarkanir
Formaður Blaðamannafélags Íslands segir víðtækar takmarkanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum á störf fjölmiðla í og í kringum Grindavík ótækar. Fjölmiðlar væru hindraðir í að hafa eftirlit með aðgerðum yfirvalda og til að afla upplýsinga sem vörðuðu Grindvíkinga og allan almenning í landinu.

Víðtæk lokun hindrar för um stóran hluta Reykjanesskaga
Akstursbann það sem Almannavarnir tilkynntu um á föstudagskvöld á öllum leiðum til Grindavíkur er enn í gildi. Svo víðtæk er lokunin að hún bannar för ökutækja um stóran hluta Reykjanesskagans.

Lögreglumaður ákærður fyrir að slá liggjandi mann ítrekað með kylfu
Lögreglumaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi vegna atviks sem átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur í lok maí á þessu ári.

Hefur enn ekki fengið svör um byssukaup
Þingmaður Pírata furðar sig á því að sér hafi ekki borist svör frá dómsmálaráðherra við fyrirspurn sinni um vopnakaup lögreglu. Fyrirspurnin var lögð fram í maí og svo aftur á nýju þingi. Ráðuneytið segir svara að vænta 15. nóvember, degi eftir sérstaka umræðu um málið á þingi.