Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Fréttamynd

Nokkur orð um samkeppni og íslenskan landbúnað

Almennt göngum við Íslendingar út frá því að allir séu jafnir fyrir lögum og reglum samfélagsins. Og þannig á það líka að vera. Á þessu eru þó nokkrar undantekningar enda íslenskt samfélag um margt sérstakt vegna smæðar sinnar og einangrunar.

Skoðun
Fréttamynd

Að agnúast út í sjálfa sig

Í vikunni skrifaði sá ágæti prófessor og fræðimaður, Torfi Tulinus grein í Fréttablaðið um pólitík. Þegar ég hóf lesturinn á grein hans fór ég brátt að agnúast út í sjálfa mig og spyrja hvaða ekkisens vitleysu ég hefði nú látið frá mér. Hvort ég gæti ekki komið skilaboðum um aukið samtal, sátt og samvinnu óbrengluðum frá mér?

Skoðun
Fréttamynd

Jafnlaunavottun: Lykillinn að frjálsum vinnumarkaði

Þegar tekið hefur verið tillit til allra málefnalegra þátta sem skilja á milli starfsmanna; vinnustundir, menntun, reynsla og geta, stendur eftir að konur fá að meðaltali 10% lægri laun en karlar fyrir sama starf. Þetta er óásættanlegt og það sem meira er, þetta er ólöglegt.

Skoðun
Fréttamynd

Atkvæðið mitt og atkvæðið þitt

Það er grundvallarréttur fólks í lýðræðisríki að geta gengið til kosninga og að allir geti með atkvæði sínu haft jafnan rétt til að hafa áhrif á hverjir og hvers konar stjórnvöld komast til valda.

Skoðun
Fréttamynd

Nauðsynlegar sameiningar háskóla

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fv. ráðherra, fer yfir sameiningar Háskóla (HÍ) í Fréttablaðinu mánudaginn 5. maí sl. og nefnir þar sameiningu Tækniskólans og Háskólans í Reykjavík og HÍ og Kennaraháskólans. Þá nefnir Þorgerður áhuga menntamálaráðherra á að sameina HÍ og Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ)

Skoðun
Fréttamynd

Nauðsynlegar sameiningar háskóla

Það er ánægjulegt að nú er talað kinnroðalaust um mikilvægi sameininga á háskólastigi. Er það breyting frá þeirri stefnu sem mótuð var af síðustu ríkisstjórn þegar sameiningar skóla komust ekki á dagskrá.

Skoðun
Fréttamynd

Að treysta neytendum

Hvað sem líður umsókn Íslands að Evrópusambandinu er ljóst að við Íslendingar þurfum að taka tolla- og vörugjaldalöggjöf okkar til gagngerrar endurskoðunar.

Skoðun
Fréttamynd

Sköpum samstöðu

Forysta stjórnarflokkanna nærist á átökum. Það er gömul saga og ný. Það er því eftir öðru að helsta markmið formanns VG virðist nú vera að losna við efnahags- og viðskiptaráðherrann úr ríkisstjórn. Hann hefur ógnað foringjaræðinu sem forsætisráðherra og fjármálaráðherra virðast hafa tileinkað sér. Enginn treystir Steingrími Joð fyrir alvaldi í efnahagsmálum, en hann virðist ekki hlusta nú frekar en fyrri daginn.

Skoðun
Fréttamynd

Afturkippur í jafnrétti

Staðan er þessi: um 540 opinberum starfsmönnum hefur verið sagt upp, þar af voru 470 konur en 70 karlar, fæðingarorlofsgreiðslur hafa verið stórlega lækkaðar, börn komast seinna inn á leikskóla og launamunur kynjanna hefur lítið minnkað.

Skoðun
Fréttamynd

Útskriftargjöfin til háskólanema

Það setti að mér hroll, þegar ég sá auglýsinguna frá Bandalagi háskólamanna undir yfirskriftinni "útskriftargjöf til háskólanema“ og svo var mynd af farmiða til útlanda – en bara aðra leiðina. Er þetta sú leið, sem ríkisstjórnin vill fara? Búa til þjóðfélag , sem hrekur burt hæfasta og menntaðasta fólkið?

Skoðun
Fréttamynd

Sýndarmennska um sáttanefnd?

Það sem Íslendingar þurfa er sterkara atvinnulíf. Óvissa og óljós framtíð í helstu atvinnugreinum landsins er óþolandi. Það er alið á tortryggni og andúð á ákveðnum stéttum fólks. Niðurstaðan er kyrrstaða í íslensku atvinnulífi.

Skoðun
Fréttamynd

Við styðjum öll athafnasemi

Í gegnum sögu Íslands hafa margvísleg áföll dunið yfir þjóðina. Sum hafa verið af völdum náttúru og önnur hafa verið efnahagsleg.

Skoðun
Fréttamynd

Ríkisstjórn biðstöðunnar

Það er ekki sérlega mikið í tísku að líta björtum augum til framtíðarinnar, allt að því að maður sé litinn hornauga ef talað er um þau tækifæri sem gefast á erfiðum tímum. Þau eru nefnilega mýmörg ef rétt er á málum haldið. En að fortíð skal hyggja er framtíð skal byggja.

Skoðun
Fréttamynd

Uppbygging og endurmat

Þau áföll sem dunið hafa yfir okkur Íslendinga á síðustu vikum hafa áhrif inn á hvert einasta heimili landsins. Næstu mánuðir verða erfiðir, mjög erfiðir, fyrir fólkið, heimili og fyrirtæki í landinu. Margir hafa beðið mikið fjárhagslegt tjón, enginn er ósnortinn. Um allt land, í hverri götu eru fjölskyldur í sárum. Það þýðir hins vegar ekkert að leggja árar í bát.

Skoðun
Fréttamynd

Kaflaskil í gæðamálum

Fyrir helgi voru birtar tölur um að árleg útgjöld til menntamála hafa aukist um 15 milljarða króna á síðustu níu árum, með tilliti til verðlagsbreytinga. Það jafngildir tæplega 70% aukningu. Í krónum talið hafa útgjöldin aukist mest á háskólastigi eða um 9,2 milljarða króna, sem jafngildir 95% aukningu. Þau fara úr 9,6 milljörðum kr. árið 1998 í 18,8 milljarða í ár.

Skoðun
Fréttamynd

Stórkostleg sókn í menntamálum

Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með þróun menntamála á Íslandi á undanförnum árum. Á örskömmum tíma hefur Ísland siglt fram úr nær öllum öðrum þjóðum þegar kemur að sókn ungmenna í menntun. Nú er svo komið að engin önnur þjóð ver hærra hlutfalli af þjóðartekjum sínum til menntamála en Íslendingar.

Skoðun
Fréttamynd

Framlag okkar bjargar mannslífum

Í dag verður haldin landssöfnun UNICEF á Íslandi. Ég fékk nýlega tækifæri til að sjá með eigin augum hversu miklu starf UNICEF getur skilað er ég heimsótti Afríkuríkið Síerra Leóne ásamt fulltrúum frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Skoðun
Fréttamynd

Endurgreiðslubyrði námslána lækkuð

Námslán - Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra Með þessu verið að létta róðurinn verulega hjá lánþegum Lánasjóðsins og uppfylla það loforð ríkisstjórnarinnar að lækka endurgreiðslubyrði námslána.

Skoðun