Viðreisn

Fréttamynd

„Þetta mun auka enn á vald Ríkis­út­varpsins“

Utanríkisráðherra þykir afleitt að síðasti kvöldfréttatími Sýnar verði sýndur í kvöld. Dapurlegt sé að fjölmiðlaumhverfi verði þrengra en áður þekktist. Formaður Miðflokksins hefur áhyggjur af því að vald Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði aukist enn við breytingarnar.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert á­kveðið á fundinum: „Það væru frá­leit við­brögð við þessari niður­stöðu“

Utanríkisráðherra segir að ekkert hafi verið á ákveðið á fundi utanríkismálanefndar, sem boðað var til í morgun. Til umræðu var hvort draga ætti umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka og bókun 35. Formaður Miðflokksins segir að það væri með ólíkindum ef bókunin yrði keyrð í gegnum þingið í kjölfar afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Valkyrjur hafa tapað kosningunum sem fram fóru í gær, þær séu ekki með nokkru móti sigurvegarar. Hún segir kosningabaráttu SJÁ hafa verið á skjön við það sem forsætisráðherra hefur áður sagt í þinginu. Sú síðarnefnda biðlar til stjórnarandstöðunnar að sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr um hvað málið snúist.

Innlent
Fréttamynd

„Stór­kost­legur ó­sigur“ bæði Sam­fylkingar og Við­reisnar

Niðurstaða þjóðaratkvæðisins hefur verið til umfjöllunar á evrópskum miðlum í dag. Heilt yfir eru miðlar sammála um helstu deiluatriði kosningabaráttunnar þar sem já-hliðin tali um kjör almennings á meðan nei-hliðin tefli fram fullveldisrökum og sjávarútvegsmálum. Einhverjir miðlar segja að Ísland hafi með þessu „loka dyrunum“ og aðrir segja niðurstöðuna vonbrigði eða jafnvel bakslag fyrir ESB.

Innlent
Fréttamynd

„Lands­byggðin okkar stendur sterk”

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði ríkisstjórnina í góðu sambandi við landsbyggðina. Landsbyggðin standi sterk en niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar geti þýtt að staða fólks á höfuðborgarsvæðinu sé verri en þeirra á landsbyggðinni. Sterkara ákall hafi verið á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi viðræður en á landsbyggð. 

Innlent
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin virði niður­stöðuna og taki málið af dag­skrá

Formenn ríkisstjórnarflokkanna segjast stoltar af því að hafa lagt málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin hafi fengið sitt að segja og ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og ætli ekki að halda viðræðum áfram. Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða niðurstöðuna og framhaldið. 

Innlent
Fréttamynd

Niður­staðan sé tölu­vert á­fall fyrir ríkis­stjórnina

Formenn stjórnarandstöðu segja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar mikið áfall fyrir ríkisstjórnina. Þau árétta að Evrópusamstarf sé Íslandi enn mikilvægt en skilaboð þjóðarinnar séu skýr til ríkisstjórnar um að einbeita sér að þeim verkefnum sem þau voru kjörin til að leysa, eins og að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þau hafi ætlað að gera það með Evrópusambandinu en meirihluti þjóðar hafi ekki trúað á þá lausn. 

Innlent
Fréttamynd

Forystukonum ríkis­stjórnarinnar brugðið vegna al­var­legra hótana

Forystukonum ríkisstjórnarinnar er brugðið vegna alvarlegra hótana sem hafi borist undanfarnar vikur. Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu. Forsætisráðherra segir umræðuna í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna að mestu hafa verið góða en varar við rangfærslum og misvísandi upplýsingum.

Innlent
Fréttamynd

Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðug­leika“

Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“.

Innlent
Fréttamynd

Raun­veru­legt sjálf­stæði

Íslenskt samfélag hefur um aldir verið mótað af fákeppni og stéttaskiptingu. Jarðir og auðlindir á höndum kirkjunnar, örfárra bænda og höfðingja. Alþýða fólks bjó við erfið kjör og mjög takmörkuð tækifæri til að bæta hag sinn og sinna.

Skoðun
Fréttamynd

Full­veldi þjóðar og frelsi ein­stak­lings

Einstaklingur sem leggur hart að sér en sér stóran hluta launanna hverfa í vexti í hverjum mánuði er ekki eins frjáls og hann ætti að vera. Ungt fólk sem kemst ekki að heiman vegna þess að það kemst ekki í gegnum greiðslumat er ekki frjálst til að hefja eigið líf. Par sem frestar barneignum vegna húsnæðisverðs hefur færri valkosti. Eigandi lítils fyrirtækis sem hættir við að fjárfesta vegna vaxtakostnaðar hefur ekki frelsi til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika.

Skoðun
Fréttamynd

Hiti á fundi borgar­ráðs vegna breytinga á matarþjónustu

Samhliða því að hætta við endurbætur á eldhúsi Reykjavíkurborgar á Vitatorgi og hækka gjaldskrá veitinga og fæðis hjá Reykjavíkurborg var ákveðið á fundi borgarráðs í vikunni að bjóða út dreifingu máltíðanna. Töluverður hiti var á fundinum en til umræðu voru nokkrar tillögur er varða framleiðslu, dreifingu og sölu á máltíðum fyrir lífeyrisþega og fatlað fólk í Reykjavík. 

Innlent
Fréttamynd

Baunað á Jónas Má þvert á flokka

Bókað var í gríð og erg á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær, þegar bæjarfulltrúar allra flokka nema Samfylkingar sökuðu Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingar, um að taka stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins.

Innlent
Fréttamynd

Snerti sam­starfs­konu á ó­sæmi­legan hátt

Jakob Birgisson uppistandari og fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra gengst við því að hafa snert samstarfskonu sína í ráðuneytinu á ósæmilegan hátt. Hann lét af störfum hjá ráðuneytinu í kjölfarið og hætti allri áfengisneyslu. 

Innlent
Fréttamynd

Fleiri þing­menn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara

Í það minnsta 29 þingmenn ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Sumir þingmenn vilja ekki gefa upp afstöðu sína á meðan aðrir svara ekki fyrirspurn. Fleiri segja nei en já af þeim 51 sem svara. 

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn fjar­lægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“

Færsla þar sem æðruleysisbæninni hafði verið breytt í svokallaða „krónuleysisbæn“ var birt í dag, sunnudaginn 16. ágúst, á Facebook-síðu Viðreisnar en henni var skömmu seinna eytt út. Framkvæmdastjóri Viðreisnar segir ástæðuna einfaldlega þá að viðbrögðin við færslunni hafi verið verri en búist var við en að það hafi aldrei verið ætlunin að særa neinn með þessari uppfærðu útgáfu af bæninni.

Innlent
Fréttamynd

„Þjóðin á rétt á að vita“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skýrt eftir viðtal við utanríkisráðherra í Íslandi í dag að ríkisstjórnin vilji fyrst fá umboð þjóðarinnar og síðan ákveða endanleg samningsmarkmið. Guðrún segist treysta þjóðinni.

Innlent
Fréttamynd

„Ég get ekki orða bundist“

Ingibjörgu Davíðsdóttur, þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi sendiherra, þykir utanríkisráðuneytið fara yfir strikið með því að deila grein sem utanríkisráðherra ritar í Bændablaðið í dag. Ráðuneytið bendir henni á að löng hefð sé fyrir því að skrifum utanríkisráðherra sé deilt á miðlum ráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Dregur úr á­nægju með frammi­stöðu ríkis­stjórnar­flokkanna

Ánægja með frammistöðu stjórnarflokkana virðista hafa minnkað, ef marka má nýja skoðanakönnun Maskínu. Alls þykja 34 prósentum Samfylkingin hafa staðið sig vel á þingvetrinum sem liðinn er, samanborið við 46 prósent í fyrra og 28 prósentum þykja Viðreisna hafa staðið sig vel, samanborið við 43 prósent í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Ekki gott að mögu­leg lög­brot hafi fengið að malla árum saman

Dómsmálaráðherra segir ekki gott að möguleg brot á lögum um sölu áfengis hafi fengið að „malla“ árunum saman. Staðan nú sé hvorki góð fyrir stjórnvöld né lögreglu og almenningur spyrji sig hvers vegna ekkert hafi verið gert. Málið sé hinsvegar rammpólitískt og mjög skiptar skoðanir séu um hvaða leið sé best að fara í þessum efnum.

Innlent
Fréttamynd

Mikið fylgistreymi milli Mið­flokksins og Sjálf­stæðis­flokksins

Mikil fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins stafar líklega af fylgistreymi frá Miðflokknum að sögn stjórmálafræðings. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna annars vegar og stjórnarandstöðu hins vegar hafi haldist heldur stöðugt en miklar hreyfingar séu á fylgi innan stjórnarandstöðunnar. 

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkur mælist stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25 prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu og er stærsti flokkurinn í könnunum fyrirtækisins í fyrsta sinn í hálft annað ár. Samfylkingin mælist skammt á eftir með 24,4 prósent.

Innlent
Fréttamynd

„One love“ til allra í kommenta­kerfinu

Þingmaður sem sótti opnun á nýju menningarhúsi gyðinga blöskrar orðræða í þeirra garð. Hann vonar að starfsemin verði til þess að skapa vitræna umræðu um samfélag gyðinga á Íslandi og segir mannfyrirlitninguna sorglega.

Innlent