Simbabve

Ólíklegt að hagræðingarásakanir hætti
Fyrstu forsetakosningar Simbabve eftir valdatíð Mugabes fóru fram á mánudag. Niðurstöður kynntar í gærkvöldi. Útlit fyrir sigur sitjandi forseta. Stjórnarandstæðingar sögðu að niðurstöðunum yrði hagrætt.

Sitjandi forseti lýstur sigurvegari kosninganna í Simbabve
Sex liggja í valnum eftir að herinn lét til skarar skríða gegn stjórnarandstæðingum sem hafa mótmælt meintu kosningasvindli.

Zanu-PF náði flestum þingsætum
Stjórnarflokkurinn í Simbabve virðist hafa náð flestum þingsætum samkvæmt tölum frá kjörstjórn þar í landi.

Stjórnarandstaðan lýsir yfir sigri í Simbabve
Niðurstaða kosninga í gær hefur ekki verið opinberuð og verður ekki opinberuð fyrr en öll atkvæði hafa verið talin, samkvæmt yfirkjörstjórn ríkisins.

Mnangagwa sakaður um að svindla í kosningunum
Nelson Chamisa, forsetaframbjóðandi Hreyfingarinnar fyrir lýðræðisumbætur í Simbabve, sagðist í gær sigurviss þrátt fyrir að kjörstjórn "svindlaði og prettaði“ til þess að hjálpa Emmerson Mnangagwa, sitjandi forseta og frambjóðanda Afríska þjóðarbandalags Simbabve.

Segir bölvun hvíla á nafni Simbabve
Nelson Chamisa, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, lofaði því í gær að ef hann kæmist til valda myndi hann breyta nafni ríkisins

Mikil reiði í garð bandarískrar konu sem drap sjaldgæfan gíraffa
Mikil reiði hefur brotist út á samfélagsmiðlum í garð Tess Thompson Talley, 37 ára gamallar konu frá Kentucky í Bandaríkjunum, vegna þess að hún fór á veiðar í Suður-Afríku í fyrra og drap þá gíraffa sem tilheyrir sjaldgæfri tegund.

Forseti Simbabve óhultur eftir sprengjuárás
Háttsettir embættismenn eru sagðir á meðal þeirra sem særðust í sprengingu á kosningafundi forsetans.

Simbabve vill aftur í Breska samveldið
Forseti Simbabve Emmerson Mnangagwa hefur sótt um inngöngu í Breska samveldið, einnig hefur hann boðað til kosninga sem munu fara fram í júlí.

Fegurðarsamkeppni gegn fordómum
Fyrsta fegurðarsamkeppni albínóa í Simbabve var haldin í höfuðborginni Harare í kvöld þar sem hin 22 ára gamla Sithembiso Mutukura bar sigur úr býtum.

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve látinn
Morgan Tsvangirai lést í Suður-Afríku í gær, 65 ára að aldri.