Erlent

Zanu-PF náði flestum þingsætum

Atli Ísleifsson skrifar
Emmerson Mnangagwa tók við embætti forseta af Robert Mugabe.
Emmerson Mnangagwa tók við embætti forseta af Robert Mugabe. Vísir/EPA
Stjórnarflokkurinn í Simbabve, Zanu-PF, virðist hafa náð flestum þingsætum samkvæmt tölum frá yfirkjörstjórn þar í landi. Forseta- og þingkosningar fóru fram í landinu á mánudag.

BBC  greinir frá því að fastlega sé búist við að Emmerson Mnangagwa forseti hafi sigrað, sem og að flokkur hafi náð öruggum meirihluta í báðum deildum þingsins.

Talsmenn stjórnarandstöðuflokksins, MDC bandalagsins, segja hins vegar brögð hafa verið í tafli og að frambjóðandi þeirra, Nelson Chamisa, hafi borið sigur úr býtum.

Alþjóðlegir eftirlitsaðilar munu kynna niðurstöður sínar varðandi framkvæmd kosninganna síðar í dag.

Fyrstu kosningarnar eftir valdatíð Mugabe

Þetta eru fyrstu kosningarnar í landinu frá því að hinn þaulsetni Robert Mugabe var bolað úr embætti. Mugabe neitaði að lýsa yfir stuðningi við Mnangagwa.

Ríkisfjölmiðlar í Simbabve hafa greint frá því að yfirkjörstjórn hafi enn sem komið er greint frá því að Zanu-PF hafi náð 110 þingsætum og MDC bandalagið 41.Alls eiga 210 sæti í neðri deild þingsins.

Kjörsókn mældist um 70 prósent, nokkuð hærri en búist var við.


Tengdar fréttir

Mugabe snýr baki við gömlum félögum

Forseta- og þingkosningar fara fram í Simbabve í dag. Þetta eru fyrstu kosningarnar sem haldnar eru eftir að Robert Mugabe var steypt af stóli í nóvember á síðasta ári eftir 37 ára valdatíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×