Kjaramál

„Þeir þurfa bara að bakka og segja já“
Kröftug mótmæli voru haldin fyrir framan húsnæði Samtaka íslenskra sveitarfélaga í morgun. Lúðrar voru þeyttir og „Sömu laun fyrir sömu störf“ var hrópað síendurtekið. Skipuleggjendur mótmælanna segja að Sambandið þurfi einfaldlega að mæta kröfum BSRB, sem muni ekki slá af kröfum sínum.

Mæður í Hveragerði búnar að fá sig fullsaddar af stöðunni
Þrjár mæður sem búa í Hveragerði, og hafa fengið nóg af samningsleysi og verkföllum, boða til samstöðufundar klukkan tíu í fyrramálið fyrir starfsfólk BSRB en samstöðufundurinn er haldinn við Borgartún 30 í Reykjavík þar sem Samband íslenskra sveitarfélaga er til húsa.

Félög BSRB eiga digra sjóði sem duga í langt verkfall
Sveitarfélögin hafa ekki samið um leiðréttingu eða eingreiðslu við önnur stéttarfélög sem nýlega er samið við eins og BSRB krefst þess að fá. Formaður BSRB segir greiðsluna hins vegar réttlætismál og þau ellefu félög sem nú væru í verkfalli ættu digra sjóði sem gætu staðið undir verkfallsbótum í langan tíma.

Segja fátækum hafa fækkað
Fátækum hefur fækkað hér á landi síðustu tvo áratugi og er staðan á íslandi meðal því besta sem þekkist í samanburðarlöndum. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins þar sem einnig segir að staðan góða breyti því ekki að fátækt sé til staðar.

Samningaviðræður sigldar í strand
Fundi samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið slitið.

„Þetta er að okkar mati möguleg eignaupptaka“
Heildarsamtök launafólks skoða nú hvort tilefni sé til að höfða mál gegn ríkinu vegna skerðingar sem tekur gildi hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins um næstu mánaðamót. Kolbrún Halldórsdóttir, sem er nýtekin við sem formaður BHM, sagði í viðtali um málið í Bítinu í morgun þetta mál hafi lengi verið til umræðu og að fólk hefði vitað að skerðingar á lífeyri væru yfirvofandi meðal annars vegna hækkandi lífaldurs íslensku þjóðarinnar.

Segir gríðarlega ólgu á vinnustöðunum en er ekkert sérlega bjartsýn
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sagðist fyrir samningafundinn sem nú stendur yfir hjá ríkissáttasemjara vonast eftir afstöðubreytingu af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga í kjaraviðræðunum sem nú standa yfir.

„Þetta tilboð frá okkur hafði legið á borðinu í sex mánuði“
Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, segir krafa BSRB um eingreiðslu vegna munar á samningi BSRB og SGS við sveitarfélögin tilhæfulausa. Samningurinn hafi legið á borði BSRB í sex mánuði, félagið hafi verið hvatt til að breyta samningum en því tilboði hafi verið hafnað. BSRB geti auðveldlega leitað til dómstóla telji stéttarfélagið sig svikið.

Mistök hafi verið gerð „hamfaranóttina“ hjá sáttasemjara í mars 2020
Varaformaður BSRB segir það ekki rétt að félagið sé að fara fram á afturvirkni á hækkun launa í kjaraviðræðum sínum við Samband íslenskra sveitarfélaga. Hugtakanotkun hafi ruglað umræðuna verulega og ekki á góðan veg. Þá segir hann að mistök hafi verið gerð í síðustu kjarasamningum þegar heimsfaraldur kórónuveirunnar var að skella á landið í mars 2020.

Boðað til fundar í Karphúsinu í fyrramálið
Aldís Sigurðardóttir aðstoðarríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir BSRB og sveitarfélaganna til fundar klukkan 10 í fyrramálið. Óvíst er hvort fundurinn verður stuttur eða langur.

Tvíburar á sömu deild fá ekki að mæta á sama tíma í leikskólann
Tvíburar á sömu deild fá ekki að mæta á sama tíma í leikskólann þar sem deildinni er skipt upp eftir stafrófsröð. Foreldrar lýsa erfiðu ástandi og ringulreið vegna áhrifa af umfangsmiklum verkfallsaðgerðum félagsmanna BSRB.

Vilja senda mjög skýr skilaboð með lægri launahækkun
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina vilja senda skýr skilaboð til launafólks með því að draga úr launahækkun til æðstu stjórnenda. Einhugur sé um málið í ríkisstjórn.

36 sundlaugum lokað og fjöldi íþróttahúsa líka
Verkfallsaðgerðir um 2500 félagsmanna BSRB í 29 sveitarfélögum verða meðal annars til þess að íbúar munu ekki komast í sund í sveitarfélagi sínu á meðan verkfallsaðgerðum stendur. Viðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga eru í hnút og ekki hefur verið boðað til næsta fundar eftir að upp úr slitnaði í viðræðum í nótt.

Auglýst eftir forystuhæfileikum og „framúrskarandi samskiptahæfni“
Embætti ríkissáttasemjara hefur verið auglýst laust til umsóknar en meðal þeirra hæfniskrafa sem gerðar eru til umsækjenda eru forystuhæfileikar og „framúrskarandi samskiptahæfni“.

Segir reiði meðal félagsfólks stigmagnast með degi hverjum
Formaður BSRB segir reiði meðal félagsfólks stigmagnast með hverjum deginum. Ekki standi til að þiggja samning sem Samband íslenskra sveitarfélaga býður sem hljóðar upp á 50 til 60 þúsund hækkun lægstu launa.

Segja ábyrgðina alfarið hjá BSRB
Samband íslenskra sveitarfélaga segir BSRB alfarið um að kenna að verkfall sé skollið á. Tilboði um hækkun lægstu launa upp á 50-60 þúsund krónur hafi verið hafnað.

Katrín fundaði með formönnum um yfirvofandi launahækkanir
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði í morgun með formönnum flokka á þingi þar sem yfirvofandi launahækkanir æðstu ráðamanna voru til umræðu.

Krafa um sömu laun fyrir sömu störf stendur enn út af borðinu
Formaður BSRB segir að krafa félagsins um sömu laun fyrir sömu störf standi enn út af borðinu í viðræðum þess við sveitarfélög. Víðtækar verkfallsaðgerðir félagsmanna BSRB hófust í dag sem formaðurinn segir að hafi mikil samfélagsleg áhrif.

Viðbúið að menn „dusti rykið af málskjölunum“
Næstu mánaðamót munu vænt mánaðarleg réttindi félagsmanna LSR lækka um tæp 10 prósent og lífeyrisgreiðslur þeirra sjóðsfélaga sem ekki eru í bakábyrgð ríkissjóðs lækka um rúm 4 prósent.

Mikill þungi færist nú í aðgerðirnar segir formaður BSRB
Engin niðurstaða varð af löngum fundi í Karphúsinu í nótt á milli BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundi lauk á öðrum tímanum í nótt og stefnir í víðtækar verkfallsaðgerðir í dag.

Enn engin niðurstaða í sjónmáli
Enn er engin niðurstaða komin í karphúsinu í viðræðum stéttarfélagsins BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundur hefur staðið yfir í ellefu klukkustundir.

Foreldrar fegnir að leikskóli í Grindavík gleymdist
Forsvarsmenn BSRB gleymdu að nefna leikskólann Laut í Grindavík á lista yfir starfsstaði þar sem verkfall er boðað á morgun. Foreldrar eru fegnir en leikskólastjórinn segir um mannleg mistök að ræða.

Foreldrar skulu gera ráðstafanir
Freyja Steingrímsdóttir samskiptastjóri BSRB segir lítið hafi breyst í kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB. Enn er fundað í karphúsinu en allsherjarverkfall hefst að óbreyttu á morgun.

Mikið undir í samningaviðræðum dagsins
BSRB og Samband íslenskra sveitarfélaga funda hjá ríkissáttasemjara í dag. Ef samningar nást ekki skella á verkföll á morgun. Formaður BSRB segir erfitt að spá til um framvindu dagsins en að félagsfólk búi sig nú undir umfangsmiklar verkfallsaðgerðir.

„Ef við förum af stað í þessi stóru verkföll þá fer allt á hvolf“
Varaformaður BSRB segir að samfélagið muni fara á hvolf, komi til allsherjarverkfalls sem boðað hefur verið til eftir helgi. Hann segir afar áhættusamt fyrir viðsemjendur að neyða þau út í slíkar aðgerðir.

Þriggja daga maraþonfundi lokið án árangurs
Lítið hefur miðað á þriggja daga fundum forystu samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga en fundi sem hófst klukkan tíu í morgun lauk nú klukkan rétt rúmlega sex

Kjarasamningar grunn- og leikskólakennara samþykktir
Rúmlega tveir þriðju félagsmanna í Félagi grunnskólakennara annars vegar og Félagi leikskólakennara greiddu atkvæði með nýjum kjarasamningum. Samningarnir hafa því verið samþykktir.

„Við höfum lagt fram tilboð eftir tilboð“
Fulltrúar samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga héldu að nýju til viðræðna í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan tíu í morgun. Formaður samninganefndar SÍS segir að deilan snúist aðallega um afturvirkni.

Lægstu laun muni hækka þegar samningur verður til
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að bæði sveitarfélögin og BSRB séu sammála um að lægstu laun eigi að hækka. Staðan í kjaraviðræðum sé ekki björt núna en hún segist vongóð um að samningar náist fyrr en seinna.

Heimaverkefni lagt fyrir og nýr fundur boðaður fyrir hádegi
Sáttafundur forystu samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga stóð til klukkan átta í gærkvöldi en fólk hafði þá setið á fundi frá klukkan eitt eftir hádegi í gær. Strax hefur verið boðað til annars fundar í karphúsinu klukkan tíu fyrir hádegi.