Stórbruni í Miðhrauni

Geymslur þurfa ekki að greiða skaðabætur
Héraðsdómur fyrst, svo Landsréttur og nú Hæstiréttur eru sammála um að fyrirtækið Geymslur sé ekki skaðabótaskylt vegna stórbrunans í Garðabæ í apríl 2018. Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í dag og staðfesti dóm á neðri dómstigum.

Landsréttur telur Geymslur ekki skaðabótaskyldar vegna stórbrunans í Garðabæ
Landsréttur hefur sýknað fyrirtækið Geymslur af þremur kröfum um að það bæri skaðabótaábyrgð vegna stórbrunans sem varð í húsnæði fyrirtækisins við Miðhraun í Garðabæ í apríl 2018.

Slökkviliðsstjóri segist bera ábyrgð á því að reykkafari hætti lífi sínu fyrir tölvu
Reykkafarinn villtist í húsinu í Miðhrauni sem hafði verið breytt án leyfis.

Catalina gerir átján milljóna króna bótakröfu
Catalina Ncogo, sem dæmd var fyrir milligöngu um vændi árið 2010, krefur Geymslur um átján milljónir króna vegna tjóns sem hún segist hafa orðið fyrir í brunanum í Garðabæ í apríl 2018.

Geymslur ekki skaðabótaskyldar vegna stórbrunans í Garðabæ
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag fyrirtækið Geymslur af kröfum um að það bæri skaðabótaábyrgð vegna stórbrunans sem varð í húsnæði fyrirtækisins í Garðabæ í apríl í fyrra.

Enn hlutir á svæðinu sem gætu verið verðmæti í augum einhverra
Aðgengi að svæðinu er nær ótakmarkað. Girðingar í hirðuleysi og glerbrot út um allt með tilheyrandi slysahættu

Hirðuleysi og sóðaskapur með tilheyrandi hættu að Miðhrauni 4
Eigendur hússins hafa átt í deilum við hvort sitt tryggingafélagið sem tafið hefur fyrir uppbyggingu.

Undirbúa hópmálsókn gegn Geymslum
Hópur fólks sem missti eigur sínar í brunanum hjá Geymslum í Garðabæ í byrjun apríl síðastliðinn undirbýr nú að leita réttar síns með málsókn á hendur eigendum Geymslna.

Birta myndir af því litla sem bjargaðist úr brunanum í Miðhrauni
VÍS hefur birt á Facebook myndir af munum sem tókst að bjarga úr brunarústum í Miðhrauni.

Hefur tvisvar misst aleiguna í bruna
Kona sem missti aleigu sína í brunanum í Miðhrauni gagnrýnir að hún hafi ekki fengið að fara yfir brunarústirnar.

Björgvin fer yfir brunatjónið
Stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson sér fram á töluvert tjón af brunanum í húsnæði Geymslna í Miðhrauni fyrr í mánuðinum.

Ekki hægt að hleypa leigjendum í leifar úr geymslum sem brunnu
Leifar úr geymslunum sem brunnu á efri hæðum iðnaðarhúsnæðisins við Miðhraun eru allar í einum haug og ekki var talið rétt að leyfa fólki að róta í gegnum þær.

Óánægður með að fá ekki að vitja eigna úr brunanum
Fyrirtækið Geymslur segir að altjón hafi orðið á efri hæðum hússins.

Altjón á efri hæðum geymsluhúsnæðisins í Miðhrauni
Leigjendum sem voru með geymslu á 1. hæð í húsnæði Geymslna er boðið að koma í vikunni að vitja eigna sinna.

Eldurinn í Miðhrauni kviknaði út frá rafmagni
Bráðabirgðaniðurstaða rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á eldsupptökum í iðnaðarhúsnæði við Miðhraun í Garðabæ í byrjun mánaðarins liggur fyrir.

Eldsupptök við eldvegg í lagerrými Icewear
Lögreglan hefur lokið vettvangsvinnu í iðnaðarhúsnæðinu við Miðhrauni 4 í Garðabæ.

Enn að störfum í Miðhrauni
Tæknideild lögreglu, fulltrúar frá slökkviliðinu og Mannvirkjastofnun eru enn að störfum á vettvangi í Miðhrauni 4 þar sem stórbruni varð í síðustu viku.

Rík skylda eigenda og forráðamanna að brunavarnir húsa séu í takt við starfsemi hverju sinni
Slökkviliðsstjóri undrandi á því hversu hratt iðnaðarhúsið að Miðhrauni 4 brann

Vatnsúðakerfi í öllum húsum Geymslna nema Miðhrauni
Hvers vegna er fyrir utan mína þekkingu, segir framkvæmdastjórinn.

Enn mikill hiti í Miðhrauni
Lögreglan hóf rannsókn á brunarústunum í dag.

Sendu slökkviliðsmönnum hjartnæmar kveðjur eftir brunann í Miðhrauni
Nemendur í fyrsta og þriðja bekk Setbergsskóla sendu fallegan glaðning á slökkvistöðina í Hafnarfirði.

Hugsanlegt að Geymslur beri ábyrgð á tjóninu
Sérfræðingur í vátryggingarétti telur ekki útilokað að Geymslur beri ábyrgð á tjóni viðskiptavina sinna vegna stórbrunans í Garðabæ. Aðgerðum slökkviliðs við Miðhraun lauk í gærkvöldi, en rannsókn tæknideildar lögreglu hefst eftir helgi.

Rannsakendur rýna í teikningar með byggingaryfirvöldum
Vettvangur stórbrunans í Garðabæ var afhentur lögreglu um kvöldmatarleytið í gær. Aðgerðir höfðu þá staðið í á annan sólarhring, en slökkviliðsstjóri segir verkefnið hafa tekið talsvert á mannskapinn.

Þreyttir eftir þrotlausa baráttu við eld og reyk
Slökkviliðsstjóri segir að það hafi verið bjartsýni að ætla sér að afhenda vettvang stórbrunans í Miðhrauni í hádeginu í gær.

Ekkert saknæmt fundist í tengslum við brunann
Hætta á hruni í brunarústunum hefur hins vegar komið í veg fyrir að tæknideild lögreglunnar geti athafnað sig þar.

Slökkviliðið nýtti sér hitadróna í Miðhrauni
Með þessum hætti fengu slökkviliðsmenn upplýsingar um hvar mestur hiti væri í húsnæðinu og hvernig væri best að sækja að eldinum.

„Þetta bara herðir okkur og við þéttum raðirnar“
Starfsmaður lagers Icewear slasaðist í brunanum í gær. "Hann átti fótum sínum fjör að launa,“ segir framkvæmdastjóri.

Hugsanlegt að verðmæti í geymslunum séu brunatryggð
Hæstaréttarlögmaður segir að leigjendur ættu að láta reyna á hvort skilmálar Geymslna haldi gagnvart lögum.

Telja að eldurinn hafi kviknað á lager Icewear
Lögregla hefur rannsókn sína á málinu í dag en búið er að ræða við starfsfólk lagersins.

Skoða upptökur úr eftirlitsmyndavélum í dag
Lögregla hefur rannsókn á brunanum í Miðhrauni.