Kosningar 2018

Oddvitaáskorunin: Grunlaus um hvað tebollinn þýddi
Guðlaug Kristjánsdóttir leiðir Bæjarlistann í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum.

Málefnaþáttur Stöðvar 2: Hagsmunagæsla gagnvart ríkisvaldinu eitt mikilvægasta hlutverk sveitarfélaganna
Í öðrum málefnaþætti Stöðvar 2 fyrir sveitarstjórnarskosningar sem fram fara þann 26. maí næstkomandi er fjallað um grunnþjónustuna en nærsamfélag og nánasta umhverfi er viðfangsefni sveitarfélaganna.

Góð kjörsókn utankjörfundar í Smáralind
Sviðsstjóri hjá embættinu reiknar með að um sextán þúsund manns greiði þar atkvæði fyrir kjördag.

Frelsi til sjálfstæðs lífs
Borgararéttindi eru ein af meginstoðum í stefnumálum Pírata, og er ein af grunnstefnum flokksins. Þar segir að Píratar styðji eflingu og verndun borgararéttinda og að útvíkkun þeirra skuli miða að því að styrkja önnur réttindi.

Sértæk úrræði í Brúarlandi
Ég kenni í því sögufræga húsi Brúarlandi, sem er útibú frá Varmárskóla í Mosfellsbæ.

Oddvitaáskorunin: Skoraði þrjú stig í eigin körfu
Elva Dögg Ásudóttir leiðir lista Vinstri grænna í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum.

Borgin okkar Reykjavík og Karlalistinn gleymdust
Lögmaður Borgarinnar okkar Reykjavík vakti athygli Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á því í dag að í skoðanakönnun fyrir komandi borgarstjórnarkosningar fyrir Morgunblaðið vantaði tvo flokka af þeim sextán sem bjóða fram.

Oddvitaáskorunin: Kastaði vatnsblöðrum á Blómvallagötunni
Björg Kristín Sigþórsdóttir leiðir Höfuðborgarlistann í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum.

Menntamál, ekki bara á tyllidögum
Í áratugi hefur umræða um mikilvægi menntunar verið fyrirferðamikil í hátíðaræðum stjórnmálamanna. Þegar niður úr pontu er stigið eru orðin gleymd og efndir litlar. Þetta er gömul saga og ný sem skólafólk þekkir.

Oddvitaáskorunin: „Fögur er hlíðin og fer ég hvergi“
Ómar Stefánsson leiðir lista Fyrir Kópavog í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum.

Stígum stærri og róttækari græn skref í Reykjavík
Loftslagsbreytingar af mannavöldum og áhrif þeirra eru eitt af stærstu og brýnustu verkefnum sem við stöndum frammi fyrir á komandi árum og áratugum.

John Travolta og Hildur Björns slógu á létta strengi á 101 Hótel
Leikarinn John Travolta skemmti sér á hótelbarnum 101 í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Hann er nýkominn til landsins eftir að hafa verið á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Launahækkun Ármanns í engu samræmi við kjör annarra starfsmanna bæjarins
Vinstri græn í Kópavogi telja launahækkun bæjarstjóra Kópavogs allt of mikla og vera í engu samræmi við kjör annarra starfsmanna bæjarins.

Útlit fyrir sterkari stöðu Pírata
Píratar eru líklegir til þess að styrkja stöðu sína verulega á sveitarstjórnarstiginu í kosningunum þann 26. maí. Mælast með fulltrúa í fjórum af þeim sjö sveitarfélögum þar sem Fréttablaðið hefur kannað fylgið.

Stórar ákvarðanir bíða hreppsnefndar
Varaoddvitinn í Árneshreppi þar sem hart er deilt um fyrirhugaða Hvalárvirkjun segir þá sem skráð hafa lögheimili sitt í hreppinn að undanförnu hljóta að hafa gert það til að taka þátt í sveitarstjórnarkosningunum. Hann viti þó ekki hvað þetta fólk ætli sér að kjósa.

Málefnaþáttur Stöðvar 2: Ferðamannalandið Ísland
Í fyrsta málefnaþætti Stöðvar 2 fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara þann 26. maí næstkomandi er fjallað um ferðaþjónustuna sem hefur vaxið mjög fiskur um hrygg frá því að síðast var kosið til sveitarstjórna árið 2014.

Deila um nýja sundlaug í Ísafjarðarbæ
Minnihlutinn gagnrýnir tug milljóna króna hönnunarsamkeppni sem muni að öllum líkindum ekki nýtast. Meirihlutinn vill leggja ákvörðunina undir íbúana.

Segir röngum upplýsingum kerfisbundið dreift
Formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur segir röngum upplýsingum um biðlista á leikskóla kerfisbundið dreift í yfirstandandi kosningabaráttu. Hann segir að öllum sem voru á biðlista í apríl verði boðið pláss í haust. Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins bendir á að fjölskyldur verði þó enn án úrræða mánuðum saman.

Skortur á húsnæði hamlar vexti í Bláskógabyggð
Oddviti nýs framboðs í sveitarfélaginu segir vanta fjölskylduvæna uppbyggingarstefnu og vill aukið íbúasamráð að loknum sveitarstjórnarkosningum.

Samfylkingin og Píratar gætu myndað tveggja flokka meirihluta í borginni
Baráttan milli framboða með minnsta fylgið gæti orðið hörð þar sem nokkur atkvæði til eða frá gætu skipt sköpum.

Vítahringur heimilisleysis
Heimilisleysi í Reykjavík hefur tvöfaldast á fimm árum.

Telja sýslumenn mismuna kjósendum
Sveitarstjórn Langanesbyggðar telur að ákvörðun sýslumanna að bjóða eingöngu upp á á utankjörfundaratkvæðagreiðslu á skrifstofum sínum feli í sér mismunum fyrir kjósendur í dreifbýli.

Málefnaþættir Stöðvar 2 í tilefni kosninga hefjast í kvöld
Ferðaþjónustan verður í brennidepli í þætti kvöldsins.

Lykilstarfsmaður Vestmannaeyjabæjar ætlar að segja upp ef Elliði verður ekki bæjarstjóri
Rut Haraldsdóttir fjármálastjóra hjá Vestmannaeyjabæ líst ekkert á annan bæjarstjóra en Elliða.

Oddvitaáskorunin: Hélt hún væri að horfa á sjálfa sig
Vigdís Hauksdóttir leiðir lista Miðflokksins í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum.

Missti vinnuna og óskar eftir því að víkja úr sæti sínu strax eftir kosningar
Guðríður Matt Þorbjörnsdóttir, sem skipar annað sæti á lista Framsóknar í Ísafjarðarbæ, segir að ekki hafi verið staðið við loforð um starf við grunnskólann.

Oddvitaáskorunin: Sendi ástarjátningar á rangt númer
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir leiðir lista Borgarinnar okkar í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum.

Aðför sem lýsir virðingarleysi og fádæma dómgreindarleysi
Formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga segir atburðina í Árneshreppi grófa aðför að sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélags. Þetta sé sambærilegt því ef 40 þúsund íbúar á landsbyggðinni myndu skrá sig til málamynda í Reykjavík til að hafa áhrif á flugvöllinn í Vatnsmýri.

Oddvitaáskorunin: Þurfti að skálda sig inn og út af sviði
Jón Ingi Hákonarson leiðir list Viðreisnar í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum.

Barnavernd, ekki grýla!
Ég sem foreldri og manneskja, geri þá kröfu að öryggi barna sé alltaf í fyrirrúmi. Þau eiga alltaf að njóta vafans, skilyrðislaust.