Landhelgisgæslan

Loftrýmisgæsla hefst að nýju við Ísland
Loftrýmisgæsla í kringum Ísland hefst á næstu dögum með komu 110 liðsmanna bandaríska flughersins og fimm F16 orrustuþota.

Skipt um gírkassa og snúningsmótor í þyrlu Landhelgisgæslunnar
Landhelgisgæslan ætlar að láta skipta um gírkassa og snúningsmótor í nýlegri þyrlu sinni vegna málmagna sem hafa greinst í olíu hennar. Tæknistjóri hjá Landhelgisgæslunni segir óheppni að þetta komi upp svo stuttu eftir að þyrlan kom til landsins. Viðgerðin sé hluti af reglubundnu viðhaldi í samstarfi við framleiðanda.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konu eftir umferðarslys við Blönduós
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er konan ekki talin alvarlega slösuð.

Týr sótti veikan mann um borð í farþegaskip
Tilkynnt var um aldraðan mann með mögulega heilablæðingu. Honum var komið undir læknishendur á Ísafirði snemma í morgun.

Sjáðu þegar ný þyrla gæslunnar lenti í Reykjavík
Landhelgisgæslan tekur brátt í notkun aðra Airbus H225 þyrlu en nýja þyrlan, sem hlotið hefur nafnið TF-GRO lenti í fyrsta skipti á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi. Hin þyrlan af sömu gerð er TF-EIR sem kom til landsins í mars og fór í sitt fyrsta útkall fyrir tæpum mánuði.

Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út í þrígang á 14 klukkustundum
Annasömum degi áhafnar TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar lauk á þriðja tímanum í nótt þegar sóttur var alvarlega veikur einstaklingur úr Landmannahelli og hann fluttur á Landspítalann í Fossvogi.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann í Látravík
TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna slasaðs manns við Hornbjargsvita í Látravík.

Slasaður í hlíðum Búrfells eftir nauðlendingu svifvængs
Um klukkan 12:30 barst Lögreglunni á Suðurlandi hjálparbeiðni gegnum Neyðarlínu vegna manns sem hafði nauðlent svifvæng í norðanverðu Búrfelli.

Ökumaðurinn alvarlega slasaður
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti karl og konu sem slösuðust í bílveltu í Norðurárdal í gærkvöldi. Ökumaðurinn er alvarlega slasaður.

Flutti tvo slasaða eftir bílveltu
Tveir voru fluttir með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi eftir bílveltu í Norðurárdal.

Endurnýja þurfi slökkvibúnað fyrir þyrlu vegna gróðurelda
Landhelgisgæslan telur tímabært að endurnýja slökkvibúnað til að nota með þyrlu í baráttu við hugsanlega gróðurelda hér á landi. Búnaðurinn var keyptur fyrir 12 árum. Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Landhelgisgæslunni segir þörf á tveimur nýjum svokölluðum slökkviskjólum fyrir næsta vor.

Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út að Langjökli
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Langjökli á þriðja tímanum í dag vegna veikinda.

Þurftu að beita klippum til að ná fólkinu út úr flakinu
Rannsókn á því hvers vegna tveggja hreyfla flugvél með fimm manns innanborð skall til jarðar, skammt norðan við flugvöllinn í Múlakoti í Fljótshlíð í gær, miðar áfram. Allir sem voru um borð voru Íslendingar.

Allir sem voru um borð íslenskir: Þrír úrskurðaðir látnir á vettvangi
Þrír sem létust, þegar flugvél með fimm manns innaborðs skall niður skammt frá flugvellinum í Múlakoti í Fljótshlíð í gærkvöldi, voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Tveir voru fluttir með þyrlum Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík og er líðan þeirra sögð stöðug. Allir sem voru um borð voru íslenskir.

Þrír létust í flugslysinu við Múlakot: Tveir eru alvarlega slasaðir
Þrír létust þegar flugvél brotlenti skammt norðan við flugvöllinn í Múlakoti í Fljótshlíð í gærkvöldi. Fimm voru í vélinni en tveir voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlum Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi.

Flugvél hrapaði í Fljótshlíð: Fimm alvarlega slasaðir
Flugslys varð rétt norðan við flugvöllinn við Múlakot í Fljótshlíð fyrr í kvöld.

Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slasaðs einstaklings í Öræfajökli
Á fjórða tímanum í dag óskaði lögreglan á Suðurlandi eftir aðstoð þyrlu landhelgisgæslunnar vegna slasaðs einstaklings sem var fastur í um 900 metra hæð ofan Sandfellsheiðar í suðvesturverðum Öræfajökli.

Björgunin á Ísafirði: „Hann hékk þarna á klettasyllu og gat sig hvergi hreyft“
Mennirnir höfðu orðið viðskila. Erfitt reyndist að staðsetja þá nákvæmlega en þeir voru í um sjö hundruð metra hæð.

Þyrlan kölluð út vegna manna í sjálfheldu í Naustahvilft
Voru 700 metra yfir sjávarmáli og í miklum bratta.

Tveir fluttir með þyrlu á Landspítalann
Tilkynnt var um slysið um hádegisbil í dag.

Ómar lagði Gæsluna í annað sinn í baráttu um vangoldna leigu
Landhelgisgæslunni var óheimilt að segja upp að hluta samnings um leigu á jörð undir ratstjárstöð í Hornafirði nærri Höfn.

Slösuð skíðakona flutt með þyrlu
Þyrla landhelgisgæslunnar sótti konuna og kom til Akureyrar fyrr í dag.

Rafmagnstöflur brunnu í vélarrúmi Sóleyjar
Rafmagnstöflur brunnu í vélarrúmi rækjutogarans Sóleyjar Sigurjóns þegar eldur kom upp á tíunda tímanum í gærkvöldi. Vegna rafmagnsleysis hefur ekki verið unnt að draga tvö troll skipsins inn og því er tímafrekt að draga skipið til Akureyrar, að sögn skipstjóra rækjutogarans Múlabergs sem dregur Sóleyju til hafnar.

Reykkafarar sendir niður í vélarrúmið
Fimm úr áhöfn varðskipsins Týs fóru um borð í rækjutogarann Sóleyju Sigurjóns GK200 á sjötta tímanum í morgun til að kanna aðstæður.

Tveir skipverjar hífðir upp í þyrluna
Tveir skipverjar á rækjutogaranum Sóleyju Sigurjóns GK200, þar sem eldur kom upp á tíunda tímanum í gærkvöldi, voru hífðir upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir miðnætti í gær.

Hífa líklega hluta áhafnarinnar upp í þyrlu Gæslunnar
Þyrla Landhelgisgæslunnar, varðskip og björgunarsveitir voru kölluð út eftir að neyðarkall barst frá rækjutogaranum Sóleyju Sigurjóns GK200 á tíunda tímanum í kvöld. Eldur var laus í vélarúmi skipsins sem er statt um níutíu sjómílur norður af landinu en átta manns eru um borð.

Önnur þyrlan í skoðun og hin ekki útkallshæf
Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Landhelgisgæslunni segir útreikninga sýna að nóg sé að Gæslan hafi hjá sér þrjár þyrlur.

Kínverskir ferðamenn í rútunni sem valt í Öræfum
Lögreglan á Suðurlandi segir nú að fjórir séu alvarlega slasaðir. Kínverska sendiráðið segir að fólkið sé ekki lífshættulega slasað.

Sóttur með þyrlu eftir bílveltu við Stóru Giljá
Einn var sóttur með þyrlu eftir bílslys í Húnavatnssýslu síðdegis.

Skemmtibátur dreginn í höfn í Kópavogi
Tveir voru um borð í skemmtibát þegar mótorinn hætti að virka á siglingu í Kópavogi um þrjúleytið.