Lögbrot sem varðað getur hálfs árs fangelsi - Mál Þórsara til aganefndar Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur vísað til aga- og úskurðarnefndar máli Þórsara á Akureyri sem auglýstu erlent veðmálafyrirtæki í viðtölum. Um lögbrot er að ræða sem varðað getur sektum eða allt að hálfs árs fangelsi. 23.6.2020 15:15
Langri og erfiðri bið Framara lýkur 2022 - Taka á móti ÍR í bikarnum í kvöld Ef allt gengur eins og í draumi hjá karlaliði Fram í fótbolta í sumar gæti liðið „þurft“ að leika á Laugardalsvelli á næstu leiktíð. Sumarið 2022 standa vonir hins vegar til að ný og glæsileg aðstaða í Úlfarsárdal verði tilbúin fyrir liðið. 23.6.2020 14:00
Þrír leikmannahópar fljúga saman í Mjólkurbikarleiki Lið HK, Leiknis Reykjavík og Reynis Sandgerði munu ferðast saman í leiki sína í Mjólkurbikarnum í fótbolta karla. 23.6.2020 11:30
Ronaldo á skotskónum er Juventus jók forystuna á toppnum Juventus náði að koma sér lengra frá Lazio í ítölsku toppbaráttunni en meistararnir unnu 2-0 sigur á Bologna í kvöld. 22.6.2020 21:30
KSÍ minnir á nýtt ákvæði um veðmálastarfsemi Knattspyrnusamband Íslands vekur í dag athygli á ákvæði um veðmálastarfsemi sem samþykkt var í vetur og sett inn í reglugerð sambandsins um knattspyrnumót. 22.6.2020 16:15
ÍTF fordæmir hegðun Þórsara - Málið til skoðunar hjá KSÍ „Mér finnst þetta fyrst og fremst óheppilegt að öllu leyti, því þarna er bara verið að brjóta landslög,“ segir Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Íslensks toppfótbolta, um það að Þórsarar skyldu auglýsa erlenda veðmálasíðu eftir fyrsta leik sinn í Lengjudeildinni í sumar. 22.6.2020 12:34
Þrír úr Arsenal í einangrun eftir gallað próf Það hefur allt gengið á afturfótunum hjá Arsenal eftir að keppni hófst að nýju í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þrír leikmanna liðsins gátu ekki æft í aðdraganda tapsins gegn Manchester City vegna gruns um kórónuveirusmit. 22.6.2020 11:30
Þúsundir gesta skemmtu sér á Norðurálsmótinu Knattspyrnumenn framtíðarinnar skemmtu sér vel á Akranesi um helgina þar sem Norðurálsmótið í fótbolta fór fram. Guðjón Guðmundsson, Gaupi, var að sjálfsögðu á staðnum og tók púlsinn á keppendum og fleirum. 21.6.2020 19:15
Ólafía og Axel Íslandsmeistarar í holukeppni Axel Bóasson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttur urðu í dag Íslandsmeistarar í holukeppni í golfi. Axel vann mótið í annað sinn þegar hann hafði betur gegn Hákoni Erni Magnússyni í spennandi úrslitaleik á Jaðarsvelli á Akureyri, en Ólafía hefur nú unnið mótið í þrígang. 21.6.2020 16:19
Lewandowski sló met Aubameyang Pólski markahrókurinn Robert Lewandowski hefur átt magnað tímabil með Bayern München og nú skorað fleiri mörk en nokkur erlendur leikmaður hefur gert á einni leiktíð í þýsku 1. deildinni í fótbolta. 21.6.2020 15:25