Emil leikur aftur í Verónaborg Emil Hallfreðsson mun spila í ítölsku C-deildinni í fóbolta í vetur með liði Virtus Verona. Þessi 37 ára gamli leikmaður skrifaði undir samning sem gildir út júní á næsta ári. 6.10.2021 12:13
Sif snýr heim en ekki víst að hún spili fyrir manninn sinn Sif Atladóttir, landsliðsmiðvörður í fótbolta, heldur heim til Íslands í vetur eftir tólf ár í atvinnumennsku. Hún mun búa á Selfossi en segist ekki setja það fyrir sig að ferðast til æfinga á höfuðborgarsvæðinu fari svo að hún semji við félag þar. 6.10.2021 09:00
Aron Einar áfram í liði Al Arabi Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Al Arabi þegar liðið mætti Al Khor í knattspyrnuleik í Katar í dag. 5.10.2021 16:52
Reyndu að sannfæra Jóhann en hafa ekki rætt ummælin um KSÍ Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari í fótbolta segist ekki hafa rætt við Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliða Íslands í síðasta landsleikjaglugga, um afstöðu Jóhanns til vinnubragða KSÍ. 5.10.2021 15:36
Ræddi við Óskar og Rúnar en valið auðvelt þegar Ólafur samdi við FH Knattspyrnumaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson ræddi við þjálfara Breiðabliks og KR áður en hann ákvað að ganga til liðs við FH. Hann segir allt til staðar í Kaplakrika til að FH-ingar nái vopnum sínum á nýjum leik. 5.10.2021 13:00
„Sannfærður um að Borgnesingar leysi þetta mál“ Formaður KKÍ segir vandamál íþróttahreyfingarinnar kristallast í því neyðarástandi sem nú ríkir hjá Skallagrími sem gæti þurft að draga körfuboltalið sín úr keppni vegna skorts á sjálfboðaliðum og fjárhagslegum styrkjum. Ekkert lið kæmi í stað Skallagríms í úrvalsdeild kvenna ef liðið hætti við keppni og ekkert lið myndi þá falla í vor. 5.10.2021 11:31
„Við verðum að taka til og hagræða“ „Við vorum með stóran hóp og mikla umgjörð, og við verðum að taka til og hagræða,“ segir Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals. Ljóst er að karlalið Vals kveður að minnsta kosti fimm leikmenn eftir vonbrigðatímabil og mikil óvissa ríkir um markvörðinn Hannes Þór Halldórsson. 5.10.2021 10:01
Kleinur, pítsudeig og morgunvaktir niðri á bryggju vegna Evrópuævintýris Leikmenn, sjálfboðaliðar, stjórnarmenn og aðrir sem að körfuknattleiksdeild Hauka koma hafa gert sitt til að sjaldséð Evrópuævintýri íslensks körfuboltaliðs verði að veruleika. Það kemur til með að kosta tæpar 12 milljónir fyrir Hauka að leika í Evrópubikar kvenna í ár. 5.10.2021 08:01
Segir UEFA veita Íslandi og öðrum á EM allt of lítið verðlaunafé Ada Hegerberg, fyrsta konan til að hljóta Gullknöttinn, árið 2018, hefur bæst í hóp þeirra sem gagnrýna UEFA fyrir upphæð verðlaunafjár á Evrópumóti kvenna í fótbolta næsta sumar. 4.10.2021 16:01
Vinnubrögð KSÍ höfðu áhrif á ákvörðun Jóhanns Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með fótboltalandsliðinu sem mætir Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM á næstunni. Hann segir vinnubrögð KSÍ hafa haft sitt að segja um þá ákvörðun sína að draga sig úr hópnum. 4.10.2021 11:00