50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Rakel Sveinsdóttir skrifar 4. október 2026 20:02 Það er orðið slæmt þegar við kinkum kolli og brosum án þess að hafa hugmynd um hvort vinur eða vinkona er að tala um spennandi starf eða hjónaskilnað. Erum við að missa heyrnina - vitið? Eða eru kannski allir bara farnir að öskra? Vísir/Getty Það er loksins komið að því að fara út að borða með góðum vinum. Tilhlökkunin er mikil, búið að panta borð, farða sig og jafnvel strauja skyrtu. Nýr veitingastaður sem þú hefur einmitt heyrt af, séð á Instagram og hlakkar til að prófa.
En um leið og þú stígur inn á staðinn mætir þér veggur af hljóði. Þetta er ekki bara lágvært suð af fólki að njóta lífsins; þetta er sambland af bassaþungri kaffihúsa-teknótónlist, brothljóðum úr opnu eldhúsi og tugum manna sem eru allir að reyna að yfirgnæfa næsta borð. Eftir tuttugu mínútur ertu farin/n að halla þér svo langt yfir borðið að nefið snertir næstum matinn eða flöskuna. Ha? Þú leggur höndina við eyrað, kinkar kolli af mikilli innlifun og segir: „Já, einmitt, vá hvað það er rétt hjá þér!“ – án þess að hafa hugmynd um hvort vinur þinn var að lýsa nýju starfi eða skilnaði. Er þetta ellin að mæta á svæðið fyrir aldur fram eða er samvera á veitingastað orðin eins og að reyna að spjalla yfir kveiktum NutriBullet-blandara? Nei, veistu: Þú ert ekki að missa vitið og líklega ekki heyrnina heldur. Fyrst eru það góðu fréttirnar: Þú ert í alvöru líklega ekki að verða heyrnarskert(ur) í hefðbundnum skilningi. Ef þú færir í heyrnarmælingu á morgun gætirðu mjög líklega greint öll fínu píp-hljóðin og það án vandræða. Vandinn liggur ekki í sjálfum hljóðhimnunum, heldur í móttökustöðinni: heilanum. Vísindamenn við stofnanir á borð við Johns Hopkins Medicine hafa ítrekað bent á að með aldrinum – og þetta byrjar oft lúmskt um og upp úr fertugu – breytist svokölluð miðlæg hljóðúrvinnsla (e, central auditory processing). Þetta tengist því sem sálfræðingar og taugavísindamenn kalla kokkteilpartí-áhrifin (e.The Cocktail Party Effect). Sjáðu til: Ungur heili tekur inn tuttugu mismunandi hljóðgjafa. Síar í burt hnífapör og bassatrommur, dregur rödd vinar þíns í forgrunn. Þannig að 50+ þýðir ekkert að ellin sé mætt á staðinn þótt þú farir að velja öðruvísi staði en áður þegar þú ferð út að borða eða í einn góðan drykk með vinum. Þetta er bara heilinn þinn sem á í dag erfiðara með að skilja tal frá suði. Ps. Og smá gleðikorn í lokin líka (eða þannig!): Hinar fréttirnar eru þær að almennt eru veitingastaðir og kaffihús hannaðir háværari en hér í den. Pældu í því!
50+ Tengdar fréttir 50+: Svefnherbergisskilnaður Er uppskriftin að hamingjusömu hjónabandi mögulega sitt hvort rúmið í sitt hvoru herberginu? 13. september 2026 20:01 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Við ætlum að segja það upphátt: Já, við ætlum að ræða nokkuð sem margir kannast við sem þó nokkurn létti. Svona í leyni. 6. september 2026 17:02 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Stundum rifjum við upp í gríni þegar foreldrar okkar voru rúmlega þrítugir eða fertugir og okkur fannst þau svo svaka fullorðin. Eða hversu amma og afi voru orðin gömul – jafnvel eldgömul – en þó bara á sjötugsaldri. 14. júní 2026 14:34 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar. 3. júní 2026 07:00 50+: Það má segja Nei við barnapössun Vissuð þið að það er til eitthvað sem kallast ömmu- og afakulnun? (e. grandparents burnout) Og að á netinu er heilmikið til af efni, skrifað bæði vestanhafs og austan, um það hvers vegna það sé í góðu lagi fyrir ömmur og afa að segja stundum Nei við barnapössun. 27. nóvember 2025 07:02 Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Sjá meira
50+: Svefnherbergisskilnaður Er uppskriftin að hamingjusömu hjónabandi mögulega sitt hvort rúmið í sitt hvoru herberginu? 13. september 2026 20:01
50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Við ætlum að segja það upphátt: Já, við ætlum að ræða nokkuð sem margir kannast við sem þó nokkurn létti. Svona í leyni. 6. september 2026 17:02
50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Stundum rifjum við upp í gríni þegar foreldrar okkar voru rúmlega þrítugir eða fertugir og okkur fannst þau svo svaka fullorðin. Eða hversu amma og afi voru orðin gömul – jafnvel eldgömul – en þó bara á sjötugsaldri. 14. júní 2026 14:34
50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar. 3. júní 2026 07:00
50+: Það má segja Nei við barnapössun Vissuð þið að það er til eitthvað sem kallast ömmu- og afakulnun? (e. grandparents burnout) Og að á netinu er heilmikið til af efni, skrifað bæði vestanhafs og austan, um það hvers vegna það sé í góðu lagi fyrir ömmur og afa að segja stundum Nei við barnapössun. 27. nóvember 2025 07:02