Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Minnst þrjá­tíu og sjö látin eftir á­rás Rússa

Í það minnsta þrjátíu og sjö eru látin eftir drónaárás Rússa vestan við Kænugarð í nótt. Fjörutíu og tvö eru slösuð, þar á meðal fjögur börn, segja yfirvöld á staðnum. Tæp fjögur hundruð hafa verið flutt af svæðinu í kjölfar árásarinnar.

Dorrit missti að­gang á for­rit

Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands, segist hafa orðið fyrir því óláni að vera hökkuð. Á síma hennar bíða nú skilaboð um að síminn sé læstur.

„Þetta gæti ekki verið meira spennandi“

Kjördagur er runninn upp og munurinn á hópi þeirra sem hyggjast kjósa já og þeirra sem hyggjast kjósa nei varðandi áframhald aðildarviðræðna við ESB mælist afar lítill. „Ég spái því að þetta verði rosalega spennandi og skemmtileg kosninganótt,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði.

Af­nema byggingarréttargjöld í Reykja­nes­bæ

Skipulagsráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að fella niður öll byggingargjöld á nýjar framkvæmdir. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri segir að ákvörðunin kunni að lækka kostnað við gerð 150 fermetra íbúahúsnæðis um rúmar fimm milljónir.

Sótti kíló af kókaíni á póst­húsið

Maður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa mánudaginn 8. júní 2026 á pósthúsinu við Síðumúla í Reykjavík tekið á móti tæpum þrettán hundruð grömmum af kókaíni. Fíkniefnin hafði maðurinn í fórum sínum þegar lögreglan handtók hann síðar sama dag. Fíkniefnin voru falin í fjórum pottum sem bárust með póstsendingu til Íslands.

Fimm ríki for­dæma nýjar landtökubyggðir á Vestur­bakkanum

Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði.

„Eftir að koma í ljós“ hvort ís­lenskar á­hafnir manni leigu­flug Icelandair

„Það á eftir að koma í ljós,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, aðspurður um hvort íslenskar áhafnir muni manna vélar dótturfélags sem fyrirtækið hyggst koma á fót undir erlendu flugrekstrarleyfi. Fyrr í dag var greint frá kaupum Icelandair á 49 prósenta hlut í FlyPlay Europe sem býr yfir maltnesku flugrekstrarleyfi sem Icelandair ásælist. Bogi segir skrefið styrkja starfsemi Icelandair á Íslandi.

Síminn orðinn Ásar hf

Hluthafafundur Símans hf. samþykkti í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Félagið hefur staðið í stórræðum síðasta árið en í desember síðastliðnum var tilkynnt um kaup þess á bæði Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Það var svo í júlí síðastliðnum sem kaup Ása á Greiðslumiðlun Íslands gengu í gegn.

Bandbrjálaðist og hrækti á lög­reglu­mann

Beiðni barst í dag til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um aðstoð vegna veikinda. Þegar lögreglu bar að garði varð einstaklingurinn bandbrjálaður og hrækti meðal annars á lögregluþjón.

Sjá meira