Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Flugi seinkað vegna for­falla í á­höfn

Flugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Brussel í Belgíu seinkaði um rúma tvo tíma í morgun vegna forfalla hjá áhöfn. Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins en þar er haft eftir Guðna Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair, að hluti áhafnar hafi forfallast og ekki hafi verið bætt við á bakvakt.

Fram­kvæmda­stjóri Hopp vill ráða sófakappana

Þeir sem halda því fram að unga kynslóðin sitji bara heima hjá sér í símanum geta tekið gleði sína á ný því tveir ungir menn í Reykjavík brugðu á leik nýverið og skelltu sófa á tvær rafskútur og rúntuðu um Laugardal öðrum til mikillar gleði og kátínu. Myndaband af uppátækinu rataði á TikTok en þar sjást þeir aka sófanum af mikilli færni eftir Leirulæk.

Milljónum í reiðu­fé stolið

Grunur er um að allt að 3,3 milljónum króna hafi verið stolið í innbroti í Spin 108 sportbar á Grensásvegi aðfaranótt sunnudagsins 3. maí.

Sjálf­stæðis­flokkur eykur for­skotið á Sam­fylkingu í Reykja­vík

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna í nýrri Maskínu-könnun í Reykjavík. Flokkarnir voru nánast jafnir í mars en síðan þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn bætt verulega við sig á sama tíma og Samfylkingin hefur dalað. Vinstrið sækir jafnframt mest fram milli mælinga.

Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda af­brota­manna vísað úr landi

Það er óhætt að segja að mikil tíðindi séu í nýrri skoðanakönnun Maskínu fyrir fréttastofu Sýnar sem greint verður frá í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30. Við munum greina tölurnar með Gunnari Sigurðssyni stjórnmálafræðingi og sjá hvaða áhrif þær hafa á fjölda fulltrúa flokka og hugsanleg meirihlutamynstur.

Gætu lagt 757-þotunum í haust

Icelandair ætlar að draga flugframboð sitt saman um tæp fimm prósent í haust vegna hækkandi eldsneytisverðs. Samdrátturinn verður hlutfallslega meiri á Norður-Ameríkumarkaði en í Evrópu. Félagið hafði þegar brugðist við kostnaðarhækkunum með því að skera framboð niður um tvö prósent á öðrum ársfjórðungi, hækka fargjöld og herða aðhald í rekstri.

Setja skýr skil­yrði fyrir meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík

Samkvæmt nýjustu kosningaspá Vísis er Sjálfstæðisflokkurinn líklegastur til að fá sjö borgarfulltrúa og Samfylkingin sex. Vinstrið mælist áfram þriðji stærsti flokkurinn og gæti fengið þrjá menn, en þar fyrir neðan er hörð barátta um þriðja fulltrúann hjá Viðreisn og Miðflokki. Þorvaldur Davíð Kristjánsson í þriðja sæti Viðreisnar mælist með 46 prósent líkur á kjöri en Lárus Blöndal í þriðja sæti Miðflokksins með 43 prósent.

Sjá meira