

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Tveir lögreglumenn sviptir frelsi í útkalli: Annar rotaðist og báðir fluttir á slysadeild
Tveir lögreglumenn voru sviptir frelsi og ráðist á þá þegar þeir fóru í útkall vegna hávaða í heimahúsi á Völlunum í Hafnarfirði um síðustu helgi. Annar þeirra rotaðist og þurftu þeir að leita á slysadeild.

Enn mikill erill hjá lögreglu
Rúmlega hundrað mál voru skráð í dagbók lögreglunnar frá fimm í gær til fimm í morgun og ellefu aðilar voru vistaðir í fangageymslu.

Barði lögreglumann í andlitið
Húsráðandi gaf lögreglumanni hnefahögg í andlitið þegar lögregla sinnti útkalli vegna gruns um heimilisofbeldi.

Lögðu hald á annað hundrað kannabisplantna
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrradag kannabisræktun í íbúðarhúsnæði en búið var að koma upp tveimur tjöldum í svefnherbergjum þar sem plönturnar voru ræktaðar.

Leituðu að bílum sem þeir höfðu skilið eftir heima
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leysti nýverið tvö keimlík en erfið mál á einum degi í Hafnarfirði.

Mjög mikið gekk á hjá lögreglunni
Rúmlega hundrað mál voru skráð hjá lögreglunni frá klukkan fimm í gær til fimm í morgun og þó þau hafi verið að ýmsum toga sneru flest þeirra að fólki undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

Lagði hald á 130 kannabisplöntur í heimahúsi í Árbæ
Tveir voru handteknir í aðgerðum lögreglu.

Ölvaður á rúmlega 200 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni
Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða og gert að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir brot sín.

Segir kröfu um afsökunarbeiðni ófaglega og ummælin eðlilega athugun á störfum Neyðarlínunnar
Neyðarlínan hefur ekki verið sett á sakabekk af mér né borginni. Aðeins hefur verið óskað eftir svörum og skýrum merkjum um að atvikið sé tekið alvarlega og staðfestingu á að ekki sé um kerfisbundið vandamál að ræða heldur einstaka atvik,“ segir borgarfulltrúinn Dóra Björt Guðjónsdóttir um kröfu Neyðarlínunnar um afsökunarbeiðni

Neyðarlínan krefur borgarfulltrúa um afsökunarbeiðni vegna „grófra og meiðandi ásakana“
Neyðarlínan krefur Dóru Björt Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Pírata, um afsökunarbeiðni vegna ummæla hennar sem hún lét falla í morgunþætti Rásar 2 í morgun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Neyðarlínunni.

Sautján ára piltur annan mánuð í gæsluvarðhaldi
Sautján ára piltur, sem grunaður er um alvarlega líkamsárás, mun þurfa að sæta gæsluvarðhaldi til 25. júní næstkomandi.

Þrjár sektir vegna brota á kórónuveirureglum
Þrír einstaklingar hafa verið sektaðir vegna brota á sóttvarnalögum og reglum settum samkvæmt þeim vegna útbreiðslu kórónuveirunnar

Fundu um hundrað kannabisplöntur á háalofti á Suðurnesjum
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun eftir húsleit í umdæminu fyrr í vikunni.

Fjórir handteknir með aðstoð nýja lögreglubílsins
Lögreglan segist hafa handtekið fjóra karlmenn á byggingasvæði í Garðabæ í gær vegna gruns um að vegabréf þeirra væru fölsuð. Nýr landamæraeftirlitsbíll er sagður hafa komið að góðum notum.

Maðurinn sem handtekinn var við bakka Ölfusár laus úr haldi
Maðurinn hafði hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt að hann hefði fallið í Ölfusá, en reyndist svo fylgjast með björgunaraðgerðum úr felum.

Fannst í felum í runna við Ölfusá
Karlmaður um tvítugt gisti fangageymslur á Selfossi í nótt eftir að hafa verið staðinn að því að plata lögregluna. Karlmaðurinn hringdi í Neyðarlínuna og tilkynnti að hann hefði fallið í Ölfusá en reyndist svo fylgjast með björgunaraðgerðum úr felum.

Sló lögregluþjón hnefahöggi
Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt við að stöðva ökumenn sem eru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis.

Handtekinn eftir að hafa tilkynnt um að maður hefði fallið í Ölfusá
Mikill viðbúnaður var hjá öllum viðbragðsaðilum í Árnessýslu eftir að tilkynning barst til lögreglu um að maður hefði fallið í Ölfusá í nótt. Tilkynningin og málið allt reyndist gabb frá upphafi. Haft var upp á tilkynnanda og var hann handtekinn vegna málsins.

Leit að Andris hafin að nýju
Í síðustu viku hófst leit að nýju að Andris Kalvans, sem talinn er hafa týnst í Hnappadal á Snæfellsnesi þann 30. desember síðastliðinn.

Húsleit gerð hjá manni sem grunaður er um að hafa brotið á tveimur börnum
Gerð var húsleit á heimili mannsins sem grunaður er um að hafa brotið á tveimur börnum í Hraunavallaskóla í Hafnarfirði og hald lagt á gögn í þágu málsins.

Þurfi að vera skýrt hvað lögregla megi gera við óhlýðna ferðamenn
Verkefnastjórn um sýnatöku vegna kórónuveirunnar á landamærum Íslands telur að það þurfi að vera alveg skýrt hvaða heimildir lögreglan hafi til þess að bregðast við gagnvart þeim sem koma til landsins en ætla sér ekki að hlíta þeim sóttvarnarráðstöfunum sem í gildi eru á hverjum tíma

Klúðruðu rannsókn á innbroti þar sem þjófurinn þakkaði fyrir sig og baðst afsökunar
Karlmaður sem grunaður var um að hafa brotist inn í lyfjakæli í Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur verið sýknaður af innbrotinu.

Sundköppum vísað frá affallinu stórhættulega
Lögreglan á Suðurnesjum fylgdi í gærkvöldi fjórum sundköppum frá útfallinu við Reykjanesvirkjun þar sem þeir voru að baða sig. Stórhættulegt getur verið að baða sig í útfallinu, líkt og komið hefur fram í fréttum.

Stöðvaði fimmtán ára ökumann sem hafði boðið félögunum á rúntinn
Málið var rætt við foreldra drengjanna og það tilkynnt til barnaverndarnefndar.

Telja sig hafa fundið manninn sem afhenti unglingspilti hlaupbangsana
Lögreglan á Suðurnesjum telur sig hafa haft uppi á eldri manninum sem mun hafa afhent unglingspilti hlaupbangsa sem innihéldu kannabisefni og morfín.

Starfsmaður á frístundaheimili leystur frá störfum vegna gruns um kynferðisbrot gegn nemendum
Starfsmaður á frístundaheimili í Hafnarfirði er grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur nemendum í 1. bekk í síðustu viku. Hann hefur verið leystur frá störfum á meðan rannsókn stendur yfir.

Hætta skipulagðri leit að skipverjanum á Vopnafirði
Skipulagðri leit lögreglu að skipverjanum Axel Jósefssyni Zarioh hefur verið hætt. Áfram verður þó haldið af hálfu björgunarsveitarinnar Vopna á Vopnafirði með leit á sjó og í fjöru en dregið úr þunga þeirrar leitar og skipulagi.

Grunuðum barnaníðingi sleppt úr haldi
Landsréttur hefur hafnað kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald yfir karlmanni sem grunaður er um kynferðisbrot gagnvart tveimur börnum. Héraðsdómur Reykjaness hafði fallist á gæsluvarðhald en Landsréttur taldi skilyrði ekki uppfyllt.

Ekið á 16 ára dreng á vespu
Ekið var á 16 ára dreng á vespu í gær þar sem hann reyndi að keyra yfir gangbraut í Hafnarfirði.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haft afskipti af á sjöunda hundrað vegna aksturs undir áhrifum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur á árinu haft afskipti af nokkur hundruð ökumönnum sem hafa verið undir áhrifum áfengis, lyfja eða fíkniefna. Í fyrra slösuðust 36 manns í umferðinni vegna vímuefnaaksturs.