Íslenska liðið æfir á Ullevaal Karlalandslið Íslands í knattspyrnu mætti til Óslóar um kvöldmatarleytið í gær. Liðið gistir á hóteli í um þriggja kílómetra fjarlægð frá Ullevaal-leikvanginum í norðurhluta borgarinnar. Fótbolti 14. október 2013 08:30
Sálfræðingur til hjálpar norsku strákunum Stórvinkona norska landsliðsþjálfarans hjálpar leikmönnum með andlega þátt knattspyrnunnar Fótbolti 14. október 2013 08:00
Mætti með skopparabolta á blaðamannafund Þótt Norðmenn hafi að litlu að keppa gegn Íslandi annað kvöld vilja þeir gefa tóninn fyrir næstu undankeppni. Þeir eru vel meðvitaðir um gæði íslenska liðsins en ætla sér þó sigur á heimavelli. Fótbolti 14. október 2013 07:30
Kolbeinn fær aftur tækifæri til að jafna met Péturs Íslenski landsliðsframherjinn er búinn að skora í fjórum síðustu landsleikjum og 23 ára met er í hættu. Fótbolti 14. október 2013 06:00
Moa reyndi að leika á blaðamann Mohammed Abdellaoue, framherji norska landsliðsins, er mikill grallari ef marka má viðbrögð hans þegar blaðamaður Vísis óskaði eftir að ná af honum tali á blaðamannafundi liðsins í Osló í dag. Fótbolti 13. október 2013 23:15
Teitur: Góður tími fyrir Ísland að mæta Noregi Teitur Þórðarson þekkir norska boltann vel. Hann útskýrir dramatíkina í kringum brottrekstur Drillo og lægðina í fótboltanum ytra. Fótbolti 13. október 2013 20:52
Um átta þúsund miðar seldir Norðmenn virðast hafa lágmarksáhuga á landsleiknum gegn Íslendingum á þriðjudaginn. Aðeins átta þúsund miðar höfðu selst fyrir helgi. Fótbolti 13. október 2013 16:45
Alvöru HM-stemning á Kýpur-leiknum - myndband Ísland er í flottum málum í undankeppni HM í fótbolta eftir 2-0 sigur á Kýpur fyrir framan troðfullan Laugardalsvöll á föstudagskvöldið. Íslenski boltinn 13. október 2013 16:18
Hermann hættur með ÍBV af persónulegum ástæðum Hermann Hreiðarsson verður ekki áfram með ÍBV í Pepsi-deild karla en það kemur fram á heimasíðu ÍBV að Hermann sé hættur þjálfun liðsins. Þetta eru mjög óvæntar fréttir enda leit allt út fyrir að Hermann yrði áfram með liðið. Íslenski boltinn 13. október 2013 11:37
Töskurnar fóru á undan Sigurður Þórðarson, liðsstjóri karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, var mættur á Keflavíkurflugvöll klukkan sex í morgun með farangur liðsins. Fótbolti 13. október 2013 11:30
Íslenska landsliðið skorar meira en heimsmeistararnir Íslenska karlalandsliðið hefur skorað 16 mörk í níu leikjum sínum í undankeppni HM 2014 sem er það mesta sem karlalandslið Íslands hefur skorað frá upphafi í einni undankeppni. Íslenski boltinn 13. október 2013 10:00
Lagerbäck er kominn upp fyrir Gauja Þórðar Guðjón Þórðarson náði mögnuðum árangri með íslenska landsliðið á árunum 1997 til 1999 þegar landsliðið náði í helming stiga í boði í leikjum sínum í undankeppni HM og EM. Íslenski boltinn 13. október 2013 09:00
Bara Þýskaland með fleiri marka-menn en Ísland Ísland á nú fjóra af sex markahæstu leikmönnunum í E-riðli Evrópuhluta undankeppni HM 2014 eftir að bæði Kolbeinn Sigþórsson og Gylfi Þór Sigurðsson skoruðu í 2-0 sigri á Kýpur á Laugardalsvellinum í fyrrakvöld. Íslenski boltinn 13. október 2013 08:00
Donni aðstoðar Magga Gylfa hjá Val Halldór Jón Sigurðsson, þekktastur undir gælunafninu Donni, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Val en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Íslenski boltinn 13. október 2013 06:00
Ísland með tæknitröll í vörninni - Ragnar sýnir listir sínar Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins, átti flottan leik í 2-0 sigri á Kýpur á föstudagskvöldið en íslenska landsliðið hélt þá marki sínu hreinu í fyrsta sinn í sjö leikjum í undankeppni HM 2014. Íslenski boltinn 12. október 2013 23:00
Ísland með sex mörk í seinni hálfleik í síðustu þremur leikjum Íslenska karlalandsliðið vann í gær 2-0 sigur á Kýpur á Laugardalsvellinum í næstsíðasta leik sínum í riðlakeppni Evrópuhluta undankeppni HM 2014. Bæði mörk íslenska landsliðið komu í seinni hálfleik. Íslenski boltinn 12. október 2013 20:45
766 mínútna bið Gylfa á enda Gylfi Þór Sigurðsson skoraði seinna mark Íslands í 2-0 sigri á Kýpur á Laugardalsvellinum í gær og innsiglaði með því sigur íslensku strákanna sem eru í öðru sæti riðilsins þegar aðeins ein umferð er eftir. Þetta var fyrsta landsliðsmark Gylfa á Laugardalsvellinum. Íslenski boltinn 12. október 2013 19:30
Kolbeinn bætti met Eiðs Smára um tvö ár og fimm mánuði Kolbeinn Sigþórsson varð í gær áttundi leikmaðurinn sem nær því að skora tólf mörk fyrir íslenska A-landsliðið en hann skoraði fyrra mark Íslands í 2-0 sigri á Kýpur í leik þjóðanna í undankeppni HM 2014. Íslenski boltinn 12. október 2013 16:00
Logi hættur með Stjörnuna Logi Ólafsson mun ekki halda áfram að þjálfa lið Stjörnunnar í Pepsi-deild karla í fótbolta en þetta kom fyrst fram á vefmiðlinum 433.is í dag. Logi var bara eitt tímabil með Garðabæjarliðið en kom Stjörnumönnum í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins. Íslenski boltinn 12. október 2013 15:45
Fannar varði tíu skot en það dugði ekki gegn Belgum Íslenska 19 ára landsliðið tapaði 0-2 á móti Belgíu í undankeppni EM en riðill íslenska landsliðsins fer einmitt fram í Belgíu. Íslenska liðið hefur þar með aðeins eitt stig eftir tvio fyrstu leiki sína en Belgarnir eru komnir áfram þegar einn leikur er eftir. Fótbolti 12. október 2013 14:52
Tíu ár síðan Ísland vann tvo leiki í röð í undankeppni Íslenska karlalandsliðið í fótbolta vann í gær sinn annan leik í röð í undankeppni HM 2014 þegar íslensku strákarnir unnu sannfærandi 2-0 sigur á Kýpur á Laugardalsvellinum. Íslenski boltinn 12. október 2013 14:30
Greta Mjöll hætt í fótbolta Greta Mjöll Samúelsdóttir, landsliðskona og fyrirliði bikarmeistara Breiðabliks í kvennafótboltanum, tilkynnti það í dag á fésbókarsíðu sinni að hún sé hætt í fótbolta aðeins 26 ára gömul. Íslenski boltinn 12. október 2013 11:24
Sækjum til sigurs í Osló Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck fagnaði góðum úrslitum í gærkvöldi þótt frammistaðan hafi oft verið betri. Enginn fékk gult spjald svo allir ættu að vera klárir í slaginn í stærsta leik karlaliðsins frá upphafi í Osló. Fótbolti 12. október 2013 08:00
Enn í okkar höndum Eftir mikla þolinmæðisvinnu strákanna okkar lönduðu þeir 2-0 sigri gegn Kýpur á Laugardalsvelli í gær. Eurovision-umræða og tilheyrandi pressa hafði lítil áhrif. Fótbolti 12. október 2013 07:00
Bendtner kláraði næstum því Ítala á Parken Nicklas Bendtner snéri aftur í danska landsliðið og skoraði bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli á móti Ítölum á Parken í undankeppni HM 2014 í í kvöld. Sigur hefði komið Dönum upp í annað sæti riðilsins en Ítalir höfðu þegar tryggt sér efsta sætið og farseðil til Brasilíu næsta sumar. Fótbolti 11. október 2013 20:08
Belgar komnir á HM - Lukaku með bæði mörkin Belgía tryggði sér farseðilinn á HM í Brasilíu með því að vinna 2-1 útisigur á Króatíu í kvöld í uppgjöri tveggja efstu liðanna í A-riðli. Belgum nægði bara jafntefli en hafa nú átta stiga forskot á Króatíu þegar aðeins einn leikur er eftir. Fótbolti 11. október 2013 17:57
Eiður Smári byrjar, Alfreð á bekknum - óbreytt byrjunarlið Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, teflir fram sama byrjunarliði á móti Kýpur í kvöld og í sigurleiknum á móti Albaníu á dögunum. Fótbolti 11. október 2013 16:55
Hver á að skora fyrir Norðmenn? Norðmenn gera sér enn vonir um að ná 2. sætinu í E-riðli undankeppni HM. Það gera þeir vinni þeir báða leikina sem þeir eiga eftir. Norðmenn eru í fjórða sæti í E-riðlinum þegar tvær umferðir eru eftir, stigi á eftir Slóvenum og tveimur stigum á eftir Íslendingum. Fótbolti 11. október 2013 16:23
Jafntefli í Slóveníu í kvöld eru bestu úrslitin fyrir Ísland Næstsíðasta umferðin í riðli Íslands í undankeppni HM í Brasilíu 2014 fer fram í kvöld og eru öll sex liðin í riðli Íslands í eldlínunni. Fótbolti 11. október 2013 14:15
Gunnlaugur mun ræða við Garðar um framtíð hans hjá ÍA Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrr í þessum mánuði mun framtíð framherjans Garðars Bergmanns Gunnlaugssonar vera í óvissu eftir að knattspyrnudeild ÍA sagðist ekki hafa áhuga á að nýta hans krafta í framtíðinni. Íslenski boltinn 11. október 2013 13:45