Heskey í landsliðshópnum Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, hefur tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleik gegn Tékklandi á miðvikudag. Emile Heskey, sóknarmaður Wigan, er í hópnum en hinsvegar er ekkert pláss fyrir Peter Crouch leikmann Portsmouth. Enski boltinn 17. ágúst 2008 13:39
Torres hetja Liverpool Liverpool vann Sunderland 1-0 í síðasta leik dagsins í enska boltanum. Fernando Torres var hetja Liverpool en hann skoraði sigurmarkið á 83. mínútu leiksins. Enski boltinn 16. ágúst 2008 19:45
Grétar skoraði í sigri Bolton Grétar Rafn Steinsson kom Bolton á bragðið gegn Stoke í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann ætlaði að senda fyrir markið en boltinn söng í netinu. Bolton vann leikinn 3-1. Enski boltinn 16. ágúst 2008 16:20
Mark Nasri dugði til sigurs Fyrsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni er lokið. Arsenal vann 1-0 sigur á West Bromwich Albion á heimavelli sínum. Eina mark leiksins skoraði Samir Nasri á fjórðu mínútu. Enski boltinn 16. ágúst 2008 13:43
Nasri opnaði markareikninginn eftir þrjár mínútur Flautað var til leiks í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu en þá hófst leikur Arsenal og West Bromwich. Það tók Arsenal aðeins rúmar þrjár mínútur að komast yfir í leiknum. Enski boltinn 16. ágúst 2008 12:01
Abdoulaye Faye til Stoke Stoke City hefur keypt senegalska landsliðsmanninn Abdoulaye Faye frá Newcastle á 2,25 milljónir punda. Þessi 30 ára varnarmaður hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stoke. Enski boltinn 15. ágúst 2008 21:00
Búið að lækka verðið á Arshavin Andrei Arshavin gæti farið til Tottenham eftir allt en Zenit frá Pétursborg hefur lækkað verðmiðann á leikmanninum. Tottenham hætti viðræðum við Zenit í síðasta mánuði eftir að ekki tókst að semja um kaupverðið á Arshavin. Enski boltinn 15. ágúst 2008 20:00
Pizarro til Bremen Framherjinn Claudio Pizarro hjá Chelsea hefur samþykkt að ganga í raðir Werder Bremen í Þýskalandi á eins árs lánssamning. Þessi 29 ára Perúmaður hefur ekki átt fast sæti í liði Chelsea eftir ágæt ár með liði Bayern í Þýskalandi á árum áður. Enski boltinn 15. ágúst 2008 15:55
Enski hefst á morgun - Upphitun fyrir leiki helgarinnar Tæplega 100 daga bið aðdáenda enska boltans lýkur klukkan 11:30 í fyrramálið þegar Arsenal og WBA spila opnunarleikinn í ensku úrvalsdeildinni þetta árið. Enski boltinn 15. ágúst 2008 14:10
Owen missir líklega af leiknum við United Kevin Keegan, stjóri Newcastle, segir mjög ólíklegt að framherjinn Michael Owen geti tekið þátt í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni. Owen er ekki orðinn leikfær eftir meiðsli og verður því tæplega með gegn Manchester United á sunnudag. Enski boltinn 15. ágúst 2008 12:30
Roy Keane tippar á Chelsea Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United og núverandi knattspyrnustjóri Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, telur að Chelsea muni hampa Englandsmeistaratitlinum næsta sumar. Enski boltinn 15. ágúst 2008 11:03
Mendes í viðræðum við Rangers Portúgalski miðjumaðurinn Pedro Mendes hjá Portsmouth er nú í viðræðum við skoska félagið Glasgow Rangers eftir að Portsmouth samþykkti um 3 milljón punda kauptilboð í hann. Enski boltinn 15. ágúst 2008 10:59
Agbonlahor framlengir við Aston Villa Gabriel Agbonlahor, leikmaður Aston Villa, hefur framlengt samning sinn við félagið um fjögur ár. Þessi 21 árs gamli framherji er að nálgast 100 leikja markið hjá Villa eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik með félaginu árið 2006. Hann skoraði eitt marka Villa í 4-1 sigrinum á FH í gærkvöld. Enski boltinn 15. ágúst 2008 10:17
Newcastle semur við Coloccini Argentínski landsliðsmaðurinn Fabricio Coloccini hefur gert fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle. Coloccini var áður hjá Deportivo hjá Spáni, en kaupverðið á þessum 26 ára gamla varnarmanni hefur ekki verið gefið upp. Enski boltinn 15. ágúst 2008 10:15
Hull keypti Gardner Hull hefur staðfest að félagið sé búið að kaupa varnarmanninn Anthony Gardner frá Tottenham á 2,5 milljónir punda. Þessi 27 ára miðvörður kom upphaflega til Hull á lánssamningi. Enski boltinn 14. ágúst 2008 23:00
Man City tapaði heima fyrir Midtjylland Óvæntustu úrslit kvöldsins í UEFA bikarnum voru án vafa tap Manchester City á heimavelli gegn danska liðinu Midtjylland 0-1. Danska liðið tók forystuna eftir fimmtán mínútna leik eftir mistök Richard Dunne. Enski boltinn 14. ágúst 2008 21:19
Ramos vill enn halda Berbatov Enn er ekki orðið ljóst hvort búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov muni spila með liði Tottenham þegar enska úrvalsdeildin hefst um helgina. Enski boltinn 14. ágúst 2008 17:01
Mutu þarf að greiða Chelsea tvo milljarða Alþjóða Knattspyrnusambandið hefur skipað rúmenska framherjanum Adrian Mutu að greiða Chelsea á Englandi um tvo milljarða í miskabætur. Mutu var látinn fara frá félaginu árið 2004 eftir að hafa orðið uppvís af kókaínneyslu. Enski boltinn 14. ágúst 2008 16:52
Carew framlengir við Villa Norski framherjinn John Carew hjá Aston Villa hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár og er nú samningsbundinn til ársins 2011. Carew var markahæsti leikmaður Villa á síðustu leiktíð með 13 mörk. Enski boltinn 14. ágúst 2008 16:05
Hoyte í viðræðum við Boro Arsenal hefur samþykkt kauptilboð Middlesbrough í bakvörðinn Justin Hoyte og er hann nú á leið í viðræður við félagið um samning. Hoyte er 23 ára gamall og hefur ekki átt fast sæti í liði Arsenal. Enski boltinn 14. ágúst 2008 13:47
Blackburn neitaði tilboði City í Santa Cruz Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn hefur neitað kauptilboði Manchester City í framherjann Roque Santa Cruz, en Paragvæmaðurinn lék með Blackburn undir stjórn Mark Hughes sem nú stýrir City. Enski boltinn 14. ágúst 2008 13:45
Chelsea gefst ekki upp á Robinho Peter Kenyon telur að Chelsea eigi enn möguleika á því að landa brasilíska sóknarmanninum Robinho frá Real Madrid. Chelsea bauð 19,7 milljónir punda í leikmanninn í síðustu viku en því var hafnað. Enski boltinn 13. ágúst 2008 23:45
Vassell úr leik hjá City Framherjinn Darius Vassell hjá Manchester City verður frá keppni næstu tíu vikurnar eða svo eftir að hafa meiðst á hné í æfingaleik um helgina. Enski boltinn 13. ágúst 2008 18:15
Lampard framlengir við Chelsea Enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Lampard var m.a. orðaður við Inter Milan í sumar, en hefur nú ákveðið að leika áfram með Lundúnaliðinu. Enski boltinn 13. ágúst 2008 16:10
Adebayor gaf 15 milljónir í hjálparstarf Framherjinn Emmanuel Adebayor hjá Arsenal hefur gefið rúmar 15 milljónir króna til hjálparstarfsins í heimalandi sínu Tógó í Afríku eftir að mikil flóð gengu yfir landið í síðustu viku. Enski boltinn 13. ágúst 2008 15:53
Barton gengst við ákæru knattspyrnusambandsins Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Newcastle hefur gengist við ákæru enska knattspyrnusambandsins vegna árásar á fyrrum liðsfélaga sinn hjá Manchester City á sínum tíma. Enski boltinn 13. ágúst 2008 15:42
Bale framlengir við Tottenham Walesverjinn ungi Gareth Bale hjá Tottenham hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem bindur hann til ársins 2012. Samningurinn er eins árs framlenging á fyrri samningi. Enski boltinn 13. ágúst 2008 13:24
Arsenal í vanda fyrir Evrópuleik Arsene Wenger er strax farinn að sjá eftir því að hafa ekki styrkt lið sitt meira í sumar. Hann stendur nú frammi fyrir því að vera án níu leikmanna fyrir evrópuleikinn gegn FC Twente í kvöld. Enski boltinn 13. ágúst 2008 10:37
Man Utd og Tottenham sættast á 25 milljónir fyrir Berbatov Manchester United og Tottenham eru við það að ná samkomulagi um kaupverð á sóknarmanninum búlgarska Dimitar Berbatov. Enski boltinn 13. ágúst 2008 09:31
Berbatov að færast nær United? Fréttasíður á Englandi eru uppfullar af fréttum af búlgarska sóknarmanninum Dimitar Berbatov. Talað er um að Manchester United sé að færast nær því að klófesta leikmanninn. Enski boltinn 12. ágúst 2008 23:45