Rodgers: Sterling besti ungi leikmaðurinn í Evrópu í dag - myndband Raheem Sterling hefur farið á kostum með Liverpool á lokasprettinum í ensku úrvalsdeildinni og komi enski meistaratitilinn á Anfield í fyrsta sinn síðan 1990 þá á þessi 19 ára strákur stóran þátt í því. Enski boltinn 20. apríl 2014 22:30
Wenger: Wilshere verður í góðum gír á HM í sumar Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er sannfærður um að miðjumaðurinn Jack Wilshere verði í góðum gír með enska landsliðinu á HM í Brasilíu í sumar. Enski boltinn 20. apríl 2014 21:45
Everton með fullt hús á móti Man. United í fyrsta sinn í 44 ár Roberto Martinez heldur áfram að gera frábæra hluti með Everton-liðið í ensku úrvalsdeildinni og í dag náði liðinu afreki sem hafði ekki gerst í 44 ár eða síðan 1969-70 tímabilið. Enski boltinn 20. apríl 2014 17:18
Liverpool náði ekki að vinna Chelsea Katrín Ómarsdóttir og félagar hennar í kvennaliði Liverpool gerðu markalaust jafntefli við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Enski boltinn 20. apríl 2014 15:23
Everton vann Man. United og fylgir Arsenal sem skugginn - myndband Everton vann 2-0 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld í endurkomu David Moyes, fyrrum knattspyrnustjóra félagsins, á Goodison Park. Enski boltinn 20. apríl 2014 14:30
Rodgers: Það verður magnað andrúmsloft á Anfield í Chelsea-leiknum Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, sá sína menn vinna sinn ellefta deildarleik í röð í dag og ná um leið fimm stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 20. apríl 2014 13:43
Suarez: Þú veist aldrei hvað gerist í fótboltanum Luis Suarez, framherji Liverpool, var kátur í viðtali við BBC eftir 3-2 sigur á Norwich í dag en Liverpool náði með því fimm stiga forskoti í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 20. apríl 2014 13:31
Liverpool öruggt með Meistaradeildarsæti 2014-15 Liverpool náði ekki bara fimm stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með því að vinna 3-2 sigur á Norwich heldur er nú tölfræðilega öruggt að félagið verði í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Enski boltinn 20. apríl 2014 13:06
Arsenal vann Hull örugglega - myndband Lukas Podolski skoraði tvö mörk og Aaron Ramsey átti þátt í öllum þremur mörkunum þegar Arsenal vann 3-0 útisigur á Hull í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Enski boltinn 20. apríl 2014 12:30
Liverpool með fleiri mörk í fyrri hálfleik heldur en United í heildina Liverpool skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum á móti Norwich í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en leikur liðanna stendur nú yfir á Carrow Road í Norwich og með sigri nær Liverpool fimm stiga forskoti á toppi deildarinnar. Enski boltinn 20. apríl 2014 12:21
Hodgson sendi stjórum liðanna bréf Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu sendi öllum 20 knattspyrnustjórum ensku úrvalsdeildarinnar bréf í vikunni. Í bréfinu óskaði Hodgson eftir því að ensku leikmennirnir í liðunum fengju aukna hvíld þegar úrvalsdeildin klárast. Enski boltinn 20. apríl 2014 09:00
Upphitun: Moyes mætir aftur á Goodison Park | Myndband Liverpool þarf þrjú stig þegar liðið mætir Norwich á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 20. apríl 2014 08:00
Liverpool náði fimm stiga forskoti - myndband Liverpool er komið með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 3-2 útisigur á Norwich í dag. Liverpool skoraði tvö mörk snemma leiks og lifði síðan af taugaveiklaðan seinni hálfleik þar sem Norwich náði tvisvar að minnka muninn í eitt mark. Enski boltinn 20. apríl 2014 00:01
Koscielny í viðræðum um nýjan samning Arsenal vinnur þessa dagana hörðum höndum að semja við Laurent Koscielny, miðvörð liðsins og franska landsliðsins um nýjan samning. Talið er að fjöldi stórliða bíði áhugasöm eftir fréttum af samningarviðræðunum. Enski boltinn 19. apríl 2014 22:15
United er með betri hóp en fólk telur Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton nýtti tækifærið og skaut léttum skotum á David Moyes, knattspyrnustjóra Manchester United fyrir leik liðanna á morgun. Enski boltinn 19. apríl 2014 20:30
Mourinho: Verð að hrósa Mike Dean og Mike Riley Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var stuttyrtur og óánægður eftir 1-2 tap gegn Sunderland í dag. Enski boltinn 19. apríl 2014 18:56
Moyes á von á erfiðum leik David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, verður í sviðsljósinu um helgina þegar lærisveinar hans mæta Everton á Goodison Park. Leikurinn verður fyrsti leikur Moyes á Goodison sem stjóri Manchester United. Enski boltinn 19. apríl 2014 17:30
Solskjaer óánægður með vítaspyrnudóminn Ole Gunnar Solskjaer, knattspyrnustjóri Cardiff var óánægður með dómara leiksins í leik liðsins gegn Stoke í ensku úrvalsdeildinni í dag. Stoke fékk vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar fyrrum leikmaður Cardiff, Peter Odemwingie féll í vítateig Cardiff. Enski boltinn 19. apríl 2014 16:45
Terry að skrifa undir nýjan samning Fyrirliði Chelsea, John Terry, er við það að skrifa undir framlengingu á samning sínum hjá Chelsea samkvæmt Steve Holland, aðstoðarþjálfara Chelsea. Talið er að laun Terry muni lækka um helming en hann verður 34 ára á þessu ári. Enski boltinn 19. apríl 2014 12:15
Toure segist ekki metinn að verðleikum Yaya Toure segir að hann sé ekki talinn einn besti knattspyrnumaður heims vegna þess að hann er afrískur. Enski boltinn 19. apríl 2014 09:00
Upphitun: Kemst Chelsea á toppinn? | Myndband 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst með mikilvægum Lundúnarslag í hádeginu en alls fara sex leikir fram í dag. Enski boltinn 19. apríl 2014 06:00
Tottenham vann skyldusigur á Fulham Tottenham styrkti stöðu sína í baráttunni um sæti í Evrópudeildinni með 3-1 sigri á Fulham á White Hart Lane í dag. Tottenham er sex stigum fyrir ofan Manchester United eftir leikinn en rauðu djöflarnir eiga tvo leiki til góða. Enski boltinn 19. apríl 2014 00:01
Cardiff og Stoke skildu jöfn Cardiff nældi í eitt stig í 1-1 jafntefli gegn Stoke á heimavelli Cardiff í dag. Cardiff er tveimur stigum frá Norwich í sautjánda sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Enski boltinn 19. apríl 2014 00:01
Borini tryggði Sunderland stigin þrjú á Stamford Bridge Sunderland varð í dag fyrsta liðið til þess að sigra Chelsea undir stjórn Jose Mourinho á Stamford Bridge. Jose Mourinho hafði ekki tapað í 77 leikjum á heimavelli sem stjóri Chelsea. Enski boltinn 19. apríl 2014 00:01
England: Úrslit dagsins | Ameobi skoraði Shola Ameobi skoraði fyrsta mark sitt í ensku úrvalsdeildinni frá árinu 2012 í 1-2 tapi gegn Swansea á St. James Park í dag. Enski boltinn 19. apríl 2014 00:01
Luis Suarez tók viðtal við Paul McCartney Paul McCartney, fyrrum bítillinn var í viðtali hjá Luis Suarez í auglýsingu fyrir tónleika kappans í Montevideo í Úrúgvæ sem fara fram í kvöld. Enski boltinn 19. apríl 2014 00:00
Leikmaður West Ham lést úr krabbameini Dylan Tombides, sóknarmaður enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham, er látinn. Enski boltinn 18. apríl 2014 21:00
Burnley þarf að bíða Derby County heldur enn í veika von um að ná öðru sæti ensku B-deildarinnar og komast þannig beint upp í úrvalsdeildina. Enski boltinn 18. apríl 2014 20:41
Stjórnarformaðurinn tekur gagnrýninni Karl Oyston, stjórnarformaður Blackpool, segir gagnrýni stuðningsmanna félagsins réttmæta. Enski boltinn 18. apríl 2014 19:52
Aðstoðarþjálfarinn fékk rautt fyrir að ýta við eigin leikmanni | Myndband Það gekk á ýmsu í viðureign Blackpool og Burnley í ensku B-deildinni í dag. Enski boltinn 18. apríl 2014 19:43