
Próftökubann og refsingar fyrir svindlara
Í nýju frumvarpi innviðaráðherra til breytinga á umferðarlögum er lagt til að brot á prófreglum í ökuprófi geti varðað sviptingu á próftökurétti í allt að sex mánuði, auk annarra mögulegra refsinga.
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Í nýju frumvarpi innviðaráðherra til breytinga á umferðarlögum er lagt til að brot á prófreglum í ökuprófi geti varðað sviptingu á próftökurétti í allt að sex mánuði, auk annarra mögulegra refsinga.
Í kastljósi á RÚV á þriðjudag var fjallað um eftirlit með snyrtistofum vegna hugsanlegs mansals og eftirlits með fagmenntun þeirra sem starfa þar. Snyrtifræði er löggild iðngrein hér á landi og er varin í lögum um handiðnað.
Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp sem ætlað er að auka kröfur á forsvarsmenn trúfélaga, lífsskoðunarfélaga, sjóða og stofnana varðandi utanumhald reksturs. Það regluverk sem gildir um slík félög hér á landi þykir skapa verulega hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Hver einstaklingur má að hámarki kaupa í Íslandsbanka fyrir tuttugu milljónir. Samkvæmt nýju frumvarpi um sölu bankans sem lagt hefur verið fyrir Alþingi verður áhersla lögð á að selja til einstaklinga, sem munu njóta forgangs við úthlutun.
Karlmaður á flótta sem dvelur í Neyðarskýli Rauða krossins segist ekki hafa trúað eigin augum þegar hann horfði á myndband af sjálfum sér með hróp og köll á þingpöllum Alþingis.
Efnt var til minningarstundar í dómkirkjunni síðdegis í dag um þau sem látist hafa úr fíknisjúkdómi. Varaformaður Samtaka aðstandenda og fíknisjúkra segir fólk deyja á biðlistum meðan stjórnvöld setji ekki fjármagn í málaflokkinn og marki sér ekki.
Núna síðastliðinn fimmtudag voru ný lög samþykkt á Alþingi sem gerir kjötframleiðendum undanþegna samkeppnislögum. Það er enþá hægt að koma í veg fyrir þessi lög, ef nægar undirskriftir safnast og verða þær að koma tveimur vikum frá því að lögin voru samþykkt á Alþingi skv. 26.gr stjórnarskrárinnar.
Menningar- og viðskiptaráðherra birti nýverið drög að frumvarpi um breytingar á lögum um listamannalaun í samráðsgátt stjórnarráðsins. Drögin fela í sér fyrstu efnislegu endurskoðunina á listamannalaunakerfinu frá setningu núgildandi laga árið 2009.
Undanfarna sex mánuði hefur heimurinn horft upp á hryllilega mannúðarkrísu stigmagnast á Gaza-ströndinni. Hungursneyð vofir yfir íbúum og nær ómögulegt er orðið fyrir alþjóðleg hjálparsamtök og heilbrigðisstarfsfólk að veita særðum og sjúkum aðstoð undir stöðugu sprengjuregni.
Stjórnsýslufræðingur segir að nýsamþykkt búvörulög hafi verið ólöglega sett því breytingarfrumvarpið hafi breyst of mikið við aðra umræðu. Hann telur að málið yrði dæmt ógilt ef það færi fyrir dómstóla.
Í síðustu viku voru samþykkt lög um breytingar á búvörulögum nr. 99/1993, framleiðendafélög. Þær miklu umræður sem fylgt hafa í kjölfarið hafa væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum manni enda hafa stór orð verið látin falla sem eiga ekki öll rétt á sér.
Ég heyri reglulega alls konar greiningar á stjórnmálunum og oftar en ekki þá er ekki öll sagan sögð. Yfirleitt er það annað hvort af því að viðkomandi þekkir ekki öll sjónarmið eða gögn mála eða er einfaldlega bara að flytja ákveðinn pólitískan boðskap.
Alþingi afgreiddi með miklum hraði breytingar á búvörulögum í liðinni viku. Innan við sólarhringur leið frá því að nefndarálit meiri hluta atvinnuveganefndar lá fyrir þar til frumvarpið var orðið að lögum.
Það var góður andi á Alþingi í liðinni viku þegar utanríkisráðherra mælti fyrir tillögu til þingsályktunar um öflugan stuðning Íslands við Úkraínu. Við erum öll - ættum a.m.k. öll - að vera vel meðvituð um brýna þörf Úkraínu fyrir stuðning í yfirstandandi innrásarstríði Rússlands.
Forsætisráðherra segir að athugasemdir Samkeppniseftirlitsins við búvörulög verði teknar til skoðunar, en lögin voru samþykkt í vikunni. Formaður atvinnuveganefndar vísar gagnrýni um gagnsemi laganna á bug.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Sigmar Guðmundsson voru til viðtals í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Rætt var um ný búvörulög og áhrif þeirra á íslenska neytendur og bændur. Sigurður segir lögin sambærileg lögum Norðurlandanna og feli í sér mikla kjarabót bæði fyrir bændur og neytendur. Sigmar er ósammála og segir löggjöfina geta skapað hvata fyrir stór fyrirtæki til að bjóða neytendum hærra verð.
Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna segir að líklegast hafi Inga Sæland formaður Flokks fólksins verið að vísa í sig þegar Inga ræddi um „eina fatlaða liðið á þinginu“. Steinunni Þóru þykir leitt að Flokkur fólksins átti sig ekki á mikilvægi framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks.
Hasar var á Alþingi við umræður um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks. Þingmanni Vinstri grænna ofbauð framganga Ingu Sæland formanns Flokks fólksins þegar hún tjáði sig um málið.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra er enn í veikindaleyfi þrátt fyrir að fram komi á vef Alþingis að hún taki sæti á þinginu á ný í dag.
Þingmaður Viðreisnar segir kaldhæðnislegt að í sömu viku vinni Alþingi að því að ríkisvæða tryggingarfélag og útrýma samkeppni á búvörumarkaði. Hann telur að fólk átti sig ekki á hversu slæmar afleiðingar breytingarnar á búvörulögunum muni hafa, bæði á bændur og neytendur.
Breytingar sem samþykktar voru á búvörulögum í gær jafngilda stórslysi að mati framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Nú geti fyrirtæki sem skili milljarða hagnaði hagað sér eins og þeim sýnist á markaði án aðhalds frá Samkeppniseftirlitinu.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir nýsamþykkt búvörulög mun róttækari en þekkist í löndunum í kringum okkur. Löggjafinn hafi gengið mun lengra en þekkist í nágrannaþjóðum.
Í gær voru samþykktar breytingar á búvörulögum, um er að ræða að breytingar sem skipta verulegu máli fyrir íslenskan landbúnað. Þeim er ætlað að styðja við endurskipulagningu og hagræðingu í slátrun og kjötvinnslu.
Halla Signý Kristjánsdóttir fagnaði breytingum á búvörusamningum á þinginu áðan en það gerði Sigmar Guðmundsson Viðreisn ekki. Hann óskaði Sjálfstæðisflokknum sérstaklega til hamingju með að hafa á örfáum dögum ríkisvætt tryggingafélag og tryggt einokun milliliða í landbúnaði.
Að eiga þak yfir höfuðið á Íslandi er bara ansi erfitt. Að leigja þak yfir höfuðið á Íslandi er hins vegar nær því að vera dystópísk martröð, að minnsta kosti í samanburði við samanburðarlönd.
Fjárlaganefnd ætlar að óska eftir upplýsingum frá Bankasýslunni um samskipti stofnunarinnar og fjármálaráðuneytisins vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingafélagi. Formaður nefndarinnar hefur efasemdir um kaupin en telur rétt að bíða eftir skýringum.
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda vekur athygli á því að frumvarp matvælaráðherra sem samþykkt var á Alþingi í gær af þingmönnum ríkisstjórnarinnar auk Miðflokksins komi fjölmörgum stórfyrirtækjum ansi hreint vel. Nýju lögin komi ekki aðeins sláturhúsum á barmi gjaldþrots til bjargar. Hann er gagnrýninn á nýsamþykkt lög.
Frumvarp matvælaráðherra um breytingar á búvörulögum var samþykkt á Alþingi í gær, þrátt fyrir hörð mótmæli Samkeppniseftirlitsins, Neytendasamtakanna, Alþýðusambands Íslands, VR, Félags atvinnurekenda og fleiri.
Árásarstríð Rússa gegn Úkraínu, sem hófst í febrúar 2022 og stendur enn, hefur gjörbreytt öryggisumhverfi Íslands, aðildarríka Evrópusambandsins og raunar heimsins alls.
Samkeppniseftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp matvælaráðherra um breytingu á búvörulögum og varar við samþykki þess. Frumvarpið muni heimila kjötafurðastöðvum að hafa með sér hvers lags samráð, þær megi sameinast án takmarkana og hafi fullt sjálfdæmi um verðlagningu til bænda og neytenda. Hagsmunir neytenda verði fyrir borð bornir.