Haukar og Valur mættust í Olís deild kvenna
Í Hafnafirði stendu nú yfir leikur Hauka og Íslandsmeistara Vals í Olís deild kvenna. Leikurinn er í beinni útsendingu á stöð 2 sport 3. Staðan að loknum fyrri hálfleik í Hafnafirði var 8 - 16 Valskonum í vil. Valur með fullt hús stiga fyrir leikinn en Haukakonur stigalausar. Valur sýndi mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum og leiddi með 8 mörkum þegar um 8 mínútur voru eftir af hálfleiknum. Þær héldu forystunni út hálfleikinn og leiddu sannfærandi með 8 mörkum að honum loknum eins og fyrr segir 8 - 16. Hægt er að fylgjast með síðari hálfleiknum í beinni útsendingu á stöð 2 sport 3.