Sex slökkviliðsmenn hlupu þvert yfir Ísland

Sex slökkviliðsmenn luku ætlunarverki sínu í morgun eftir að hafa hlaupið þrjúhundruð og fjörutíu kílómetra leið frá Akureyri til Selfoss. Með hlaupinu söfnuðu þeir fyrir hitakassa á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Þegar hópurinn kom að Suðurlandsvegi tóku aðrir viðbragðsaðilar á móti þeim og fylgdu þeim síðasta spölinn inn á Selfoss þar sem vel var tekið á móti þeim.

89
01:08

Vinsælt í flokknum Fréttir