Fleiri fréttir

Fjárfestingar í sprotafyrirtækjum: Af hinu góða að reka hér marga öfluga vísisjóði
„Við gerðumst bakhjarlar að VC Challenge vegna þess að þetta námskeið stendur fyrir margt sem við viljum stuðla að,“ segir Sæmundur K. Finnbogason sjóðstjóri Kríu um aðkomu sjóðsins að samnorræna verkefninu VC Challenge, en markmið námskeiðsins er að búa til enn öflugra fjárfestingaumhverfi sprotafyrirtækja með því að þjálfa og undirbúa næstu kynslóð sjóðstjóra vísisjóða.

Fjárfestingar í sprotafyrirtækjum: Námskeið til að þjálfa næstu kynslóð sjóðsstjóra
„Frá aldamótum hefur mikil þekking orðið til hjá íslensku vísissjóðunum en það má segja að markmið VC Challenge námskeiðsins sé að þjálfa næstu kynslóð sjóðsstjóra. Með meiri þekkingu og reynslu verða þessir vísisjóðir álitlegri fjárfestingakostur fyrir aðra fjárfesta,“ segir Freyr Friðfinnsson alþjóðafulltrúi KLAK um samstarfsverkefni sem KLAK er nú aðili að ásamt mörgum aðilum í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Norðurlöndunum.

Starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum og nú hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni í Genf
„Markmiðið er að vinna áfram að því í framtíðinni að skoða fjármál og alþjóðaviðskipti með það að leiðarljósi að útrýma fátækt og ójöfnuð í heiminum. Ég held reyndar að ég hafi alltaf haft áhuga á því að vilja útrýma fátækt. Alveg frá því að ég var lítil hefur sú hugsjón fylgst mér,“ segir Ólafía Kolbrún Gestsdóttir, sem nú býr í Genf í Sviss ásamt sambýlismanni sínum Kristófer Atla Andersen.

Vaknar við syngjandi uglu klukkan sex á morgnana
Fyrir um tveimur mánuðum breyttist morgunrútína Þóreyjar Einarsdóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Vísindagarða HÍ, all hressilega því þá lærði yngsta dóttirin á klukku og finnst tilvalið að stilla hana á hringingu klukkan sex á morgnana.

Í kjölfar Covid: Miklu fleira en Stóra uppsögnin í gangi
Í kjölfar heimsfaraldurs hefur mikið verið fjallað um Stóru uppsögnina, eða The Great Resignation tímabilið. Þar sem sú þróun sýndi sig á vinnumarkaði um allan heim að hlutfallslega hefðu aldrei jafn margir sagt upp störfum sínum og hreinlega tekið ákvörðun um að gera eitthvað nýtt eða öðruvísi.

Fengu meðal annars styrk upp á 2,1 milljón evra
„Lengi framan af voru starfsmennirnir einn til tveir eða allt þar til árið 2019, þá kom Brunnur fjárfestingasjóður inn með fjármögnun og teymið varð þriggja til fjögurra manna. En frá upphafi höfum við nýtt okkur styrkjarumhverfið, allt frá styrkjum fyrir markaðsmálin yfir í styrk í gegnum einkaleyfisferlið,“ segir Ósvaldur Knudsen framkvæmdastjóri Laki Power.

Nefnir fimm fyrstu atriðin sem hann myndi skoða ef hann gæti breytt íslensku heilbrigðiskerfi
Í þættinum Gott fólk með Guðrúnu Högna er Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar, spurður um hvaða fimm atriði hann myndi setja í forgang sem fyrstu fimm forgangsverkefnin til að skoða, ef hann hefði tækifæri til þess að breyta íslensku heilbrigðiskerfi.

Notuðu hárblásara til að kynna hugmyndina á nokkrum fundum með ráðherrum
„Þetta er reyndar þrjátíu ára gömul hugmynd,“ segir Óskar Svavarsson annar stofnanda nýsköpunarfyrirtækisins Sidewind sem stefnir að framleiðslu vindtúrbínu sem komið er fyrir í opnum gámum.

„Við vorum alveg skíthrædd fyrst og hugsuðum bara með okkur Úff!“
„Við vorum alveg skíthrædd fyrst og hugsuðum bara með okkur Úff! Spurðum þau hjá VIRK hvort þau væru viss um að þau vildu blanda sér í þessa umræðu,“ segir Rósa Hrund Kristjánsdóttir hönnunarstjóri Hvíta hússins þegar hún rifjar upp aðdraganda þess að auglýsingaherferðin Það má ekkert lengur var búin til.

Merkilegur andskoti hvað klukkan verður fljótt fimm
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson sviðstjóri tónlistarsviðs Menningarfélags Akureyrar, framkvæmdastjóri Sinfonia Nord/Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, tónskáld og gítarleikari leggur mikinn metnað í matargerð svo ekki sé meira sagt. Þar dugir ekkert minna en tveggja til þriggja tíma matargerð, allt gert frá grunni.

Vanhæfir leiðtogar: Sjálfstraust oft misskilið sem hæfni
Rannsóknir hafa sýnt að eitt stærsta vandamál heimsins felst í því að of margir eru í leiðtogastöðum, sem þó hafa ekki hæfni til þess. Skýringin er sögð sú að of oft misskilst sjálfstraust fyrir hæfni.

Vinkonur og vinna: „Þetta er ekkert ólíkt því að eiga maka í vinnunni!“
„Við kynnumst þegar við fórum báðar í markþjálfun og uppgötvuðum hvað við ættum ofboðslega margt sameiginlegt. Hin talaði og þá hugsaði maður: Hvernig vissi hún þetta um mig? Þetta var eins og að kynnast systur sem ég vissi ekki að ég ætti,“ segir Erla Björnsdóttir mannauðstjóri Sjúkrahússins á Akureyri og skellihlær.

Besti vinurinn stundum besti meðmælandi vinnustaðarins
Bjarni Benediktsson verkefnastjóri og Daniel Kristinn Gunnarsson hönnunararkitekt starfa báðir hjá Advania.

Nýsköpun í útrás: Stundum svolítið klaufalegt en tókst á endanum
Við heyrum oft af nýsköpunarfyrirtækjum sem eru að gera góða hluti. Fáum fréttir af fjármögnun eða styrkjum og markmiðum um útrás. En hvernig ætli síðan útrásin gangi? Og hvernig gengur hún fyrir sig þegar farið er af stað?

Finnst gott að brjóta saman sokka eftir erfiðan dag
Ásgeir Kolbeinsson, framkvæmdastjóri, markaðsstjóri, mannauðsstjóri, stjórnarformaður, hugmyndasmiður, dagskrárgerðarmaður, fjárfestir og þáttastjórnandi segir líklega einfaldast að súmmera öll stöðugildin sín í orðið athafnamaður. Þótt honum finnist það svo sem ekki spennandi nafngift. Ásgeir er með mörg járn í eldinum, meðal annars spennandi podcast þátt með fleira fólki, sem hann segir fara í loftið fljótlega.

Neikvæð áhrif foreldra á viðhorf barna til vinnu
Við viljum öll að börnunum okkar gangi sem best í lífi og starfi þegar þau eru orðin fullorðin. Óháð því hvaða menntun eða starfsferil þau velja sér.

Starfsmenn frá 45 löndum í Krónunni og hátt í þriðjungur fastráðinna
„Við höfum verið að sjá það undanfarið að starfsþróun starfsfólks af erlendum uppruna er að færast í aukana þannig að þessi hópur er að færa sig í auknu mæli í yfirmanna- og stjórnunarstöður,“ segir Erla María Sigurðardóttir, mannauðsstjóri Krónunnar.

Ekki vera feimin við að spyrja: Viltu að ég tali við þig á íslensku?
Fleira hæft starfsfólk vantar erlendis frá til að vinna á Íslandi.

Of ung til að stíga ekki reglulega út fyrir þægindaramman
„Mér fannst ég of ung til að vera ekki að takast á við nýjar áskoranir og stíga reglulega út fyrir þægindaramman,,“ segir María Guðjónsdóttir og hlær þegar hún skýrir út hvers vegna hún ákvað í fyrra að sækja um starf framkvæmdastjóra viðskiptaskrifstofu Breska sendiráðsins í Reykjavík. Sem einmitt í þessari viku, þann 9.mars, stendur fyrir viðburði fyrir íslensk fyrirtæki og hagaðila sem hafa áhuga á viðskiptum við og í Bretlandi.

Eiginmaðurinn vakinn af snjallúri á meðan frúin sefur með eyrnatappa
Inga Lind Karlsdóttir, framleiðandi og fjölmiðlakona, náttúruverndarsinni, ræðismaður Spánar og verðandi amma, uppgötvaði eyrnatappa á næturnar fyrir ekkert svo löngu síðan. Og segir þá snilld. Inga byrjar daginn í tennis og bíður spennt eftir því að verða bráðum amma.

Ólínulegir vinnudagar og ólínuleg verkefnavinna
Það á ekki lengur við að tala bara um níu til fimm vinnu eða vaktir.

Vinir í vinnunni: Einmanaleikaráðuneyti ekki stofnað af ástæðulausu
Það getur skipt gífurlega miklu máli að eiga vin í vinnunni. Einmanaleiki er vaxandi vandamál.


Missir kúlið yfir Notebook og dreginn í morgunhugleiðslu með kærustunni
Þær eru ólíkar vikurnar hjá Guðmundi Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Akademias, markaðsstjóri Hoobla og hluteigandi í báðum félögum. Því í pabbavikum dugir ekkert minna en fimm stjörnu þjónusta á morgnana, á meðan kærastan platar hann í morgunhugleiðslu hinar vikurnar. Sem Guðmundur viðurkennir reyndar í dag að sé mikið galdratæki.

Sjö vísbendingar um að þig skorti tilfinningagreind
Tilfinningagreind er sagt eitt af þeim lykilatriðum sem sífellt verður mikilvægari hjá starfsfólki. Ekki síst nú þegar gervigreindin er fyrir alvöru að sýna sig á vinnumarkaði og á án efa eftir að skáka mörgum handtökunum.

„Þú kemst ekkert upp með að gera ekki það sem þú átt að gera“
Skeljungur er eitt þeirra fyrirtækja sem notar EOS módelið. Markvissari fundur og meiri árangur segir forstjórinn.

EOS módelið: Fundum breytt, forgangsröðun verkefna og allir mældir
EOS er aðferðarfræði fyrir stærri og smærri fyrirtæki sem meðal annars tryggir að fundir séu markvissari, forgangsröðun verkefna sé alltaf í takt við markmið fyrirtækisins, gögn séu notuð og allir séu mældir.

Tvenn hjón: Vinna saman, ferðast saman og eru saman í frístundum
Skjöldur Sigurjónsson rifjar upp skrautlega sögu verzlunarinnar Kormákur og Skjöldur en þeir reka líka saman Ölstofuna.

Vinnuveitandinn býður starfsfólki upp á alls kyns námskeið og spennandi aukaverkefni
Birgitta Sigurðardóttir er heldur betur að gera spennandi hluti í Danmörku. Þar sem hún sér um sölu-, markaðsmál og vörumerkjastjórn Innocent drykkjarins, fyrir Íslandsmarkað og Danmörku og vinnur í nafni fyrirtækisins einnig að góðgerðarstarfi í Afríku.

Með tíu til fimmtán glugga opna í einu í Chrome og tólf Word skjöl
Það er ekki nóg með að Ragnhildur Þórðardóttir, eða Ragga Nagli eins og við þekkjum hana, beri marga hatta á höfði: Er sálfræðingur í Kaupmannahöfn, pistlahöfundur, rithöfundur, fyrirlesari, hlaðvarpari og almennur heilsunöldrari að hennar sögn. Ragga viðurkennir að vera mjög kaótísk í skipulagi. Svo ekki sé meira sagt.

Stóra uppsögnin: 22% sjá eftir því að hafa sagt upp vinnunni
Í kjölfar Covid reið yfir atvinnulífið um allan heim bylgja sem aldrei áður hefur þekkst: Stóra uppsgögnin. Þar sem fólk í hrönnum sagði upp störfum sínum. Stundum til að fylgja eftir stórum draumum um róttækar breytingar. Stundum til að gerast giggarar. Stundum til að vinna fjarvinnu Og svo framvegis og svo framvegis.

Öskubuskusaga Sjóvá: Stemning og stress þegar niðurstöður kynntar
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, segir að sú vegferð sem fyrirtækið fór í til að ná 1.sæti í Ánægjuvoginni sé sannkölluð Öskubuskusaga.

„Neytendur eru hvergi jafn ánægðir og þegar þeir kaupa bensín hjá Costco“
Það hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því að Ánægjuvogin var fyrst mæld og afhent á Íslandi fyrir 24 árum síðan. Mun meira er gert úr mælingunum þar sem áður var aðeins mælt fyrir ánægju viðskiptavina á tveimur til fjórum mörkuðum. Í dag er mælt á fjórtán mörkuðum og því mun fleiri fyrirtæki undir.

„Horfum oft á hvor aðra og veltum fyrir okkur hvernig þetta geti eiginlega verið“
„Allt kvöldið vorum við límdar saman og töluðum hreinlega saman allan tímann. Ég sagði henni frá hugmyndinni sem ég var búin að vera með í nokkur ár og það má segja að í framhaldinu hafi tekið við svona deiting-tími,“ segir Sirrý Svöludóttir og hlær.

Beverly Hills 90210, Indiana Jones Chronicles, X-Files, Simpsons, Derrick og Radíusbræður!
Karen Kjartansdóttir, stjórnendaráðgjafi og meðeigandi hjá Langbrók ráðgjöf, ólst upp við þann óleik foreldra sinna að þau voru ekki með Stöð 2. Sem betur fer, fékk hún þó að horfa á vinsælustu menningarþætti ungu kynslóðarinnar heima hjá vinkonum. Til dæmis Beverly Hills 90210.

Vont veður ömurlegt nema fyrir vinnuveitendur
Veður hefur áhrif á okkur. Við erum í sólskinsskapi á sumrin þegar veðrið er gott og sólin skín. En finnst kannski erfiðara að bretta upp ermar og gera hlutina þegar veðrið er vont, myrkur, snjór og kuldi eins og einkennt hefur veðrið síðustu daga.

Stemning á heimavelli sem skapast með því að vera með rafrænan viðburð
Í gær var tilkynnt um það hverjir hlutu viðurkenningar sem Bestu íslensku vörumerkin 2022 (BV). Flokkarnir eru fjórir og miðast við stærð fyrirtækja, hvort starfað er á fyrirtækjamarkaði eða einstaklingsmarkaði og hvort um alþjóðlegt vörumerki er að ræða eða ekki.

Bestu íslensku vörumerkin 2022: Að þessu sinni fær einstaklingur einnig viðurkenningu fyrir „Persónubrandr“
Í dag verður tilkynnt um hverjir hljóta viðurkenningu sem Bestu íslensku vörumerkin 2022 en þetta er í þriðja sinn sem hátíðin fer fram.


Hjón í nýsköpun: Hugmyndin kom óvart í feðraorlofi í Barcelona
„Fyrstu mánuðina okkar í Barcelona var ég í feðraorlofi og að læra spænsku eftir að hafa flutt fra Danmörku. Ég hafði útbúið gagnagrunn í Excel um fýsileika vindmylluverkefna og velti fyrir mér hvort ég gæti selt þetta sem vöru en áttaði mig þó á því að ég myndi fljótt gera mig atvinnulausan sem ráðgjafi ef ég seldi grunninn frá mér,“ segir Edvald Edvaldsson um aðdragandann að því að nýsköpunarfyrirtækið Youwind Renewables varð til.

Morgunrútínan að breytast fljótlega og rokkið umfram diskó
Það má búast við að Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi hafi í nægu að snúast næstu vikurnar því í gær var tilkynnt um það að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefði ráðið hann sem forstjóra frá og með 1. apríl næstkomandi og eins eru tvö barnabörn á leiðinni. Dóttir hans sem á von á barni býr enn heima.

Fólk farið að nota OpenAl gervigreindina í samtalsmeðferðum
Á dögunum sagði Stöð 2 frá því að fyrir forvitnissakir hefði gervigreind verið notuð til að semja stutta kynningu fyrir Ísland í dag. Vísað var í forritið ChatGPT á vegum fyrirtækisins OpenAI sem á síðastliðnum vikum hefur vægast sagt verið að slá í gegn víðs vegar um heiminn.

„Það er geggjað að upplifa þessi Aha! móment stjórnenda“
„Við höldum á svo mörgum boltum á lofti alla daga. Ekki bara í vinnunni, heldur líka þegar að við komum heim. Þess vegna segjum við oft að það að fara til markþjálfa sé eins og að fara úr storminum í lognið,“ segir Anna María Þorvaldsdóttir stjórnendaþjálfi hjá Víðsýni.

„Ég fór í markþjálfun til þess að átta mig á því hvernig ég vildi halda áfram“
„Ég fór í markþjálfun til þess að átta mig á því hvernig ég vildi halda áfram og hvernig ég vildi helst beita mér í því að bæta þjónustuna og kerfið,“ segir Jón Magnús Kristjánsson læknir en hann er einn þeirra sem mun halda erindi á Markþjálfunardeginum 2023 sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag.