Fleiri fréttir Carlsberg þénar milljarða Hagnaður danska bjórframleiðandans Carlsberg nam um 3 milljörðum danskra króna, eða um 60 milljörðum íslenskra króna, á þriðja fjórðungi ársins. Þótt niðurstaðan hljóti að vera vel ásættanleg er hún samt örlítið lakari en hún var á sama tíma í fyrra. Þá nam hagnaðurinn næstum áttatíu milljörðum íslenskra króna. Tekjur fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi núna námu rétt tæpum 19 milljörðum danskra króna eða um 380 milljörðum íslenskra króna. 7.11.2012 08:34 Instagram kynnir notendasíður Instagram, forrit sem upphaflega var búið til svo að fólk gæti deilt ljósmyndum úr farsímum á samfélagsmiðlum, hefur nú fengið sitt eigið vefviðmót sem þykir um margt minna á notendasíður Facebook. 7.11.2012 07:00 iPad mini umfjöllun: Fjölmargir kostir í lítilli skel Litli iPadinn er lítill og nettur. Við fyrsta samanburð gerði blaðamaður ekki ráð fyrir að iPad mini myndi eiga vinninginn gagnvart iPad 4. En á endanum reyndust fjölmargir kostir leynast í litlu skel. Ipad mini er mjög léttur miðað við iPad 4. Það skiptir sköpum þegar tækið er notað, sérstaklega við lestur. Munurinn er eins og að fara með kilju upp í rúm eða stóra alfræðiorðabók. Stóri iPadinn verður fljótt of þungur. 7.11.2012 06:00 Lánshæfismatsfyrirtæki dæmt fyrir að gefa villandi upplýsingar Dómstóll í Ástralíu dæmdi í dag lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's til sektargreiðslu fyrir að hafa gefið flóknum og áhættusömum skuldabréfum ABN Amro bankans of háa matseinkunn. Dómstóllinn komst einnig að þeirri niðurstöðu að lánshæfismatsfyrirtækið og bankinn eiga að greiða fjárfestum bætur. Standard & Poor's mun áfrýja dómnum til æðra dómstigs. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið hefði gefið rangar og villandi upplýsingar um tvennskonar fjármálagerninga. 6.11.2012 14:05 Hagnaður Marks & Spencer dregst saman Hagnaður Marks & Spencer, stærstu fataverslanakeðju Bretlands, dróst saman um 9,7 prósent á tímabilinu frá mars til september, miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta nam 290 milljónum punda, eða sem nemur 57,4 milljörðum króna. 6.11.2012 09:13 Máli Motorola og Apple vísað frá dómi Dómstóll í Bandaríkjunum hefur vísað frá máli Motorola gegn Apple. Bæði fyrirtækin framleiða vinsæla snjallsíma en Apple notar nokkrar lausnir frá Motorola í símana sína. Motorola fær 2,25% af söluvirði Apple símanna í staðinn, en þetta telja forsvarsmenn Apple að sé of hátt. Forsvarsmenn Motorola leituðu því til dómstóla til að fá þá til að kveða úr um hvað væri sanngjarnt verð, en dómstóllinn neitar að taka málið fyrir. 6.11.2012 08:33 Suzuki af markaði í Bandaríkjunum Suzuki bílar verða ekki seldir í Bandaríkjunum á næstunni. Ástæðan er sú að þrátt fyrir að bílarnir hafi verið seldir þar í þrjá áratugi virðast Bandaríkjamenn ekki vera spenntir fyrir þeim. Salan gengur illa og tekjurnar eru ekki nægjanlega miklar. Bifhjól og bátamótorar verða aftur á móti seldir áfram í Bandaríkjunum enda gengur sala þeirra mun betur. 6.11.2012 08:03 Fróðleikur: Efnahagsstórveldið Bandaríkin Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum eru efnhagslegur stórviðburður, enda hefur stefna forseta Bandaríkjanna í efnahagsmálum afgerandi áhrif á ganga mála á alþjóðlegum fjármála- og verðbréfamörkuðum, sem og á sviði alþjóðastjórnmála. Hvort sem Demókratinn Barack Obama verður forseti áfram næstu fjögur ár, eða Repúblikaninn Mitt Romney verður nýr forseti landsins, er ljóst að krefjandi verkefni bíður nýs forseta þegar kemur að efnahagsmálum. 6.11.2012 00:01 Seldu þrjár milljónir iPad mini á þremur dögum Apple tilkynnti í dag að yfir þrjár milljónir iPad mini og fjórðu kynslóðar iPad-spjaldtölva hefðu selst um opnunarhelgina en sala á þeim hófst 23. október. Þetta eru tvöfalt fleiri spjaldtölvur en seldust opnunarhelgina á iPad í mars síðastliðnum. 5.11.2012 20:44 Georg Jensen var eigendum til vandræða Georg Jensen skartgripaverslanakeðjan hefur aldrei skilað eigendum sínum þeim hagnaði sem vænst var. Georg Jensen var í eigu fjárfestingasjóðsins Axcel í ellefu ár. Eins og greint var frá í morgun hefur keðjan síðan verið seld auðjöfrum frá Bahrain, en fyrirtækið sem heldur utan um eignarhlutann núna heitir Investcorp. 5.11.2012 17:26 Danir selja Georg Jensen Danska hönnunar- og skatgripafyrirtækið Georg Jensen hefur verið selt auðjöfrum frá Bahrain fyrir um sextán milljarða íslenskra króna. Það er fjárfestafyrirtækið Investcorp sem kaupir Georg Jensen, en Financial Times segir að kaupin verði staðfest síðar í dag. Margir Íslendingar þekkja Georg Jensen vegna jólaskrautsins sem fyrirtækið framleiðir. 5.11.2012 08:59 Toyota gerir ráð fyrir 1.230 milljarða hagnaði Forsvarsmenn japanska bílaframleiðandans Toyota gera ráð fyrir 9,7 milljarða dala hagnaði á rekstrarárinu sem sem lýkur í mars á næst ári. Það jafngildir um 1.230 milljörðum króna. 5.11.2012 08:37 Tchenguiz vill að fyrrverandi forstjóri SFO sæti ábyrgð Robert Tchenguiz telur að Richard Alderman, fyrrverandi forstjóri efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar eigi að sæta ábyrgð fyrir að hafa handtekið sig og Vincent bróður sinn. Handtakan fór fram í tengslum við rannsókn á málum Kaupþings. 4.11.2012 14:05 Ríflega 171 þúsund ný störf urðu til í Bandaríkjunum Ríflega 171 þúsund ný störf urðu til í Bandaríkjunum í október, sem er töluvert mikið meira en reiknað hafði verið með. Þrátt fyrir þetta jókst skráð atvinnuleysi í Bandaríkjunum úr 7,8 prósent frá því í september í 7,9 prósent í október. Atvinnuleysisskráin í Bandaríkjunum þykir um margt óáreiðanleg, en einungis þeir sem eru skráðir virkir í atvinnuleit eru á atvinnuleysisskrá í Bandaríkjunum. 4.11.2012 12:24 Stórum bönkum gert að styrkja lausafjárstöðu sína Fjórir stórir alþjóðlegir bankar, Citigroup, HSBC, Deutsche Bank og JP Morgan, þurfa að fara varlega á næstu misserum og halda sterkri lausafjárstöðu, samkvæmt skilyrðum sem eftirlitstofnanir hafa sett bönkunum. Frá þessu var greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í morgun. 2.11.2012 10:23 Apple hefur sölu á iPad mini Bandaríski tölvurisinn Apple hefur sölu á nýjum útgáfum af iPad-spjaldtölvunum um heim allan í dag. Íslenskar verslanir hefja einnig sölu á tölvunum í dag. 2.11.2012 08:00 Ágóðinn af sölu Star Wars rennur í menntamál George Lucas, guðfaðir Star Wars söguheimsins, mun einblína á menntamál eftir að gengið verður frá sölu á fyrirtæki hans, Lucasfilm, til Walt Disney. 1.11.2012 13:46 Staða Grikklands verri en búist var við Efnahagsstaða Grikklands hefur reynst enn verri en búist var við og var staðan þó ekki beysin fyrir. 1.11.2012 06:12 Atvinnuleysið aldrei meira Atvinnuleysið á evrusvæðinu er nú í söglegu hámarki og mældist það tæp tólf prósent í september. 31.10.2012 23:25 Stefnir í stríð á spjaldtölvumarkaði Samkeppni á spjaldtölvumarkaðinum mun harðna verulega á næstu mánuðum, þá sérstaklega þegar litið er til minni og nettari spjaldtölva. 31.10.2012 13:30 Windows 8 slær í gegn Svo virðist sem að neytendur hafi tekið nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, með opnum örmum. 31.10.2012 11:33 Salan hjá Panasonic hrynur - Um 1.200 milljarða tap Japanski raftækjaframleiðandinn Panasonic glímir nú við mikinn rekstrarvanda, en sala á vörum fyrirtækisins hefur hrunið undanfarin misseri og er gera spár fyrirtækisins, samkvæmt tilkynningu til kauphallar, ráð fyrir um 9,6 milljarða dala tapi á þessu ári, eða sem nemur um 1.200 milljörðum króna. 31.10.2012 11:06 Hvítir með sexfaldar tekjur svartra í Suður Afríku Þrátt fyrir að aðskilnaðarstefnan hafi verið slegin af fyrir 18 árum í Suður Afríku er enn sláandi munur á tekjum hvítra og svartra þar í landi. 31.10.2012 06:36 Fær yfir 500 milljarða króna fyrir Lucasfilm George Lucas átti 100% í Lucasfilms. 30.10.2012 21:01 Fækka störfum um 3000 Danske bank, einn stærsti banki Danmerkur, ætlar að fækka störfum um 3000 allt til ársins 2015. Það er um 1000 fleiri störf en bankinn hafði áður gert ráð fyrir þurfa að leggja niður. Bankinn hyggst ýta úr vör nýrri aðgerðaráætlun, New Standard, og segja fjölmiðlar í Danmörku að bankinn sé með þeirri áætlun að viðurkenna að uppsveifla í danska hagkerfinu sé ekki á næsta leyti. 30.10.2012 13:40 Háttsettir stjórnendur Apple reknir Vandræðagangur á kortakerfi Apple og slakar niðurstöður ársfjórðungsuppgjörs hafa orðið til þess að tveir háttsettir stjórnendur fyrirtækisins voru látnir taka pokann sinn í gær. 30.10.2012 12:01 UBS segir 10 þúsund manns upp Svissneski bankinn UBS ætlar að fækka störfum um 10 þúsund á starfstöðum bankans víðsvegar í heiminum. Bankinn mun draga úr viðskiptabankastarfsemi sinni. Störfunum verður fækkað á næstu þremur árum. Heildarfjöldi starfsmanna er 64 þúsund og því er um að ræða fækkun um 16%. UBS bankinn tapaði um 39 milljörðum svissneskra franka í fjármálakreppunni og ríkissjóður í Sviss þurfti að koma bankanum til bjargar svo hann færi ekki í þrot. Sergio Ermotti, forstjóri UBS, segir að ákvörðunin hafi verið erfið, því bankarekstur snúist að öllu leyti um fólkið sem vinnur hjá bankanum. 30.10.2012 10:11 ESB vill stofna neyðarsjóð fyrir fátæka í Evrópu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill koma á fót neyðarsjóði fyrir það fólk sem hvorki á til hnífs né skeiðar í Evrópu vegna efnahagskreppunnar. 30.10.2012 07:00 Markaðir á Wall Street lokaðir annan daginn í röð Fjármálamarkaðir á Wall Street verða áfram lokaðir í dag, annan daginn í röð vegna ofurstormsins Sandy. Þetta á við um öll viðskipti líka þau rafrænu. 30.10.2012 06:30 Bókaforlögin Penguin og Random House sameinast Búið er að samþykkja sameiningu bókaforlaganna Penguin og Random House. Hið nýja forlag mun heita Penguin Random House. 29.10.2012 09:47 Skyfall setti aðsóknarmet á Bretlandseyjum Nýjasta James Bond myndin Skyfall setti aðsóknarmet í Bretlandi þegar hún var frumsýnd um helgina. Raunar var myndin sú aðsóknarmesta í öllum þeim 25 löndum þar sem hún var sýnd. 29.10.2012 06:33 Um 10% danskra heimila eru í greiðsluvandræðum Dönsk heimili eiga í sívaxandi erfiðleikum með að láta endana ná saman um hver mánaðarmót. Þetta sýnir ný úttekt á vegum dönsku hagstofunnar. 29.10.2012 06:23 Markaðir opnir þrátt fyrir fellibylinn Til stendur að opna kauphöllina á Wall Street á morgun þrátt fyrir að búist sé við gríðarmiklum stormi á austurströnd Bandaríkjanna í nótt og á morgun. NYSE Euronext og Nasdaq verða starfandi á morgun. Stærstu bankarnir, eins og Goldman Sachs, Citigroup og JP Morgan verða líka starfandi. 28.10.2012 22:16 Niðursveiflunni lokið í Bretlandi Nýjar hagtölur benda til þess að breska hagkerfið sé farið að vaxa á ný eftir níu mánaða niðursveiflu. Hagvöxtur er talinn hafa verið ríflega 1% á þriðja ársfjórðungi, en aukinn þrótt efnahagslífsins má að stórum hluta rekja til Ólympíuleikanna í London. 27.10.2012 02:00 Faldir sjóðir Wen Jiabao koma upp á yfirborðið Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, er orðinn vellaugður og eru sjóðir upp á hundruðir milljóna dala geymdir í félögum sem eru skráð á fjölskyldumeðli hans, þar á meðal níræða móður hans, sem skráð er fyrir eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum sem eru 120 milljóna dala virði, eða sem nemur 15 milljörðum króna. 26.10.2012 09:48 Windows sett í nýjan búning Microsoft setur í dag á markað nýja útgáfu af Windows, útbreiddasta tölvustýrikerfi heims. Nýja útgáfan nefnist Windows 8 og felur hún í sér mestu breytingar sem gerðar hafa verið á Windows-stýrikerfinu í 17 ár. 26.10.2012 09:00 Liborvaxtahneykslið vindur upp á sig Breska liborvaxtahneykslið heldur áfram að vinda upp á sig. Financial Times greinir frá því í dag að þeir sem rannsaka hneykslið hafi stefnt forráðamönnum níu stórra alþjóðlegra banka í málinu til viðbótar þeim sjö stórbönkum sem þegar eru til rannsóknar. 26.10.2012 08:05 Spilling, skattsvik og glæpir kosta Kínverja tugi þúsunda milljarða á ári Kínverska ríkið verður árlega af tekjum sem nema tugum þúsunda milljarða króna vegna þess hve mikið fé er flutt ólöglega út úr landinu. 26.10.2012 06:44 Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka og hefur nú ekki verið lægra í þrjá mánuði. Tunnan af Brentolíunni er komin niður í rúma 107 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin niður í rúma 85 dollara. 26.10.2012 06:41 Deilt um gamalt frosið íslenskt lambakjöt í Noregi Deilur eru risnar í bænum Loen við Nordfjord í Noregi þar sem kjötvinnsla bæjarins hefur keypt ársgamalt frosið lamabakjöt frá Íslandi til að bregðast við skorti á slíku kjöti í héraðinu. 26.10.2012 06:34 Windows 8 lendir á morgun Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, fer í almenna dreifingu á morgun. Stýrikerfið er ein róttækasta breyting sem Microsoft hefur gert á notendaviðmóti Windows. 25.10.2012 15:06 IBM til móts við auknar kröfur bankaumhverfisins Tæknirisinn IBM hefur kynnt til sögunnar nýja stórtölvu, zEC12, en fyrirtækið eyddi sem nemur einum milljarði Bandaríkjadala og starfrækti 18 rannsóknarstofur við þróun tölvunnar. 25.10.2012 14:23 Kaupóðir Kínverjar á lúxusmarkaðinum í Kaupmannahöfn Úra- og skartgripaverslanir í Kaupmannahöfn eru að upplifa eitt besta árið í sögunni. 25.10.2012 10:05 Besti dagur Facebook á markaðinum vestan hafs Forráðamenn og eigendur hlutabréfa í Facebook gátu andað léttar seint í gærkvöldi þegar markaðir lokuðu á Wall Street. 25.10.2012 07:04 Í þrælavinnu við að sauma föt fyrir H&M Ný skýrsla sýnir að verkafólk sem vinnur við að sauma föt fyrir H&M þrælar fyrir 40-60 krónur á tímann. Frá þessu er greint í sjónvarpsþætti sem verður sendur út á sjónvarpsstöðinni TV 4 í Svíþjóð. 24.10.2012 21:46 Sjá næstu 50 fréttir
Carlsberg þénar milljarða Hagnaður danska bjórframleiðandans Carlsberg nam um 3 milljörðum danskra króna, eða um 60 milljörðum íslenskra króna, á þriðja fjórðungi ársins. Þótt niðurstaðan hljóti að vera vel ásættanleg er hún samt örlítið lakari en hún var á sama tíma í fyrra. Þá nam hagnaðurinn næstum áttatíu milljörðum íslenskra króna. Tekjur fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi núna námu rétt tæpum 19 milljörðum danskra króna eða um 380 milljörðum íslenskra króna. 7.11.2012 08:34
Instagram kynnir notendasíður Instagram, forrit sem upphaflega var búið til svo að fólk gæti deilt ljósmyndum úr farsímum á samfélagsmiðlum, hefur nú fengið sitt eigið vefviðmót sem þykir um margt minna á notendasíður Facebook. 7.11.2012 07:00
iPad mini umfjöllun: Fjölmargir kostir í lítilli skel Litli iPadinn er lítill og nettur. Við fyrsta samanburð gerði blaðamaður ekki ráð fyrir að iPad mini myndi eiga vinninginn gagnvart iPad 4. En á endanum reyndust fjölmargir kostir leynast í litlu skel. Ipad mini er mjög léttur miðað við iPad 4. Það skiptir sköpum þegar tækið er notað, sérstaklega við lestur. Munurinn er eins og að fara með kilju upp í rúm eða stóra alfræðiorðabók. Stóri iPadinn verður fljótt of þungur. 7.11.2012 06:00
Lánshæfismatsfyrirtæki dæmt fyrir að gefa villandi upplýsingar Dómstóll í Ástralíu dæmdi í dag lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's til sektargreiðslu fyrir að hafa gefið flóknum og áhættusömum skuldabréfum ABN Amro bankans of háa matseinkunn. Dómstóllinn komst einnig að þeirri niðurstöðu að lánshæfismatsfyrirtækið og bankinn eiga að greiða fjárfestum bætur. Standard & Poor's mun áfrýja dómnum til æðra dómstigs. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið hefði gefið rangar og villandi upplýsingar um tvennskonar fjármálagerninga. 6.11.2012 14:05
Hagnaður Marks & Spencer dregst saman Hagnaður Marks & Spencer, stærstu fataverslanakeðju Bretlands, dróst saman um 9,7 prósent á tímabilinu frá mars til september, miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta nam 290 milljónum punda, eða sem nemur 57,4 milljörðum króna. 6.11.2012 09:13
Máli Motorola og Apple vísað frá dómi Dómstóll í Bandaríkjunum hefur vísað frá máli Motorola gegn Apple. Bæði fyrirtækin framleiða vinsæla snjallsíma en Apple notar nokkrar lausnir frá Motorola í símana sína. Motorola fær 2,25% af söluvirði Apple símanna í staðinn, en þetta telja forsvarsmenn Apple að sé of hátt. Forsvarsmenn Motorola leituðu því til dómstóla til að fá þá til að kveða úr um hvað væri sanngjarnt verð, en dómstóllinn neitar að taka málið fyrir. 6.11.2012 08:33
Suzuki af markaði í Bandaríkjunum Suzuki bílar verða ekki seldir í Bandaríkjunum á næstunni. Ástæðan er sú að þrátt fyrir að bílarnir hafi verið seldir þar í þrjá áratugi virðast Bandaríkjamenn ekki vera spenntir fyrir þeim. Salan gengur illa og tekjurnar eru ekki nægjanlega miklar. Bifhjól og bátamótorar verða aftur á móti seldir áfram í Bandaríkjunum enda gengur sala þeirra mun betur. 6.11.2012 08:03
Fróðleikur: Efnahagsstórveldið Bandaríkin Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum eru efnhagslegur stórviðburður, enda hefur stefna forseta Bandaríkjanna í efnahagsmálum afgerandi áhrif á ganga mála á alþjóðlegum fjármála- og verðbréfamörkuðum, sem og á sviði alþjóðastjórnmála. Hvort sem Demókratinn Barack Obama verður forseti áfram næstu fjögur ár, eða Repúblikaninn Mitt Romney verður nýr forseti landsins, er ljóst að krefjandi verkefni bíður nýs forseta þegar kemur að efnahagsmálum. 6.11.2012 00:01
Seldu þrjár milljónir iPad mini á þremur dögum Apple tilkynnti í dag að yfir þrjár milljónir iPad mini og fjórðu kynslóðar iPad-spjaldtölva hefðu selst um opnunarhelgina en sala á þeim hófst 23. október. Þetta eru tvöfalt fleiri spjaldtölvur en seldust opnunarhelgina á iPad í mars síðastliðnum. 5.11.2012 20:44
Georg Jensen var eigendum til vandræða Georg Jensen skartgripaverslanakeðjan hefur aldrei skilað eigendum sínum þeim hagnaði sem vænst var. Georg Jensen var í eigu fjárfestingasjóðsins Axcel í ellefu ár. Eins og greint var frá í morgun hefur keðjan síðan verið seld auðjöfrum frá Bahrain, en fyrirtækið sem heldur utan um eignarhlutann núna heitir Investcorp. 5.11.2012 17:26
Danir selja Georg Jensen Danska hönnunar- og skatgripafyrirtækið Georg Jensen hefur verið selt auðjöfrum frá Bahrain fyrir um sextán milljarða íslenskra króna. Það er fjárfestafyrirtækið Investcorp sem kaupir Georg Jensen, en Financial Times segir að kaupin verði staðfest síðar í dag. Margir Íslendingar þekkja Georg Jensen vegna jólaskrautsins sem fyrirtækið framleiðir. 5.11.2012 08:59
Toyota gerir ráð fyrir 1.230 milljarða hagnaði Forsvarsmenn japanska bílaframleiðandans Toyota gera ráð fyrir 9,7 milljarða dala hagnaði á rekstrarárinu sem sem lýkur í mars á næst ári. Það jafngildir um 1.230 milljörðum króna. 5.11.2012 08:37
Tchenguiz vill að fyrrverandi forstjóri SFO sæti ábyrgð Robert Tchenguiz telur að Richard Alderman, fyrrverandi forstjóri efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar eigi að sæta ábyrgð fyrir að hafa handtekið sig og Vincent bróður sinn. Handtakan fór fram í tengslum við rannsókn á málum Kaupþings. 4.11.2012 14:05
Ríflega 171 þúsund ný störf urðu til í Bandaríkjunum Ríflega 171 þúsund ný störf urðu til í Bandaríkjunum í október, sem er töluvert mikið meira en reiknað hafði verið með. Þrátt fyrir þetta jókst skráð atvinnuleysi í Bandaríkjunum úr 7,8 prósent frá því í september í 7,9 prósent í október. Atvinnuleysisskráin í Bandaríkjunum þykir um margt óáreiðanleg, en einungis þeir sem eru skráðir virkir í atvinnuleit eru á atvinnuleysisskrá í Bandaríkjunum. 4.11.2012 12:24
Stórum bönkum gert að styrkja lausafjárstöðu sína Fjórir stórir alþjóðlegir bankar, Citigroup, HSBC, Deutsche Bank og JP Morgan, þurfa að fara varlega á næstu misserum og halda sterkri lausafjárstöðu, samkvæmt skilyrðum sem eftirlitstofnanir hafa sett bönkunum. Frá þessu var greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í morgun. 2.11.2012 10:23
Apple hefur sölu á iPad mini Bandaríski tölvurisinn Apple hefur sölu á nýjum útgáfum af iPad-spjaldtölvunum um heim allan í dag. Íslenskar verslanir hefja einnig sölu á tölvunum í dag. 2.11.2012 08:00
Ágóðinn af sölu Star Wars rennur í menntamál George Lucas, guðfaðir Star Wars söguheimsins, mun einblína á menntamál eftir að gengið verður frá sölu á fyrirtæki hans, Lucasfilm, til Walt Disney. 1.11.2012 13:46
Staða Grikklands verri en búist var við Efnahagsstaða Grikklands hefur reynst enn verri en búist var við og var staðan þó ekki beysin fyrir. 1.11.2012 06:12
Atvinnuleysið aldrei meira Atvinnuleysið á evrusvæðinu er nú í söglegu hámarki og mældist það tæp tólf prósent í september. 31.10.2012 23:25
Stefnir í stríð á spjaldtölvumarkaði Samkeppni á spjaldtölvumarkaðinum mun harðna verulega á næstu mánuðum, þá sérstaklega þegar litið er til minni og nettari spjaldtölva. 31.10.2012 13:30
Windows 8 slær í gegn Svo virðist sem að neytendur hafi tekið nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, með opnum örmum. 31.10.2012 11:33
Salan hjá Panasonic hrynur - Um 1.200 milljarða tap Japanski raftækjaframleiðandinn Panasonic glímir nú við mikinn rekstrarvanda, en sala á vörum fyrirtækisins hefur hrunið undanfarin misseri og er gera spár fyrirtækisins, samkvæmt tilkynningu til kauphallar, ráð fyrir um 9,6 milljarða dala tapi á þessu ári, eða sem nemur um 1.200 milljörðum króna. 31.10.2012 11:06
Hvítir með sexfaldar tekjur svartra í Suður Afríku Þrátt fyrir að aðskilnaðarstefnan hafi verið slegin af fyrir 18 árum í Suður Afríku er enn sláandi munur á tekjum hvítra og svartra þar í landi. 31.10.2012 06:36
Fækka störfum um 3000 Danske bank, einn stærsti banki Danmerkur, ætlar að fækka störfum um 3000 allt til ársins 2015. Það er um 1000 fleiri störf en bankinn hafði áður gert ráð fyrir þurfa að leggja niður. Bankinn hyggst ýta úr vör nýrri aðgerðaráætlun, New Standard, og segja fjölmiðlar í Danmörku að bankinn sé með þeirri áætlun að viðurkenna að uppsveifla í danska hagkerfinu sé ekki á næsta leyti. 30.10.2012 13:40
Háttsettir stjórnendur Apple reknir Vandræðagangur á kortakerfi Apple og slakar niðurstöður ársfjórðungsuppgjörs hafa orðið til þess að tveir háttsettir stjórnendur fyrirtækisins voru látnir taka pokann sinn í gær. 30.10.2012 12:01
UBS segir 10 þúsund manns upp Svissneski bankinn UBS ætlar að fækka störfum um 10 þúsund á starfstöðum bankans víðsvegar í heiminum. Bankinn mun draga úr viðskiptabankastarfsemi sinni. Störfunum verður fækkað á næstu þremur árum. Heildarfjöldi starfsmanna er 64 þúsund og því er um að ræða fækkun um 16%. UBS bankinn tapaði um 39 milljörðum svissneskra franka í fjármálakreppunni og ríkissjóður í Sviss þurfti að koma bankanum til bjargar svo hann færi ekki í þrot. Sergio Ermotti, forstjóri UBS, segir að ákvörðunin hafi verið erfið, því bankarekstur snúist að öllu leyti um fólkið sem vinnur hjá bankanum. 30.10.2012 10:11
ESB vill stofna neyðarsjóð fyrir fátæka í Evrópu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill koma á fót neyðarsjóði fyrir það fólk sem hvorki á til hnífs né skeiðar í Evrópu vegna efnahagskreppunnar. 30.10.2012 07:00
Markaðir á Wall Street lokaðir annan daginn í röð Fjármálamarkaðir á Wall Street verða áfram lokaðir í dag, annan daginn í röð vegna ofurstormsins Sandy. Þetta á við um öll viðskipti líka þau rafrænu. 30.10.2012 06:30
Bókaforlögin Penguin og Random House sameinast Búið er að samþykkja sameiningu bókaforlaganna Penguin og Random House. Hið nýja forlag mun heita Penguin Random House. 29.10.2012 09:47
Skyfall setti aðsóknarmet á Bretlandseyjum Nýjasta James Bond myndin Skyfall setti aðsóknarmet í Bretlandi þegar hún var frumsýnd um helgina. Raunar var myndin sú aðsóknarmesta í öllum þeim 25 löndum þar sem hún var sýnd. 29.10.2012 06:33
Um 10% danskra heimila eru í greiðsluvandræðum Dönsk heimili eiga í sívaxandi erfiðleikum með að láta endana ná saman um hver mánaðarmót. Þetta sýnir ný úttekt á vegum dönsku hagstofunnar. 29.10.2012 06:23
Markaðir opnir þrátt fyrir fellibylinn Til stendur að opna kauphöllina á Wall Street á morgun þrátt fyrir að búist sé við gríðarmiklum stormi á austurströnd Bandaríkjanna í nótt og á morgun. NYSE Euronext og Nasdaq verða starfandi á morgun. Stærstu bankarnir, eins og Goldman Sachs, Citigroup og JP Morgan verða líka starfandi. 28.10.2012 22:16
Niðursveiflunni lokið í Bretlandi Nýjar hagtölur benda til þess að breska hagkerfið sé farið að vaxa á ný eftir níu mánaða niðursveiflu. Hagvöxtur er talinn hafa verið ríflega 1% á þriðja ársfjórðungi, en aukinn þrótt efnahagslífsins má að stórum hluta rekja til Ólympíuleikanna í London. 27.10.2012 02:00
Faldir sjóðir Wen Jiabao koma upp á yfirborðið Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, er orðinn vellaugður og eru sjóðir upp á hundruðir milljóna dala geymdir í félögum sem eru skráð á fjölskyldumeðli hans, þar á meðal níræða móður hans, sem skráð er fyrir eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum sem eru 120 milljóna dala virði, eða sem nemur 15 milljörðum króna. 26.10.2012 09:48
Windows sett í nýjan búning Microsoft setur í dag á markað nýja útgáfu af Windows, útbreiddasta tölvustýrikerfi heims. Nýja útgáfan nefnist Windows 8 og felur hún í sér mestu breytingar sem gerðar hafa verið á Windows-stýrikerfinu í 17 ár. 26.10.2012 09:00
Liborvaxtahneykslið vindur upp á sig Breska liborvaxtahneykslið heldur áfram að vinda upp á sig. Financial Times greinir frá því í dag að þeir sem rannsaka hneykslið hafi stefnt forráðamönnum níu stórra alþjóðlegra banka í málinu til viðbótar þeim sjö stórbönkum sem þegar eru til rannsóknar. 26.10.2012 08:05
Spilling, skattsvik og glæpir kosta Kínverja tugi þúsunda milljarða á ári Kínverska ríkið verður árlega af tekjum sem nema tugum þúsunda milljarða króna vegna þess hve mikið fé er flutt ólöglega út úr landinu. 26.10.2012 06:44
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka og hefur nú ekki verið lægra í þrjá mánuði. Tunnan af Brentolíunni er komin niður í rúma 107 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin niður í rúma 85 dollara. 26.10.2012 06:41
Deilt um gamalt frosið íslenskt lambakjöt í Noregi Deilur eru risnar í bænum Loen við Nordfjord í Noregi þar sem kjötvinnsla bæjarins hefur keypt ársgamalt frosið lamabakjöt frá Íslandi til að bregðast við skorti á slíku kjöti í héraðinu. 26.10.2012 06:34
Windows 8 lendir á morgun Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, fer í almenna dreifingu á morgun. Stýrikerfið er ein róttækasta breyting sem Microsoft hefur gert á notendaviðmóti Windows. 25.10.2012 15:06
IBM til móts við auknar kröfur bankaumhverfisins Tæknirisinn IBM hefur kynnt til sögunnar nýja stórtölvu, zEC12, en fyrirtækið eyddi sem nemur einum milljarði Bandaríkjadala og starfrækti 18 rannsóknarstofur við þróun tölvunnar. 25.10.2012 14:23
Kaupóðir Kínverjar á lúxusmarkaðinum í Kaupmannahöfn Úra- og skartgripaverslanir í Kaupmannahöfn eru að upplifa eitt besta árið í sögunni. 25.10.2012 10:05
Besti dagur Facebook á markaðinum vestan hafs Forráðamenn og eigendur hlutabréfa í Facebook gátu andað léttar seint í gærkvöldi þegar markaðir lokuðu á Wall Street. 25.10.2012 07:04
Í þrælavinnu við að sauma föt fyrir H&M Ný skýrsla sýnir að verkafólk sem vinnur við að sauma föt fyrir H&M þrælar fyrir 40-60 krónur á tímann. Frá þessu er greint í sjónvarpsþætti sem verður sendur út á sjónvarpsstöðinni TV 4 í Svíþjóð. 24.10.2012 21:46
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent