Fleiri fréttir

Deilu Actavis og Sanofi vísað til Evrópudómstólsins

Dómari í London hefur vísað deilu Actavis og franska lyfjaframleiðandans Sanofi til Evrópudómstólsins. Deilan snýst um að Actavis vill fá leyfi til að framleiða samheitalyfjaútgáfu af lyfinu Aprovel en einkaleyfi Sanofi á því er runnið út.

Spánverjar þurfa minna fé til að bjarga bönkum sínum

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að Spánverjar þurfi minna lánsfé til að bjarga bankakerfi sínu en talið var að þeir þyrftu í sumar. Lánsfjárþörfin sé nær 40 milljörðum evra en þeim 100 milljörðum evra, eða um 16.000 milljörðum kr., sem rætt var um í sumar.

Brasilía á fullri ferð - á allt undir hrávörum

Brasilíska hagkerfið á allt undir hrávöruútflutningi, ekki síst útflutningi til Asíu. Á undanförnum sex árum hefur árlegur hagvöxtur verið á bilinu 5 til 10 prósent, ekki síst vegna ört vaxandi olíuiðnaðar í landinu.

Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu fallli

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur verið í frjálsu fallli undanfarna daga og er verðið á Brent olíunni komið undir 108 dollara á tunnuna. Fyrir tæpri viku stóð verðið í rúmum 117 dollurum og hefur því lækkað um 10% á þessum tíma.

Japanski seðlabankinn grípur til aðgerða

Japanski seðlabankinn hefur ákveðið að grípa til aðgerða með það fyrir augum að styðja við hagvöxt og styrkja efnahag landsins. Áætlun bankans gengur út að stækka stuðningssjóðs landsins um 78 milljarða dala, eða sem jafngildir tæplega 10 þúsund milljörðum króna. Sjóðurinn er nýttur til þess að kaupa skuldabréf á markaði með það fyrir augum að halda lántökukostnaði Japans niðri, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Gríðarlegur hagnaður hjá eiganda Zöru

Smásölurisinn Inditex, sem meðal annars á vörumerkið Zöru, hagnaðist um 944 milljónir evra, eða 149 milljarða króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaðurinn jókst um 32 prósent milli ára, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC um málið. Indetex rekur 5.693 verslanir í 85 löndum, en á fyrstu sex mánuðum ársins opnaði félagið 166 nýjar verslanir.

Allar bestu vefsíðurnar fyrir konur

Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes tók á dögunum saman lista yfir 100 bestu vefsíðurnar á netinu fyrir konur. Á listanum eru margvíslegar vefsíður, um hin ýmsu mál, sem allar eiga það sameiginlegt að fjalla sérstaklega um áhugamál kvenna.

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar töluvert

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert undanfarna tvo daga og kostar Brent olían nú 112,5 dollara á tunnuna. S.l. föstudag stóð verðið í rúmum 117 dollurum og hefur því lækkað um 4%. Hið sama gildir um bandarísku léttolíuna sem er í tæpum 96 dollurum á tunnuna eftir að hafa farið yfir 99 dollara á föstudag.

Sala á rafbókum eykst um 188 prósent í Bretlandi

Frá áramótum hefur sala á rafbókum í Bretlandi aukist um 188 prósent miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þá hafa vinsældir barnabóka á rafbókarformi aukist verulegan meðan sala á hefðbundnum bókum hefur dregist saman.

Minni ásókn í tveggja ára MBA-nám í bandarískum háskólum

Dregið hefur stórlega úr umsóknum í tveggja ára MBA-nám í Bandaríkjunum á undanförnum árum, og dró enn úr umsóknum fyrir haustönnina á þessu ári sem var að hefjast. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal (WSJ) í dag, og er vitnað til nýrra talna frá Graduate Management Admission Council (GMAC), sem hefur annast hin svokölluðu GMA próf, sem nemendur þurfa oft að klára með ákveðnum lágmarksárangri til þess að eiga möguleika á því að fá inni í skólum.

Lækkanir á öllum helstu hlutabréfamörkuðum

Hlutabréfavísitölur lækkuðu víðast hvar á alþjóðamörkuðum í dag. Nasdaq vísitalan í Bandaríkjunum lækkaði um 0,17 prósent og S&P vísitalan um 0,3 prósent. Í Evrópu lækkaði DAX vísitalan um 0,11 prósent og FTSE vísitalan í Bretlandi um 0,37 prósent.

Yfir 2 milljónir pöntuðu sér iPhone á einum sólarhring

Yfir tvær milljónir manna pöntuðu sér iPhone 5 í forsölu á fyrsta sólarhringnum, sem eru tvöfalt fleiri en pöntuðu sér 4S símann í fyrra. Eftirspurnin eftir símanum er langt umfram væntingar tæknirisans Apple, sem framleiðir símann. Gert er ráð fyrir því að ekki verði hægt að afgreiða allar pantanirnar strax og því mega notendur búast við að fá ekki símann fyrr en í október. iPhone 5 var kynntur til leiks fyrir helgi en hann er bæði lengri, hraðari og með betri upplausn en sá á undan.

Merkel styður áætlun Seðlabanka Evrópu

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er ánægð með áætlun Seðlabanka Evrópu (SE) sem snýr að kaupum á ríkisskuldabréfum Evrópuþjóðum sem eiga í vandræðum vegna mikilla skulda og hás vaxtaálags. Merkel sagði á blaðamannafundi í dag að hún efaðist ekki um að áætlun bankans væri vel undirbyggð og að lánafyrirgreiðsla bankans, með skuldabréfakaupunum, yrði ekki tapað fé að lokum, eins og margir hafa gagnrýnt bankann fyrir.

Markaðir í Evrópu sýna rauðar tölur lækkunar

Vísitölur hlutabréfamarkaða í Evrópu hafa víðast hvar lækkað í morgun eftir að viðskipti hófust. Lækkanirnar eru öðru fremur raktar til þess að erfiðir tímar séu framundan í efnahagslífi margra ríkja Evrópu, ekki síst Spánar, að því er fram kemur á vef Wall Street Journal (WSJ). Í fréttaskýringu WSJ segir að búist sé við því að haustið og vetrarmánuðir á Spáni muni einkennast af fjöldamótmælum vegna niðurskurðar, og atvinnuleysis, en það mælist nú tæplega 25 prósent á Spáni.

Græðgi er góð sagði Gekko - eldast ummælin vel?

Fjárfestirinn Gordon Gekko, leikinn af Michael Douglas í kvikmyndinni Wall Street frá 1987 (og Wall Street - Money Never Sleeps frá 2010), sagði margt minnisstætt þegar hann lýsti viðskiptunum á Wall Street í New York. Líklega eru ummælin; Græðgi er góð (Greed is good), frægust en mörg önnur ummæli Gekko eru einnig eftirminnileg. Douglas fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í Wall Street.

Heimsmarkaðsverð á áli hækkar verulega

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað verulega á undanförnum dögum. Verðið stendur nú í 2.175 dollurum á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga.

Eignarhlutir ríkisins tæplega 200 milljarða virði

Eignarhlutir ríkisins í endurreistu bönkunum eru nú tæplega 200 milljarða króna virði, sé mið tekið af eiginfjárstöðu bankanna (innra virði). Ríkið hyggst selja eignarhluti í bönkunum á næstu árum, en halda þó enn eftir kjölfestuhlut í Landsbankanum.

Indverjar opna smásölumarkaðinn fyrir risakeðjum

Stjórnvöld í Indlandi hafa ákveðið að opna smálsölumarkaðinn í landinu fyrir stórum alþjóðlegum fyrirtækjum, en til þessa hefur markaðurinn verið bundinn við innlend fyrirtæki, sem mörg hver eru risavaxin. Nýtt regluverk gerir ráð fyrir að alþjóðleg fyrirtæki megi eiga allt að 51 prósent eignarhlut í fyrirtækjum sem starfa á smásölumarkaði í Indlandi. Talið er nær öruggt að bandarísku keðjurnar Walmart og Tesco muni ráðandi hluti í indverskum fyrirtækjum, en þær hafa sótt það fast undanfarin ár, án þess að stjórnvöld hafi heimilað það.

Mikil uppsveifla á öllum mörkuðum

Mikil uppsveifla hefur verið á mörkuðum í Bandaríkjunum í gærkvöldi og Asíumörkuðum í nótt. Sú uppsveifla heldur síðan áfram á helstu mörkuðum Evrópu í morgun.

Millitengi fyrir vörur Apple dýrt og ljótt

Nýjasti snjallsími Apple, iPhone 5, leit dagsins ljós í gær. En afhjúpun Apple boðaði einnig endalok hvers einasta aukahlutar sem viðskiptavinir Apple hafa keypt fyrir raftæki sín.

Gengi evrunnar heldur áfram að styrkjast

Evran heldur áfram að styrkjast gagnvart dollaranum í framhaldi af því að stjórnlagadómstóll Þýskalands úrskurðaði í gærmorgun að landinu væri heimilt að taka þátt í stöðugleikasjóði evrusvæðisins.

iPhone 5 kominn út- Lengri, léttari og þynnri

"Það er bara bomba komin inn á markaðinn. Þeir hafa komið okkur á óvart og sýnt að þeir geta gert miklu öflugri og betri græju - en hafa hana þó léttari og þynnri sem er eitthvað sem aðrir framleiðndur hafa ekki verið að gera," segir Björgvin Björgvinsson, sérfræðingur hjá Epli.is, í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Moody´s heldur lánshæfiseinkunn FIH bankans í ruslflokki

Matsfyrirtækið Moody´s hefur ákveðið að halda lánshæfiseinkunn FIH bankans í Danmörku í ruslflokki. Slíkt eykur ekki líkurnar á að Seðlabanki Íslands endurheimti það sem eftir stendur af sölunni á FIH fyrir tveimur árum síðan.

Örlög evrunnar ráðast eftir skamma stund

Örlög evrunnar ráðast nú eftir skamma stund en þá mun stjórnlagadómstóll Þýskalands í Karlsruhe kveða upp úrskurð sinn um hvort stöðuleikasjóður evrusvæðisins, svokallaður ESM sjóður, er í samræmist ákvæðum þýsku stjórnarskrárinnar.

Ár til stefnu fyrir stjórnvöld annars lækkar lánshæfiseinkunnin

Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa um það bil ár til þess að ná betri tökum á ríkisfjármálunum annars mun Moody's lækka lánshæfiseinkunn ríkissjóðs úr hæstu einkunn, AAA. Frá þessu er greint á vefsíðu fagtímaritsins Forbes í dag, og er þar vitnað til greiningar frá Moody's. Í henni kemur fram að ef raunhæf áætlun um hvernig megi minnka fjárlagahallann og lækka skuldir ríkissjóðs landsins, verður ekki samþykkt og hrint í framkvæmd fyrir lok næsta árs, þá muni Moody's lækka lánshæfiseinkunn ríkissjóðs.

Danir hvetja Kínverja til að fjárfesta í Danmörku

Dönsk stjórnvöld hafa allt aðra afstöðu til kínverskra fjárfestinga en íslensk stjórnvöld. Helle Thorning Schmidt forsætisráðherra Danmerkur hvetur kínverska fjárfesta til að koma til Danmerkur og segir að þeir séu meir en velkomnir.

SAS á duldar eignir fyrir tugi milljarða í London

Flugfélagið SAS á duldar eignir í London sem eru tug milljarða króna virði. Fjallað er um málið á vefsíðunni business.dk en þar kemur fram að þessar eignir felist í lendingarleyfum, eða svokölluðum "slots", á Heathrow flugvellinum.

Álverðið komið yfir 2.000 dollara á tonnið

Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á áli. Verðið er nú komið aftur yfir 2.000 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga og stendur í 2.038 dollurum.

Nýjar hagtölur frá Kína valda áhyggjum

Nýjar hagtölur frá Kína, sem sýna mun minni vöxt í útflutningi en spáð hafði verið, þykja renna frekari stoðum undir það að ekki sé enn kominn sá tímapunktur að hið alþjóðlega efnahagslíf fari að taka við sér á nýjan leik, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Hótar Norðmönnum tollahækkunum á sjávarafurðir þeirra

Bendt Bendtsen einn af Evrópuþingmönnum Dana hefur hótað Norðmönnum því að hann muni beita sér fyrir auknum tollum á norskar sjávarafurðir vegna þess að Norðmenn hafa hækkað verulega skatt á innflutningi skrautblóma til landsins.

Soros segir Þjóðverjum að hrökkva eða stökkva

Hinn þekkti fjárfestir George Soros segir að annaðhvort verði Þjóðverjar sjálfir að yfirgefa evrusvæðið eða sjá til þess að veikari þjóðirnar innan svæðisins fái þá aðstoð sem þær þurfa.

Raftæki öðlast framhaldslíf hjá Grænni Framtíð

Gamlir farsímar og tölvur fá framhaldslíf hjá fyrirtækinu Græn Framtíð sem tekur við þeim og selur til viðgerðarfyrirtækja í Evrópu. Stofnandinn segir öryggisvörð næstum því hafa hringt í lögregluna þegar hann sá tugi fartölva í stöflum í stofunni.

iPhone er stærri en Microsoft

Apple mun að öllum líkindum kynna nýjasta snjallsíma sinn, iPhone 5, í næstu viku. Vinsældir iPhone snjallsímanna síðustu ár eru með ólíkindum en þetta litla raftæki hefur innsiglað stöðu Apple sem eins stærsta fyrirtækis veraldar. En hversu vinsæll er iPhone í raun og veru?

Fáni ESB brenndur í Grikklandi

Rúmlega 15 þúsund mótmælendur voru í gær saman komnir í borginni Thessaloniki, næststærstu borg Grikklands, til að mótmæla niðurskurði og skerðingu lífeyrissparnaðar sem grísk stjórnvöld hafa þurft að innleiða sem eitt af skilyrðum vegna fjárhagslegrar aðstoðar frá evruríkjunum og AGS. En björgunarpakkinn er nauðsynlegur til að forða ríkinu frá gjaldþroti.

Sjá næstu 50 fréttir