Fleiri fréttir Sjálfstæð gagnvart kröfuhöfum Monica Caneman hefur verið stjórnarformaður Arion banka í tæp tvö ár. Hún sagði Þórði Snæ Júlíussyni frá upplifun sinni á íslenska bankageiranum, krefjandi verkefnum og að það megi vel kenna bönkunum um margt sem gerðist á Íslandi fyrir hrun. 21.1.2012 16:00 Glæsihýsi Hannesar til sölu á 190 milljónir Umtalað húsnæði Hannesar Smárasonar á Fjölnisvegi 11, í hjarta Reykjavíkur, er komið á sölu. Húsnæðið hefur orðið tilefni töluverðrar fjölmiðlaumfjöllunar, ekki síst vegna umfangsmikilla breytinga á húsinu og húsi númer 9 sem Hannes átti einnig. 21.1.2012 17:37 Rétt rúmlega helmingur andvígur upptöku evrunnar Vefsíðan Andríki kannaði viðhorf Íslendinga til upptöku evrunnar sem gjaldmiðils Íslands. Helstu niðurstöður eru þær að 28 prósent landsmanna eru fylgjandi upptöku evru sem gjaldmiðils. Aftur á móti eru 52 prósent því andvíg. Hinsvegar eru 20 prósent hvorki fylgjandi né andvíg. 20.1.2012 13:58 Evran veikist og dollar styrkist Þó íslenska hagkerfið sé um margt ágætlega varið fyrir væringum á alþjóðamörkuðum, m.a. vegna gjaldeyrishafta, þá hafa sveiflur á mörkuðum erlendis birst undanfarin misseri í því hvert gengi krónunnar er gagnvart helstu erlendu gjaldmiðlum. 20.1.2012 12:22 Algjör Sveppi vinsælasta íslenska myndin - bíógestum fækkar á milli ára Bíógestum fækkar hér á landi um tæp 3 prósent á milli ára samkvæmt tilkynningu frá Smáís. Heildartekjur fara hinsvegar upp um eitt prósent miðað við árið 2010. Árið 2011 voru seldir ein og hálf milljón bíómiða yfir rétt tæplega einn og hálfan milljarð króna í kvikmyndahúsum á Íslandi. 20.1.2012 11:58 Íslensk steinsteypa vekur athygli í Abu Dhabi Umhverfisvæn steinsteypa sem Ólafur H. Wallevik prófessor hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og erlendir samstarfsaðilar hafa þróað hefur vakið mikla athygli á Heimsþingi hreinnar orku sem nú stendur yfir í Abu Dhabi. 20.1.2012 09:33 Aflaverðmætið jókst um 13 milljarða milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 127,2 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði ársins í fyrra samanborið við 114 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 13,2 milljarða króna eða 11,6% á milli ára. 20.1.2012 09:08 Meirihluti landsmanna andvígur evrunni Liðlega helmingur landsmanna, eða 52 prósent, er andvígur því að taka upp evruna sem gjaldmiðil landsins, samkvæmt könnun, sem MMR gerði fyrir Andríki. 28 prósent eru þvi fylgjandi og 20 prósent eru því hvorki fylgjandi né andvíg. 20.1.2012 07:20 Forstjóri Icelandair segir Inspired by Iceland hafa skipt sköpum Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir að markaðsherferðin Inspired by Iceland, sem ráðst var í eftir að gosinu í Eyjafallajökli lauk, hafi skipt sköpum til að rétta af ferðamannaiðnaðinn eftir áfallið sem dundi yfir með gosinu. Hann segir að hrun hafi blasað við í bókunum á ferðum til Íslands áður en ráðist var í herferðina. 19.1.2012 20:04 Róbert Spanó var ráðgjafi verjanda Baldurs Guðlaugssonar Róbert R. Spanó, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, veitti verjanda Baldurs Guðlaugssonar ráðgjöf um málarekstur á hendur honum eftir að gefin var út ákæra í málinu, en Róbert hefur gagnrýnt niðurstöður Hæstaréttar um að heimila rannsókn málsins eftir að Fjármálaeftirlitið hafði tilkynnt Baldri að rannsókn væri lokið. 19.1.2012 18:30 Eignir Jóns Ásgeirs og Lárusar Welding áfram kyrrsettar Kröfum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Lárusar Welding um að kyrrsetning eigna þeirra yrði felld úr gildi, var hafnað í Hæstarétti Íslands í dag. 19.1.2012 16:23 Vilja byggja heilsuþorp á Flúðum fyrir Kínverja og hagsmunasamtök "Þetta er jákvætt og skemmtilegt verkefni og passar vel við ímyndina okkar, segir Jón G. Valgeirsson, sveitastjóri á Flúðum, en dagblaðið Sunnlenska greindi frá því í dag að kínverskir fjárfestar vilja byggja upp heilsuþorp á Flúðum og leggja til þess 6,5 til 7 milljarða króna. Sveitarfélagið mun leggja til landið Gröf sem er um sjö hektara svæði við Litlu-Laxá. 19.1.2012 16:02 Kínverjar vilja reisa heilsuþorp á Flúðum fyrir 6-7 milljarða Kínverskir aðilar vilja leggja fjármuni í byggingu heilsuþorps á Flúðum, að líkindum um 6,5 til 7 milljarða króna. Þetta kemur fram á vef Sunnlenska.is. 19.1.2012 15:30 Guðmundur Arnar til Wow Guðmundur Arnar Guðmundsson hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Wow air. Meginverkefni hans hjá Wow verður að byggja upp markaðsstarf félagsins bæði heima og erlendis en Wow hefur, sem kunnugt er, flug frá Íslandi til 12 áfangastaða í Evrópu þann 1. júní næstkomandi. Guðmundur hefur starfað hjá Icelandair frá árinu 2006. Hann er menntaður hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. 19.1.2012 15:04 Vodafone segir upp 28 manns Stjórnendur fjarskiptafyrirtækisins Vodafone sögðu í dag upp 28 manns. Ástæðan er sögð vera hagræðing í rekstri. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, segir miklar kostnaðarhækkanir hafa dunið á fyrirtækinu á undanförnum misserum. Þær hagræðingaraðgerðir sem þegar hafi verið gripið til hafi ekki dugað og því hafi þurft að grípa til þessara aðgerða. 19.1.2012 14:37 Verslunarmenn og iðnaðarmenn vilja að samningarnir haldi Bæði Landssamband íslenskra verslunarmanna og Samiðn vilja að kjarasamningar sem ASÍ gerði í maí í síðastliðnum mánuði haldi, en tekin verður ákvörðun um það á morgun hvort samningunum verður sagt upp eða ekki. ASÍ mun halda formannafund i dag þar sem sjónarmiðum Samiðnar verður komið á framfærum. Miðstjórn Samiðnar skorar hins vegar á ríkisstjórnina að breyta orðum í athafnir og standa við gefin fyrirheit um eflingu atvinnulífs og jöfnun lífeyrisréttinda. 19.1.2012 13:21 Íslandsbanki veitir nýsköpunarstyrki upp á 8 milljónir Íslandsbanki hefur ákveðið að styrkja sprotafyrirtækið GÍRÓ um þrjár milljónir króna og menntastofnanir innan íslenska sjávarklasans svokallaða um fimm milljónir. Bankinn hefur lagt áherslu á þessi tvö svið í sinni starfsemi, þ.e. orkuiðnað og sjávarútveg. 19.1.2012 12:38 Spáir því að verðbólgan fari í 6,2% Greining Arion banka spáir því að ársverðbólgan fari í 6,2% í janúar. Þetta er umtalsverð hækkun frá desember þegar verðbólgan mældist 5,3%. 19.1.2012 11:15 Tapa alltaf á fyrsta og fjórða í skjóli tekna sumarsins Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir að Icelandair tapi nær alltaf á fyrsta og fjórða ársfjórðungi, vetrarflugið sé þannig. Hins vegar borgi það sig að vera með öfluga starfsemi yfir veturinn því það skili sér margfalt yfir sumartímann. 19.1.2012 10:54 Forstjóri Icelandair Group segir engin rök fyrir því að færa völlinn Forstjóri Icelandair segir að engin rök séu fyrir því að loka Reykjavíkurflugvelli og flytja innanlandsflugið úr Vatnsmýrinni. Hann segir að fremur standi rök til þess að færa millilandaflugið nær höfuðborgarsvæðinu, ef þess er kostur. 19.1.2012 10:12 Byggingavísitalan lækkaði Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði og er nú 111,2 stig, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Verð á innfluttu efni lækkaði um 4,2% en verð á innlendu efni hækkaði um 0,6%. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar aftur á móti hækkað um 9,6%. 19.1.2012 09:12 Tveir nýir starfsmenn hjá Straumi Straumur fjárfestingabanki hefur ráðið tvo nýja starfsmenn. Halla Sigrún Hjartardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Straums fjárfestingabanka hf. Halla starfaði áður hjá Íslandsbanka á árunum 2002-2011 síðast sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar. Halla er með BS.c. gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og próf í verðbréfamiðlun. 19.1.2012 09:00 Kröfuhafar tapa milljörðum 19.1.2012 00:01 Brynjar Níels: Óheppilegt að ráðherra tjái sig um dómsmál Ummæli Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um Landsdómsmálið eru umdeild en að mati sumra fela þau í sér afskipti af störfum dómstóla. Flokksbróðir Ögmundar hefur krafist þess að hann segi af sér embætti. Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, telur óheppilegt yfirleitt að ráðherra dómsmála tjái sig um mál sem séu rekin fyrir dómstólum. 18.1.2012 21:24 Ásmundur Tryggvason ráðinn til Íslandsbanka Ásmundur Tryggvason hefur hafið störf hjá Íslandsbanka sem forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. 18.1.2012 14:50 Múrbúðin kærir Byko Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar, hefur kært Byko til Neytendastofu vegna auglýsinga- og kynningarherferðar sem Byko hóf eftir áramótin. Baldur segir að herferðin feli í sér rangar og villandi upplýsingar og vill að Neytendastofa rannsaki málið og grípi til viðeigandi aðgerða. 18.1.2012 16:35 Meirihluti íslenskra fyrirtækja rekinn með tapi á síðasta ári Á hverju ári frá 1998 hefur um helmingur félaga á Íslandi verið í taprekstri. Tæplega 13 þúsund félög skiluðu tapi árið 2011 og tæplega 12 þúsund skiluðu hagnaði. Tvö þúsund félög voru ekki með neinn rekstur. 18.1.2012 13:30 Keflavíkurflugvöllur sá næst besti í heiminum Keflavíkurflugvöllur er í öðru sæti yfir bestu flugvelli heimsins samkvæmt árlegum lista sem ferðavefurinn Frommer gefur út. Í efsta sætinu er Hajj flugvöllurinn í Jeddah í Saudi Arabíu. 18.1.2012 10:21 Minnsta atvinnuþátttaka frá upphafi mælinga Hagstofunnar Á fjórða ársfjórðungi í fyrra voru 175.700 á vinnumarkaði sem jafngildir 78,4% atvinnuþátttöku sem er lægsta hlutfall sem Hagstofan hefur mælt frá upphafi vinnumarkaðsrannsókna árið 1991. 18.1.2012 09:06 Slitastjórn greiðir út 106 milljarða kröfur Forgangskröfuhafar í þrotabú Glitnis munu fá kröfur sínar greiddar fyrir febrúarlok samkvæmt tillögu slitastjórnar. Heildarvirði þeirra er 106 milljarðar króna. Um 60% upphæðarinnar fara inn á geymslureikninga vegna ágreinings. 18.1.2012 09:00 Fasteignaverð í borginni hækkaði um 10% í fyrra Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um rétt tæp 10% á síðasta ári. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. 18.1.2012 08:59 Reginn fasteignafélag semur við Nýherja Reginn fasteignafélag, hefur valið Nýherja til að annast rekstur á upplýsingakerfum þess og mun Nýherji halda utan um rekstur á tölvu- og netkerfum Regins. 18.1.2012 08:26 Fyrirtæki hafa fengið 550 milljarða skuldir felldar niður Eftirgjöf skulda hjá fyrirtækjum landsins frá hruninu 2008 nemur samtals tæpum 550 milljörðum króna eða sem svarar til þriðjungi af landsframleiðslu landsins. 18.1.2012 06:57 Hlutur í Íslandsbanka í söluferli 18.1.2012 00:01 Vilja fá 34 milljarða Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt fyrrverandi bankaráði Landsbanka Íslands og fyrrverandi bankastjórum og krafið þá um samtals þrjátíu og fjóra milljarða króna vegna gífurlegs útflæðis fjármagns úr bankanum daginn áður en hann féll. Björgólfi Guðmundssyni er ekki stefnt þar sem hann hefur verið úrskurðaður gjaldþrota 17.1.2012 18:42 Segir málshöfðun ekki standast skoðun Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi varaformaður bankaráðs Landsbankans, segir að hann og lögmenn sínir telji að málshöfðun slitastjórnar Landsbankans gegn sér standist ekki skoðun. Málshöfðunin byggi á því að sér hafi, sem bankaráðsmanni Landsbanka Íslands, verið ljóst eða mátt vera ljóst að bankinn væri ógjaldfær í upphafi dagsins 6. október 2008 og honum hafi borið að gera ráðstafanir til að tryggja að ekki færu greiðslur út úr bankanum þennan dag. 17.1.2012 16:40 Slitastjórn Landsbankans stefnir bankaráði og stjórnendum Slitastjórn Landsbankans hefur ákveðið að stefna fjórum fyrrum bankaráðsmönnum Landsbankans og bankastjórunum Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldór J. Kristjánssyni og krafist 34 milljarða króna. 17.1.2012 16:18 Reginn semur við Nýherja Reginn fasteignafélag, hefur valið Nýherja til að annast rekstur á upplýsingakerfum þess og mun Nýherji halda utan um rekstur á tölvu- og netkerfum Regins. Í tilkynningu frá Nýherja segir að Reginn hafi valið rekstrar- og hýsingarþjónustu Nýherja í kjölfar verðkönnunar sem var haldin á vegum þess seint á síðasta ári. 17.1.2012 15:33 Vildi að metið yrði hvort Kaupþing hefði tapað á afléttingu ábyrgða Hæstiréttur hefur hafnað kröfu Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, um að óháðir matsmenn kanni hvert virði eignarhluta hans í Kaupþingi banka var árið í lok september 2008. 17.1.2012 14:15 Segja landsframleiðslu 100 milljörðum minni en spáð var Hagvöxtur verður miklu minni á næsta ári en spáð var, segir í bréfi sem Samtök atvinnulífsins sendu alþingismönnum í dag. Í bréfinu er fjallað um framgang mála í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga 5. maí 2011. Í bréfinu segir að mikið beri í milli á mati SA og ríkisstjórnarinnar á því hvernig tekist hafi til en veigamest af öllu sé að uppgangur í atvinnulífinu hafi ekki orðið eins og stefnt hafi verið að. Fjárfestingar í atvinnulífinu aukist ekki eins og þurfi til þess að störfum fjölgi og atvinnuleysi minnki umtalsvert. 17.1.2012 10:24 Íbúðalánasjóður lækkar útlánsvexti sína Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að lækka útlánavexti sjóðsins sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,20% og 4,70% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 17. janúar 2012. 17.1.2012 10:09 Finnbogi hætti í kjölfar óánægju Finnbogi Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands (FSÍ), hætti störfum hjá sjóðnum í byrjun janúar í kjölfar töluverðrar óánægju meðal eigenda sjóðsins með störf hans. Krafa var um að Finnboga yrði sagt upp störfum og í kjölfarið ákvað hann sjálfur að segja starfi sínu lausu. Á meðal þeirra mála sem ollu óánægju í eigendahópnum voru höfnun á tilboði fjárfestingafélagsins Tríton í Icelandic, ráðning Lárusar Ásgeirssonar sem forstjóra Icelandic, kaup sjóðsins í N1 og það sem margir í eigendahópi FSÍ vildu meina að væri eðlisbreyting á hlutverki sjóðsins. Þetta hefur Fréttablaðið eftir heimildum víðs vegar úr eigendahópi FSÍ. 17.1.2012 10:02 Fitch sér möguleika á að hækka lánshæfiseinkunn Íslands Í nýrri skýrslu matsfyrirtækisins Fitch Ratings segir að áætlun Seðlabankans um að losa um gjaldeyrishöftin með því að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur sé skref í rétta átt. 17.1.2012 09:49 Eignir tryggingafélaga lækkuðu aðeins Heildareignir tryggingafélaganna námu 148,6 milljörðum kr. í lok nóvember og lækkuðu um rúmar 100 milljónir kr. á milli mánaða. 17.1.2012 09:35 Heildaraflinn minnkaði um 2% milli ára í desember Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum desembermánuði, metinn á föstu verði, var 2,1% minni en í desember 2010. Á árinu 2011 jókst aflinn um 1,7% miðað við árið 2010, sé hann metinn á föstu verði. 17.1.2012 09:07 Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfstæð gagnvart kröfuhöfum Monica Caneman hefur verið stjórnarformaður Arion banka í tæp tvö ár. Hún sagði Þórði Snæ Júlíussyni frá upplifun sinni á íslenska bankageiranum, krefjandi verkefnum og að það megi vel kenna bönkunum um margt sem gerðist á Íslandi fyrir hrun. 21.1.2012 16:00
Glæsihýsi Hannesar til sölu á 190 milljónir Umtalað húsnæði Hannesar Smárasonar á Fjölnisvegi 11, í hjarta Reykjavíkur, er komið á sölu. Húsnæðið hefur orðið tilefni töluverðrar fjölmiðlaumfjöllunar, ekki síst vegna umfangsmikilla breytinga á húsinu og húsi númer 9 sem Hannes átti einnig. 21.1.2012 17:37
Rétt rúmlega helmingur andvígur upptöku evrunnar Vefsíðan Andríki kannaði viðhorf Íslendinga til upptöku evrunnar sem gjaldmiðils Íslands. Helstu niðurstöður eru þær að 28 prósent landsmanna eru fylgjandi upptöku evru sem gjaldmiðils. Aftur á móti eru 52 prósent því andvíg. Hinsvegar eru 20 prósent hvorki fylgjandi né andvíg. 20.1.2012 13:58
Evran veikist og dollar styrkist Þó íslenska hagkerfið sé um margt ágætlega varið fyrir væringum á alþjóðamörkuðum, m.a. vegna gjaldeyrishafta, þá hafa sveiflur á mörkuðum erlendis birst undanfarin misseri í því hvert gengi krónunnar er gagnvart helstu erlendu gjaldmiðlum. 20.1.2012 12:22
Algjör Sveppi vinsælasta íslenska myndin - bíógestum fækkar á milli ára Bíógestum fækkar hér á landi um tæp 3 prósent á milli ára samkvæmt tilkynningu frá Smáís. Heildartekjur fara hinsvegar upp um eitt prósent miðað við árið 2010. Árið 2011 voru seldir ein og hálf milljón bíómiða yfir rétt tæplega einn og hálfan milljarð króna í kvikmyndahúsum á Íslandi. 20.1.2012 11:58
Íslensk steinsteypa vekur athygli í Abu Dhabi Umhverfisvæn steinsteypa sem Ólafur H. Wallevik prófessor hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og erlendir samstarfsaðilar hafa þróað hefur vakið mikla athygli á Heimsþingi hreinnar orku sem nú stendur yfir í Abu Dhabi. 20.1.2012 09:33
Aflaverðmætið jókst um 13 milljarða milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 127,2 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði ársins í fyrra samanborið við 114 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 13,2 milljarða króna eða 11,6% á milli ára. 20.1.2012 09:08
Meirihluti landsmanna andvígur evrunni Liðlega helmingur landsmanna, eða 52 prósent, er andvígur því að taka upp evruna sem gjaldmiðil landsins, samkvæmt könnun, sem MMR gerði fyrir Andríki. 28 prósent eru þvi fylgjandi og 20 prósent eru því hvorki fylgjandi né andvíg. 20.1.2012 07:20
Forstjóri Icelandair segir Inspired by Iceland hafa skipt sköpum Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir að markaðsherferðin Inspired by Iceland, sem ráðst var í eftir að gosinu í Eyjafallajökli lauk, hafi skipt sköpum til að rétta af ferðamannaiðnaðinn eftir áfallið sem dundi yfir með gosinu. Hann segir að hrun hafi blasað við í bókunum á ferðum til Íslands áður en ráðist var í herferðina. 19.1.2012 20:04
Róbert Spanó var ráðgjafi verjanda Baldurs Guðlaugssonar Róbert R. Spanó, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, veitti verjanda Baldurs Guðlaugssonar ráðgjöf um málarekstur á hendur honum eftir að gefin var út ákæra í málinu, en Róbert hefur gagnrýnt niðurstöður Hæstaréttar um að heimila rannsókn málsins eftir að Fjármálaeftirlitið hafði tilkynnt Baldri að rannsókn væri lokið. 19.1.2012 18:30
Eignir Jóns Ásgeirs og Lárusar Welding áfram kyrrsettar Kröfum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Lárusar Welding um að kyrrsetning eigna þeirra yrði felld úr gildi, var hafnað í Hæstarétti Íslands í dag. 19.1.2012 16:23
Vilja byggja heilsuþorp á Flúðum fyrir Kínverja og hagsmunasamtök "Þetta er jákvætt og skemmtilegt verkefni og passar vel við ímyndina okkar, segir Jón G. Valgeirsson, sveitastjóri á Flúðum, en dagblaðið Sunnlenska greindi frá því í dag að kínverskir fjárfestar vilja byggja upp heilsuþorp á Flúðum og leggja til þess 6,5 til 7 milljarða króna. Sveitarfélagið mun leggja til landið Gröf sem er um sjö hektara svæði við Litlu-Laxá. 19.1.2012 16:02
Kínverjar vilja reisa heilsuþorp á Flúðum fyrir 6-7 milljarða Kínverskir aðilar vilja leggja fjármuni í byggingu heilsuþorps á Flúðum, að líkindum um 6,5 til 7 milljarða króna. Þetta kemur fram á vef Sunnlenska.is. 19.1.2012 15:30
Guðmundur Arnar til Wow Guðmundur Arnar Guðmundsson hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Wow air. Meginverkefni hans hjá Wow verður að byggja upp markaðsstarf félagsins bæði heima og erlendis en Wow hefur, sem kunnugt er, flug frá Íslandi til 12 áfangastaða í Evrópu þann 1. júní næstkomandi. Guðmundur hefur starfað hjá Icelandair frá árinu 2006. Hann er menntaður hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. 19.1.2012 15:04
Vodafone segir upp 28 manns Stjórnendur fjarskiptafyrirtækisins Vodafone sögðu í dag upp 28 manns. Ástæðan er sögð vera hagræðing í rekstri. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, segir miklar kostnaðarhækkanir hafa dunið á fyrirtækinu á undanförnum misserum. Þær hagræðingaraðgerðir sem þegar hafi verið gripið til hafi ekki dugað og því hafi þurft að grípa til þessara aðgerða. 19.1.2012 14:37
Verslunarmenn og iðnaðarmenn vilja að samningarnir haldi Bæði Landssamband íslenskra verslunarmanna og Samiðn vilja að kjarasamningar sem ASÍ gerði í maí í síðastliðnum mánuði haldi, en tekin verður ákvörðun um það á morgun hvort samningunum verður sagt upp eða ekki. ASÍ mun halda formannafund i dag þar sem sjónarmiðum Samiðnar verður komið á framfærum. Miðstjórn Samiðnar skorar hins vegar á ríkisstjórnina að breyta orðum í athafnir og standa við gefin fyrirheit um eflingu atvinnulífs og jöfnun lífeyrisréttinda. 19.1.2012 13:21
Íslandsbanki veitir nýsköpunarstyrki upp á 8 milljónir Íslandsbanki hefur ákveðið að styrkja sprotafyrirtækið GÍRÓ um þrjár milljónir króna og menntastofnanir innan íslenska sjávarklasans svokallaða um fimm milljónir. Bankinn hefur lagt áherslu á þessi tvö svið í sinni starfsemi, þ.e. orkuiðnað og sjávarútveg. 19.1.2012 12:38
Spáir því að verðbólgan fari í 6,2% Greining Arion banka spáir því að ársverðbólgan fari í 6,2% í janúar. Þetta er umtalsverð hækkun frá desember þegar verðbólgan mældist 5,3%. 19.1.2012 11:15
Tapa alltaf á fyrsta og fjórða í skjóli tekna sumarsins Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir að Icelandair tapi nær alltaf á fyrsta og fjórða ársfjórðungi, vetrarflugið sé þannig. Hins vegar borgi það sig að vera með öfluga starfsemi yfir veturinn því það skili sér margfalt yfir sumartímann. 19.1.2012 10:54
Forstjóri Icelandair Group segir engin rök fyrir því að færa völlinn Forstjóri Icelandair segir að engin rök séu fyrir því að loka Reykjavíkurflugvelli og flytja innanlandsflugið úr Vatnsmýrinni. Hann segir að fremur standi rök til þess að færa millilandaflugið nær höfuðborgarsvæðinu, ef þess er kostur. 19.1.2012 10:12
Byggingavísitalan lækkaði Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði og er nú 111,2 stig, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Verð á innfluttu efni lækkaði um 4,2% en verð á innlendu efni hækkaði um 0,6%. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar aftur á móti hækkað um 9,6%. 19.1.2012 09:12
Tveir nýir starfsmenn hjá Straumi Straumur fjárfestingabanki hefur ráðið tvo nýja starfsmenn. Halla Sigrún Hjartardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Straums fjárfestingabanka hf. Halla starfaði áður hjá Íslandsbanka á árunum 2002-2011 síðast sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar. Halla er með BS.c. gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og próf í verðbréfamiðlun. 19.1.2012 09:00
Brynjar Níels: Óheppilegt að ráðherra tjái sig um dómsmál Ummæli Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um Landsdómsmálið eru umdeild en að mati sumra fela þau í sér afskipti af störfum dómstóla. Flokksbróðir Ögmundar hefur krafist þess að hann segi af sér embætti. Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, telur óheppilegt yfirleitt að ráðherra dómsmála tjái sig um mál sem séu rekin fyrir dómstólum. 18.1.2012 21:24
Ásmundur Tryggvason ráðinn til Íslandsbanka Ásmundur Tryggvason hefur hafið störf hjá Íslandsbanka sem forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. 18.1.2012 14:50
Múrbúðin kærir Byko Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar, hefur kært Byko til Neytendastofu vegna auglýsinga- og kynningarherferðar sem Byko hóf eftir áramótin. Baldur segir að herferðin feli í sér rangar og villandi upplýsingar og vill að Neytendastofa rannsaki málið og grípi til viðeigandi aðgerða. 18.1.2012 16:35
Meirihluti íslenskra fyrirtækja rekinn með tapi á síðasta ári Á hverju ári frá 1998 hefur um helmingur félaga á Íslandi verið í taprekstri. Tæplega 13 þúsund félög skiluðu tapi árið 2011 og tæplega 12 þúsund skiluðu hagnaði. Tvö þúsund félög voru ekki með neinn rekstur. 18.1.2012 13:30
Keflavíkurflugvöllur sá næst besti í heiminum Keflavíkurflugvöllur er í öðru sæti yfir bestu flugvelli heimsins samkvæmt árlegum lista sem ferðavefurinn Frommer gefur út. Í efsta sætinu er Hajj flugvöllurinn í Jeddah í Saudi Arabíu. 18.1.2012 10:21
Minnsta atvinnuþátttaka frá upphafi mælinga Hagstofunnar Á fjórða ársfjórðungi í fyrra voru 175.700 á vinnumarkaði sem jafngildir 78,4% atvinnuþátttöku sem er lægsta hlutfall sem Hagstofan hefur mælt frá upphafi vinnumarkaðsrannsókna árið 1991. 18.1.2012 09:06
Slitastjórn greiðir út 106 milljarða kröfur Forgangskröfuhafar í þrotabú Glitnis munu fá kröfur sínar greiddar fyrir febrúarlok samkvæmt tillögu slitastjórnar. Heildarvirði þeirra er 106 milljarðar króna. Um 60% upphæðarinnar fara inn á geymslureikninga vegna ágreinings. 18.1.2012 09:00
Fasteignaverð í borginni hækkaði um 10% í fyrra Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um rétt tæp 10% á síðasta ári. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. 18.1.2012 08:59
Reginn fasteignafélag semur við Nýherja Reginn fasteignafélag, hefur valið Nýherja til að annast rekstur á upplýsingakerfum þess og mun Nýherji halda utan um rekstur á tölvu- og netkerfum Regins. 18.1.2012 08:26
Fyrirtæki hafa fengið 550 milljarða skuldir felldar niður Eftirgjöf skulda hjá fyrirtækjum landsins frá hruninu 2008 nemur samtals tæpum 550 milljörðum króna eða sem svarar til þriðjungi af landsframleiðslu landsins. 18.1.2012 06:57
Vilja fá 34 milljarða Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt fyrrverandi bankaráði Landsbanka Íslands og fyrrverandi bankastjórum og krafið þá um samtals þrjátíu og fjóra milljarða króna vegna gífurlegs útflæðis fjármagns úr bankanum daginn áður en hann féll. Björgólfi Guðmundssyni er ekki stefnt þar sem hann hefur verið úrskurðaður gjaldþrota 17.1.2012 18:42
Segir málshöfðun ekki standast skoðun Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi varaformaður bankaráðs Landsbankans, segir að hann og lögmenn sínir telji að málshöfðun slitastjórnar Landsbankans gegn sér standist ekki skoðun. Málshöfðunin byggi á því að sér hafi, sem bankaráðsmanni Landsbanka Íslands, verið ljóst eða mátt vera ljóst að bankinn væri ógjaldfær í upphafi dagsins 6. október 2008 og honum hafi borið að gera ráðstafanir til að tryggja að ekki færu greiðslur út úr bankanum þennan dag. 17.1.2012 16:40
Slitastjórn Landsbankans stefnir bankaráði og stjórnendum Slitastjórn Landsbankans hefur ákveðið að stefna fjórum fyrrum bankaráðsmönnum Landsbankans og bankastjórunum Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldór J. Kristjánssyni og krafist 34 milljarða króna. 17.1.2012 16:18
Reginn semur við Nýherja Reginn fasteignafélag, hefur valið Nýherja til að annast rekstur á upplýsingakerfum þess og mun Nýherji halda utan um rekstur á tölvu- og netkerfum Regins. Í tilkynningu frá Nýherja segir að Reginn hafi valið rekstrar- og hýsingarþjónustu Nýherja í kjölfar verðkönnunar sem var haldin á vegum þess seint á síðasta ári. 17.1.2012 15:33
Vildi að metið yrði hvort Kaupþing hefði tapað á afléttingu ábyrgða Hæstiréttur hefur hafnað kröfu Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, um að óháðir matsmenn kanni hvert virði eignarhluta hans í Kaupþingi banka var árið í lok september 2008. 17.1.2012 14:15
Segja landsframleiðslu 100 milljörðum minni en spáð var Hagvöxtur verður miklu minni á næsta ári en spáð var, segir í bréfi sem Samtök atvinnulífsins sendu alþingismönnum í dag. Í bréfinu er fjallað um framgang mála í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga 5. maí 2011. Í bréfinu segir að mikið beri í milli á mati SA og ríkisstjórnarinnar á því hvernig tekist hafi til en veigamest af öllu sé að uppgangur í atvinnulífinu hafi ekki orðið eins og stefnt hafi verið að. Fjárfestingar í atvinnulífinu aukist ekki eins og þurfi til þess að störfum fjölgi og atvinnuleysi minnki umtalsvert. 17.1.2012 10:24
Íbúðalánasjóður lækkar útlánsvexti sína Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að lækka útlánavexti sjóðsins sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,20% og 4,70% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 17. janúar 2012. 17.1.2012 10:09
Finnbogi hætti í kjölfar óánægju Finnbogi Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands (FSÍ), hætti störfum hjá sjóðnum í byrjun janúar í kjölfar töluverðrar óánægju meðal eigenda sjóðsins með störf hans. Krafa var um að Finnboga yrði sagt upp störfum og í kjölfarið ákvað hann sjálfur að segja starfi sínu lausu. Á meðal þeirra mála sem ollu óánægju í eigendahópnum voru höfnun á tilboði fjárfestingafélagsins Tríton í Icelandic, ráðning Lárusar Ásgeirssonar sem forstjóra Icelandic, kaup sjóðsins í N1 og það sem margir í eigendahópi FSÍ vildu meina að væri eðlisbreyting á hlutverki sjóðsins. Þetta hefur Fréttablaðið eftir heimildum víðs vegar úr eigendahópi FSÍ. 17.1.2012 10:02
Fitch sér möguleika á að hækka lánshæfiseinkunn Íslands Í nýrri skýrslu matsfyrirtækisins Fitch Ratings segir að áætlun Seðlabankans um að losa um gjaldeyrishöftin með því að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur sé skref í rétta átt. 17.1.2012 09:49
Eignir tryggingafélaga lækkuðu aðeins Heildareignir tryggingafélaganna námu 148,6 milljörðum kr. í lok nóvember og lækkuðu um rúmar 100 milljónir kr. á milli mánaða. 17.1.2012 09:35
Heildaraflinn minnkaði um 2% milli ára í desember Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum desembermánuði, metinn á föstu verði, var 2,1% minni en í desember 2010. Á árinu 2011 jókst aflinn um 1,7% miðað við árið 2010, sé hann metinn á föstu verði. 17.1.2012 09:07