Viðskipti innlent

Íbúðalánasjóður lækkar útlánsvexti sína

Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að lækka útlánavexti sjóðsins sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,20% og 4,70% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 17. janúar 2012.

Í tilkynningu segir að vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var í gær ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,31%.

Við þessa vexti, það er 3,31%, bætist síðan vaxtaálag vegna rekstrar sem er 0,45%, vegna útlánaáhættu 0,45% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×